Feykir - 17.06.1998, Blaðsíða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Nýja sveitarstjórnin ásamt bæjarstjóra og bæjarritara á fyrsta fundi sveitarstjómarinnar í
Gils-stofu sl. fimmtudag.
Hátíðlegur bragur á fyrsta fvindi
sveitarstjómar Skagaíjarðar
Fánar blöktu víða við hún í Skagafirði sl.
fimmtudag 11. júní, en þá var haldinn fyrsti
fundur sveitarstjórnar nýs sameinaðs sveitar-
félags í Skagafirði. Fundurinn var með hátíð-
legum blæ og fór fram í Gilsstofu við Glaum-
bæ. Kosið var í helstu nefndir sveitarstjórnar
og jafnframt samþykkt að beina því til ör-
Stefán Guðmundsson alþingismaður setur
fyrsta fund nýrrar sveitarstjórnar.
nefnanefndar hvort nefndin sæi nokkra ann-
marka á því að nýja sveitarfélagið héti Skaga-
fjörður. Að loknum fundi var sveitarstjórnar-
mönnum og nokkrum gestum sem fundinn
sóttu boðið í kaffi og bakkelsi í Ashúsi.
Það var Stefán Guðmundsson aldursforseti
sem setti fúndinn og þegar gengið hafði verið frá
kosningu forseta, tók Gísli Gunnarsson forseti
sveitarstjómar við stjóm fúndarins. Herdís Á. Sæ-
mundardóttir var kjörinn formaður byggðaráðs.
Stefán Guðmundsson fyrsti varaforseti og Ingi-
björg Hafstað annar varaforsetí. í byggðaráð voru
kjörin: Gísli Gunnarsson, Herdís Á. Sæmundar-
dóttir, Páll Kolbeinsson, Elínborg Hilmarsdóttir og
Ingibjörg Hafstað. Skrifarar sveitarstjómar voru
kjörin þau Sigrún Alda Sighvatsdóttir og Sigurð-
ur Friðriksson.
Á fundinum var skírt frá ráðningu Snorra
Bjöms Sigurðssonar í starf sveitarstjóra tíl tveggja
ára og jafnframt að fljótlega yrði auglýst starf
framkvæmdastjóra stjómsýslusviðs, en fyrsta verk
sveitarstjómar er að fara yfir tillögur að nýju
stjómskipuriti og fara að vinna að því að samein-
ing sveitarfélaganna gangi yfir. Stefiit er að skipun
í nefndir á næstu dögum.
Framkvæmdastióri Svæðisvinnumiðlunar:
Atvinnuástandið
hefiir stórlega batnað
„Atvinnuástand er nokkuð
gott hérna á vestursvæðinu,
sérstaklega í vestur sýslunni
þar sem einungis þrír eða
fjórir eru á skrá. Á Hofsósi er
mikið að gera í skelinni og at-
vinnuleysi nánast ekkert, en
sömu sögu er ekki að segja
annars staðar í Skagafirði og
á Sigflufirði. Atvinnuleysið er
mest á þessum stöðum, en
hefur þó lagast stórlega á síð-
ustu vikum og mánuðum”,
segir Gunnar Richardsson
framkvæmdastjóri Svæðis-
vinnumiðlunar Norðurlands
vestra á Blönduósi.
Gunnar segir að atvinnuá-
standið hafi lagast stórlega á
Norðuriandi vestra undanfaiið,
enda sé yfirleitt bati í atvinnulíf-
inu á þessum tíma jtegar sveitar-
félögin fari af stað með vinnu-
skóla og önnur sumarverkefni.
Þá sé oft mikið að gera hjá iðn-
aðarmönnum á þessum árstíma.
„Það er hjá konunum sem
atvinnuleysið er langalvarleg-
ast. Þegar um 250 manns voru á
atvinnuleysisskrá í kjördæminu
í lok apríl vom um 180 konur á
skrá og því miður virðist miklu
mun erfiðara fyrir konur að
komast inn á vinnumarkaðinn
en karla”, sagði Gunnar Ric-
hardsson.
Um þessar mundir em rúm-
lega 100 manns á atvinnuleysis-
skrá í Skagafirði, en þar af er
talsvert af fólki sem er í hálfs-
dagsstörfum. Á Siglufirði em
um fimmtíu manns á skrá.
Húsfyllir hjá Heimi í
söngferð fyrir vestan
Karlakórinn Heimir fékk
mjög góðar móttökur og að-
sókn í söngferð sinni vestur á
firði um helgina. Húsfyllir var
hvarvetna þar sem kórinn
söng, en einnig var kórinn
beðinn um að syngja nokkur
lög á Atvinnulífssýningunni
sem haldin var á ísafirði um
helgina. Er álitið að þar hafi
um 2000 manns hlýtt á söng
kórsins, en alls sóttu um 6000
manns sýninguna.
„Þetta vom frábærar mót-
tökur og alls staðar var okkur
haldin veisla. Þetta var alveg
geysilega skemmtilegt”, segir
Þorvaldur G. Óskarsson for-
maður Heimis.
Heimismenn sungu fyrst á
Patreksfirði á fimmtudags-
kvöld, síðan í Bolungarvík á
föstudagskvöld, þá á Þingeyri
um miðjan dag á laugardag og
söngferðin endaði síðan með
konsert í nýju kirkjunni á Isa-
firði á laugardagskvöld. Þar
þurftu kórfélagar að bera til
stóla úr safnðarheimili í kirkj-
una til að sem flestir gætu
fengið sæti og var unnt að
koma fyrir um 500 manns, að
sögn Þorvaldar, en einhverjir
urðu frá að hverfa.
2 —K7eH£ÍM chjDI—
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 o
S<Q • ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
O • FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
mi
bílaverkstæði
Simi: 453 5141
Sæmundargala Ib 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
^Bílaviðgerðir Hjólbarðaviðgerðir
ríS Réttingar ^ Sprautun