Feykir


Feykir - 11.03.1998, Qupperneq 4

Feykir - 11.03.1998, Qupperneq 4
4FEYKIR 10/1998 „Flestir mundu sjálfsagt segja þetta haugalýgi“ Hraustmennið Halldór Antonsson í Tumabrekku hefur frá ýmsu að segja „Blessaður farðu nú ekki að skrifa ævisögu mína. Ég ætla að biðja þig að gera það ekki. Ég skal frekar segja þér frá smá atviki sem henti mig einu sinni”, sagði Halldór Antonsson íTumabrekku í spjalli við blaða- mann Feykis. Halldór er enn í góðu formi að sjá þó orðinn sé tæplega áttræður og sannast á honum eins og reyndar fleiri Antonsbömum að lengi býr að fyrstu gerð. Þetta er hraustleikafólk og Halli í Brekku hef- ur einnig fengið þá frábæm vöggugjöf að kunnu að segja skemmtilega frá og það er ógrynni sem hann hefur frá að segja. Þessu hafði blaða- maður Feykis frétt af, en Halli var hins vegar frekar tregur til þegar orðað var við hann viðtal. ,JÉg veit svo sem ekki hvað það ætti að vera sem ég gæti sagt frá. Það getur nú varla tahst mjög merkilegt sem drif- ið hefur á dagana”, sagði Halli en lét þó tilleiðast að koma í smá spjall. Halldór Antonsson í TUmabrekku í kaupstaðaferð á Króknum. Halli er fæddur á Fjalli í Kolbeinsdal, þar sem nú eru sumarhagar hrossa og fjár sem smalað er til Laufskálaréttar á haustin. Bærinn Fjall var framan við af- réttargirðinguna, um hálfum kílómetra framan við. „Þetta var ekki slæm jörð, lítil en gott að vera með fáeina kindur. Hvort þau voru þama tvö ár eða þijú eft- ir að ég fæddist man ég ekki, en fólk stoppaði ekki lengi við á þessum tíma, var alltaf að flytja sig á milli staða”, seg- ir Halli og vill lítið fara út í einhveija ná- kvæmni hvað varðarþennan löngu liðna tíma. En hann játti því þó að hafa átt heima í Sviðningi þegar snjófljóðið féll þar rétt fyrir jólin 1924. Hann man greinilega eftir flóðinu en var þá aðeins þriggja ára. „Þetta er með því fyrsta sem ég man, en blessaðurfarðu nú ekki að skrifa ævi- söguna ég skal frekar segja frá smá at- viki sem átti sér stað á minni lífsleið. Gimbrarnar sem gufuðu upp Ég man ekki nákvæmlega ártalið. Þetta gerðist þegar herinn var héma. Ég var þá í Þúfum og það þar var svört rolla sem ekki gat borið þama um vorið. Hún var kviðrifin og allt í pati með hana. Hún var með þrem lömbum sem Jóhann í Miðhúsum Olafsson náði einhvem veg- inn úr henni, líklega með keisaraskurði. Kindin dó svo, en lömbin vom heima í húsunum allt sumarið. Þetta vom þijár gimbrar, tvær svartar og ein grá. Þær fóm aldrei úr húsum, en einn morgun- inn em þær ekki sjáanlegar. Þetta var eft- ir allar göngur, rétt eftir eftirleitina. A þessum tíma vom alltaf þrennar göngur. Svo er ekkert með það. Ég var þama heima ágætlega sprækur og tók að mér að leita að gimbmnum. Við vomm þama þrír strákar sem leituðum ansi mikið að gimbrunum og það var farið svæðið meðfram ijallinu, fram fjallið og alveg út fyrir líka. Annan dag fór ég svo upp á fjall og Óskar bróðir mömmu með mér. Ég fór upp á fjallið og fram á dali og áfram fram og fram á Skálafjall og alveg fram í botn. Óskar fór aftur á móti neðar. Svo kom ég niður í botninn og við fömm þar út á fell þama framan við tungumar í botnunum og stoppuðum þar, fengum okkur brauðsneiðar sem við vomm með og vatn að drekka. Óskar var farinn að þreytast enda tekinn að eldast og hallaði sér aðeins. Á meðan hann hvfldi sig labbaði ég aðeins þama fram fyrir og sá þá allt í einu stórt flikki þama á flögri. Ég sá fljótt hvers kyns þetta var því það var búið að segja frá þessu í útvarpi. Þetta var loftbelgur, stór grár belgur en þessir belgir vom víst notaðir til að girða af borgimar úti. í lélegu skyggni áttu óvinavélamar það til að fljúga á þetta. Það vom settir dálitlir peningar í að ná þessum belgjum, borg- að dálítið íyrir þetta af setuliðinu. Helvítis óþverri úr þessu Þessir belgir vom ægilegt flikki, með streng neðan úr og þungar plötur að neð- an sem héldu þeim niðri. Þetta vom eins og stærðar hús. Það komu þrír belgir með stuttu millibili þama niður. Þeir hafa farið yfir Svarfaðardalinn og kom- ið þama niður í dalinn. Ég náði í vírinn á einum belgnum og vafði