Feykir - 17.06.1998, Qupperneq 2
2FEYK1R 23/1998
Fomleifauppgröftur
hafinn í Neðra-Ási
Flóttamennirnir koma
á sunnudaginn
Flóttamennimir 23 frá Kræ-
ínuhéaði í Júgóslavíu koma til
Blönduóss urn kvöldmatarleyt-
ið nk. sunnudag og efnir bæjar-
stjóm Blönduóss til móttöku
þeirra ásamt stuðningsfjölskyld-
um þeirra í félagsheimilinu.
Að sögn Jóns Inga Einars-
sonar, sem hefur haft yfimm-
sjón með verkefninu fyrir hönd
Blönduósbæjar, verður ferða-
lagið langt og strangt hjá fólk-
inu og má búast við að það
verði orðið þreytt þegar það
kemur, en það leggur af stað frá
sínum fyrri heimkynnunt
klukkan sex á laugardagsmorg-
un. Jón segir að undirbúningur
komu fólksins hafi gengið vel,
svo sem söfnun heimilismuna
sem Rauðikrossinn hefur ann-
ast. Það em sex júgóslavneskar
fjölskyldur sem koma á
Blönduóss, flestar af blönduð-
um hjónaböndum serba og
króata.
Fomleifauppgröftur er hafinn
í Neðra-Asi í Hjaltadal og er fyr-
irhugað að grafa upp í sumar tóft
þar sem er að finna menjar elstu
Stuðull
Tölvubúnaður
Borgarmýri 1,
sími 453 6676
Viðgerðarþjónusta
á sjónvörpum,
myndbandstækjum,
tölvum, prenturum
ogöðrum
rafeindatækjum.
Verð kr. 16.900
Úrval af nýjum
leikjum
Nokia 3110
Frábær GSM sími
Þyngd: 187 gr.
Rafhlaða: 95 klst. bið,
2,45 klst. tal.
Kr. 19.900
kirkju landsins að talið er, sem
fomsögulegar heimildir greina
frá að Þorvaldur Spakböðvars-
son hafi látið byggja snemma í
kristni. Uppgröftur f tóftum svo-
kallaðs „Bænhúss” sl. sumar,
sem Sigurður Bergsteinsson
fomleifafræðingur stjómaði,
staðfesti að undir tóftinni höfðu
áður staðið a.m.k. tvö hús og
benti margt til þess að það eldra
væm menjar hinnar fomu kirkju
í Neðra-Ási.
Það var Þór Magnússon þjóð-
minjavörður sem hóf rannsókn-
imar í Neðra-Ási sumarið 1984,
en þá gekk hann úr skugga urn
að kirkjugarður væri í kringum
svokallaða,J3ænhússtóft” skammt
fyrir ofan bæinn í Neðra-Ási. Er
ætlunin í sumar að gera athugun
á því hversu margar grafir em
nákvæmlega í kirkjugarðinum
og reynt verður að áætla á hvaða
tímaskeiði greftranir fóm fram.
Alþingi hefur veitt fé til rann-
sóknanna og fáist frekari fjárveit-
ingar er reiknað með að grafim-
ar verði rannsakaðar sumarið
1999 og munu þær athuganir
miða að því að auka þekkingu á
næringu og heilsufari miðalda-
manna í Hjaltadal”, segir m.a. í
tilkynningu ffá Fomleifastofnun
sem annast rannsóknimar í
Neðra-Ási, en þeim stjómar Orri
Vésteinsson fomleifafræðingur.
í ljósi 1000 ára afmælis
kristnitöku á Islandi eru rann-
sóknimar í Neðra-Ási taldar
mjög mikilsverðar. Forráðamenn
Fomleifastofnunar vonast til þess
að þær geti orðið mikilvægur
vitnisburður um trúarhætti og
kristna siði fyrstu kynslóða við
upphaf kristni í landinu. Einnig
að þær varpi ljósi á upphaf
kirkjubygginga á Islandi og notk-
un heimiliskirkna á 11.-13. öld.
Þær létu sig ekki vanta á hátíðarfundinn í Gilssofu gömlu kempurnar Guðjón Ingimundarson
og sr. Gunnar Gíslason, sem um árabil höfðu afskipti af pólitíkinni, Kári Steinsson og hjá þeim
í horninu á Gilsstofuloftinu sat Helgi Sigurðsson á Reynistað, sem er fyrsti varamaður Sjálf-
stæðisflokksins í sveitarstjórn.
