Feykir - 17.06.1998, Page 3
Björgunarsveitin Káraborg
23/1998 FEYKIR 3
Lokaátak í söfnun
til kaupa á nýjum
björgunarbáti
I tengslum við sjómanna-
daginn á dögunum hratt
Björgunarsveitin Káraborg á
Hvammstanga af stað söfn-
unarátaki til kaupa á björgun-
arbáti. Sveitin á einungis
gúmmíbjörgunarbát frá árinu
1974 sem kominn er til ára
sinna og að auki ekki talin
hentugur til síns brúks. Káta-
borg hefur gert pöntun ásamt
tveim öðrum björgunarsveit-
um í landinu, í Sandgerði og á
Arskógsströnd, í fullkomna
björgunarbáta, harðbotna báta
með kjöl og tvo 70 ha utan-
borðsmótara, og er gangur
þessara báta um 30 sjómílur á
klukkustund við bestu aðstæð-
ur.
Að sögn Gunnars Jakobs-
sonar varaformanns Káraborg-
ar eru bátamir þrír keyptir frá
Bretlandi og koma þaðan í
tveimur hlutum. Þeir verða
settir saman syðra undir eftirliú
Slysavamarfélagsins, og verða
væntanlega tilbúnir til af-
greiðslu fullbúnir, um eða upp
úr næstu áramótum. Áætlað
brúttóverð hvers báts er 2,3
milljónir.
Gunnar sagði í samtali við
Feyki að undirbúningur fyrir
kaupin á bátnum hafi byijað
1992, eða fyrir sex ámm.
Dósasöfnun björgunarsveitar-
innar hefur mnnið til kaupa á
bátnum og nú verður fjár-
mögnun lokið með söfnunar-
átaki. Hafa sparibaukar verið
sendir inn á hvert heimili í Vestur
- Húnavatnssýslu og í Bæjar-
hreppi.
„Okkur fannst nauðsynlegt
að ljúka þessu núna, en með
dósasöfuninni hefði þetta tekið
mörg ár í viðbót. Það er líka
orðið mjög brýnt að fá nýjan
björgunarbát sagði Gunnar.
Starfsmenn Sauðárkróksbæjar hafa farið vítt og breitt
um bæinn að undanförnu og endurnýjað akbrautamerk-
ingar, en það er eitt af því tilheyrir þeirra vorverkum. Það
var stutt að fara fyrir ljósmyndara Feykis til að festa á
filmu þá Jón Odd Þórhallsson og Stein Ásvaldsson þar
sem þeir voru að enda við að endurmerkja Ægisstíginn.
Auglýsing í Feyki ber árangur
T
Á myndinni eru frá vinstri form. Skagfirðingasveitar Andri Gíslason og hluti sjóflokks í nýju
göllunum, þá fulltrúar gefenda Stefán Pálsson og Steingrímur Garðarsson og varaform.
Skagfirðingasveitar Steinar Pétursson.
Eigendur dekk- og smábátanna
gefa Skagfirðingasveit flotgalla
Þann 9. júní vom Skagfirðingasveit SVFÍ enduráSkagaogSauðárkróki.
Sauðárkróki gefnir ljórir þurrbúningar og björg- Stjóm Skagfirðingasveitar þakkar þessar
unarvesti. Áhafnir rækjubátanna Jökuls SK-33, rausnarlegu gjafir sem munu koma að góðum
ÞórisSK-16ogSandvíkSK-188gáfusinngall- notum, segir í tilkynningu frá björgunar-
ann hver. Fjórða gallann gáfu tíu smábátaeig- sveitinni.
Bændur birgið ykkur
upp fyrir heyskapinn!
Rúllubaggaplastið góða og ódýra
fáið þið hiá okkur.
Verðið á plastinu er sem hér segir:
50 cm 1800 lengdarmetrar, kr. 5.148, 36 rúllur á pallettu
75 cm 1450 lengdarmetrar, kr. 6.406, 30 rúllur á pallettu.
Veittur er 4% afsláttur ef tekin er ein palletta eða meira.
Einnig erum við með bindigarn sem reynst hefur mjög vel á
íslandi og kostar pakkinn af garninu kr. 2.615.
Þá eigum við hreinsiefni sérstaklega ætluð fyrir landbúðað,
einkum mjólkurbændur!
Bændur! Við heitum vkkur góðri þiónustu!
Nú er sólin stöðugt að hækka á lofti!
Grillvörurnar og nánast allt sem tengist
sumarfríinu færðu hjá okkur!
Olís-umboðið á Sauðárkróki
Verslun Haraldar Júlíussonar
Aðalgötu 22, sími 453 5124