dálítið mik- ið af honum upp í hönk og hljóp áfram til að hann strekkti ekki um of á taug- inni, því þetta var það fyrirferðarmikið að það stoppar þetta enginn nema öflugt tæki. Ég náði að hlaupa út að klettasyllu þama og auðnaðist að festa belginn, tókst að vippa hönkinni utan um stein- drang þama. Það fóm að koma golukviður og hann slóst þama í klettasyllu fyrir ofan og rifnaði. Þá náttúrlega datt hann niður. Við fómm svo heim um kvöldið. Þetta fréttist af þessu því það sást víst til ferða belgjanna. Þetta var helvítis óþverri þetta gas sem var í belgnum. Það var talið mjög óhollt og vond lykt af því. Agaleg ólykt sem loddi við mann lengi, gott ef þetta hefur ekki lodd við mann síðan”, segir Halli og hlær við en heldur svo áfram. „Þá var kaupfélagsstjóri á Hofsósi sem Kristján hét Hallsson. Hann vardá- lítill ævintýramaður, hraustmenni og hafði gaman af ýmsu. Hann gat talað við Bretana þegar þeir vom héma. Hann vildi endilega fá að sækja belginn fram eftir, en ég vildi hafa það þannig að þeir næðu í hann. Það var svolítil togstreita með þetta sem endaði með því að þeir mættu á hlaðinu heima frá hemum. Það vom 22 bílamir sem birtust einn morg- uninn. Það var farið út í Hofsós dl Krist- jáns og þegar þeim var sýnd leiðin, leist þeim ekkert á að ná í belginn. Við fómm því í félag við Kristján. Ég held við höf- um verið 12 sem fómm lengst fram í Kolbeinsdal að ná í belginn. Við vomm tvo daga að koma honum niður í Hofs- ós. Þeir bám hann 10 á milli sín niður og það var slæm byrði. Ég var nú ekki í því, var með vírana og kaðlana og það var ekki gott heldur. Bjöm Bjömsson var með mér. Við komumst með hann en jDetta var erfiður túr. Svo var sendur mót- orbátur í Hofsós til að flytja þetta upp á Krók”. Þetta er svo lygilegt Þannig var saga Halla og hann segir enn nokkra menn lifandi af þeim sem tóku þátt í þessum erfiða og sögulega túr þegar náð var í loftbelginn. Þegar Halli hafði lokið þessari frá- sögn spurði blaðamaður hann út í fleira sem á daga hans hafði drifið. En Halli var var um sig, ætlaði ekki að láta skrifa alltof mikið eftir sér. Þegar hann var spurður um sögulega ferð sem hann fór einu sinni á hesti heiman frá sér og út á Sauðárkrók, sagði Halli að það væri nú óþarfi að segja frá því, því það væri búið að skrifa hana einhvers staðar. „Svo er þetta svo lygilegt að það sjálfsagt trúa því fáir og flestir mundu sjálfsagt segja að þetta sé haugalýgi, en svo er ekki. Sumt er bara svo ótrúlegt’’, sagði Halli og síðan kom sagan: „Við áttum heinta á Litlhóli í Viðvík- ursveit þegar þetta var. Ég var að vinna á sláturhúsinu á Sauðárkróki en fór á milli. Það var að koma helgi og ég hafði lofað Siglfirðingum því að ná í nokkur hross fyrir þá vestur í Húnavatnssýslu um helgina. Hugmyndin var að fara með rútunni upp á Krók þama um morguninn, en ég vaknað víst eitthvað seint og rútan var að fara yfir Sleitu- staðabrúna þegar ég var kominn á stjá. Lagt á þann rauða Ég sá að það var þýðingarlaust að reyna að komast í rútuna úr því sem kornið var en ætlaði samt ekki að láta það aftra mér. Lagði því í skyndingu á rauðan hest sent var utan úr Siglufirði og föðurbróður minn Guðmundur Gunn- laugsson átti og keypti af Moniku Helgadóttir á Merkigili. Ég tamdi hann, reyndar fyrir mig, og hann var hjá mér í 6 ár. Ég snaraði mér bara á bak og teymdi annan hest sem ég ædaði að nota í túmum. Rútan fór norður fyrir eftir gamla veginum utan við Brimnes og ofan við Bakka. Ég fór beinustu leið og þetta var nú ekkert greiður vegur sem ég fór, ófærar drullumýrar og allt eftir því. Þegar rútan fer síðan ofan á eylendið er ég orðin á undan og hún náði mér ekki fyrr en ég nálgaðist Fomósinn á Krókn- unt. Þá hleypd ég kklmum í fyrsta skipt- ið í túmum. Og Balda blúss sem keyrði rútuna fannst réttast að hægja ferðina. Hann vildi ekki skemma bílinn enda spýtti hann gijótí ansi nálægt bflnum. En það sást ekkert á klámum þegar við vor- um komnir á Krókinn og tilbúnir að leggja í hann vestur í fjöllin”, sagði Halli að endingu.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.