Skemmtilegast á hestbaki
Nú í vetur hefur dvalið hér á
Sauðárkróki skiptinemi frá
Austurríki, Manuel að nafni.
Manuel er einn 40 skiptinema
sem komu til íslands s.l. haust
og lék okkur forvitni á að vita
svolítið meira um hann og
hans dvöl hér, en nú fer að
koma að því að skiptinemarn-
ir snúi heim. Við spjölluðum
við Manuel og fer viðtalið hér
á eftir. Þess má geta að eftir
árið talar Manuel mjög góða
íslensku, er búinn að ná nær
fullkomnu valdi á málinu.
Hvað finnst þér skemmtileg-
ast að gera hér á Islandi?
„Það er skemmtilegast að fara
á hestbak, því að hér er hægt að
fara hvar sem er, það eru ekki
fyrirfram ákveðnar götur sem
maður þarf að fara eins og heima
í Austumki. Ég á hesta þar,
þannig að ég er vanur hestamað-
ur og þetta er aðaláhugamálið.
Einnig fannst mér mjög
Manuel Schulz, skiptnemi,
lagði sig eftir að kynnast
ýmsu. Hér er hann í laufa-
brauðsgerð.
skemmtilegt að fara á böllin hér,
þau eru mjög skemmtilegt og
mikið ljör á þeim.”
Manuel gekk mjög vel í skól-
anum og við skólaslitin fékk
hann viðurkenningu og var hon-
um þökkuð ánægjuleg kynni og
óskað velfamaðar í framtíðinni.
Þess má einnig geta að Fjöl-
brautaskólinn hefur staðið vel
við bakið á þeim skiptinemum
sem hingað hafa komið og er það
vel. En hvemig fannst honum
skólinn?
„Hann var mjög góður. Það er
meira frelsi hér en heima, hér
getur maður valið meira um
námsgreinar. Það sem mér fannst
skemmtilegast að læra var
franskan.”
Hvemig fannst þér íslenski
maturinn?
„Það sem mér fannst best var
skyrið, það er alveg frábær mat-
ur. Einnig pönnukökumar, þær
em alltaf góðar. Ég smakkaði há-
karl og brennivín, sem mér
fannst ágætt, en slátur er ekki að
mínu skapi.”
Manuel er ekki alveg ókunn-
ur Islandi, því að bróðir hans
dvaldi hér sem skiptinemi fyrir
fjómm ámm á Patreksfirði og
sjálfur var Manuel hér fyrir
tveimur ámm. Það sem kom
honum mest á óvart var að hér
em unglingamir meira sjálfstæð-
ir heldur en heima í Austumki.
Hver em framtíðaráformin?
„Þegai' ég kem heim þá klára
ég skólann, sem er menntaskóli,
og fer svo f herþjónustu í átta
mánuði, en hún er skylda í Aust-
urríki. Eftir það er svo allt óá-
kveðið, kannski fer ég í Háskóla
og kannski fer ég og læri að Hól-
um í Hjaltadal. Ég vil þakka öll-
um fyrir ánægjulegt skiptinema-
ár og þá sérstaklega fjölskyld-
unni minni, þeim Guðbjörgu,
Palla og Auði.”
Með þessum orðum kveðjum
við Manuel, og óskum honum
góðs gengis í framtíðinni.
Kannski eigum við eftir að sjá
hann aftur hér í Skagafirði, sem
hestabónda á góðri bújörð!
Nú leitar AFS að fjölskyldu
fyrir skiptinema á Sauðárkróki
eða nágrenni. Þetta er frábært
tækifæri til að kynnast nýju landi
og nýrri menningu án þess að
fara úr landi. Við viljum benda
fólki á að allar upplýsingar um
AFS skiptinemasamtökin er
hægt að fá hjá Debbie í síma
453-6097 eða hjá Ásdísi í síma
453-5045.
PlayStarion
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf.
Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box4,
550 Sauðárkróki. Síinar: 453 5757 og 453 6703.
Myndsími 453 6703. Farsími 854 62()7. Netfang:
feykir @ krokur. is. Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson.
Fréttaritari: Öm Þórarinsson.
Blaðstjóm: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guð-
brandsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður
Ágústsson og Stefán Ámason.
Áskriftarverð 170 krónur hveit tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og
umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svait hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs-
fréttablaða.