Feykir - 17.06.1998, Blaðsíða 4
4 FEYKIR 2V1998
„Nauðsynlegt fyrir svæðið að við mimium á okkur“
segir Bjöm Hannesson íramkvæmdastjóri smnarhátíðarimiar Bjartra nátta sem nú er haldin í fimmta sinn
„ Við verðum vör við það að fólk kemur hingað til okkar og þeir
viðburðir sem boðið er upp á trekkja. Bjartar nætur eru núna
haldnar í fimmta sinn og það er mín skoðun að það sé
nauðsynlegur hluti menningar á þessu svæði að minna á okkur
og skapa þá afþreyingu sem ferðafólk vill gjaman fá. Það eru
margir sem leggja leið sína til okkar, t.d. fjöldinn allur í tengsl-
um við ættarmót sem haldin em hér á svæðinu á hverju ári. Þetta
verðum við að halda í og kappkosta að gera fólkinu dvölina eft-
irminnilega”, segir Bjöm Hannesson ritstjóri á Laugarbakka,
framkvæmdastjóri sumarhátíðarinnar Bjartra nátta, sem Vestur-
Húnvetningar halda nú í fimmta sinn. Þetta er í annað sinn sem
Bjöm hefur umsjón með þessari hátíð. Fyrstu þrjú árin var Karl
Sigurgeirsson helsti forsvarsmaður.
Það verður ekki annað sagt en Vest-
ur-Húnvetningar hafi sýnt stórhug þeg-
ar þeir brydduðu upp á „Björtum nótt-
um” á sínum tíma og enn er boginn
spenntur hátt. Nýútkomin dagskrá fyrir
sumarhátíðina sýnir að fjölbreytnin er
ekki síður í fyrirrúmi nú en fyrr.
„Við höfum haldið okkur við nokkra
fasta liði sem gefist hafa vel. Þar má
nefna hlaðborðið og hátíðina við Ham-
arsbúð á Vatnsnesi, þar sem jafnan mæta
um 500 manns. Þetta þykir mjög sér-
stæð skemmtun og veisla sem þama er
boðið upp á og fólki finnst forvitnilegt
og skemmtilega að koma á Vatnsnesið.
Víðdælingamir em mikið í hesta-
mennskunni og það hefur tekist vel og
skapast stemmning í kringum hesta-
skemmunina sem þeir standa fyrir.
Við ætlum að gera sögupersónunni
Gretti Ásmundarsyni frá Bjargi hátt
undir höfði. Við byrjuðum í fyna með
dagskrá á Bjargi í Miðfirði og höldum
því áfram í ár.
Þá höfum við hug á því að auglýsa
byggðasafnið svolítið upp. Við eigum
mjög gott byggðasafn á Reykjum í
Hrútafirði sem alltof fáir vita af. Við efn-
um til „dags í byggðasafni” og verðum
með viðburði bæði innan og utan dyra.
Þá verður tónlistinni gert hátt undir
höfði eina helgi í sumar. Við fáum góða
gesti í heimsókn og ég á von á því að
það geti orðið góð stemmning hjá okkur
þessa daga, en aðallega verður það tón-
listarfólk héðan á svæðinu sem sér um
að skemmta gestum og gangandi. Þar
verður ljölbreytnin ríkjandi. Við gerum
okkur vonir um að þetta geti orðið nokk-
uð stór helgi hjá okkur í byijun júlí, en
um þessa helgi var atvinnulífssýnigin
hjá okkur í fyrra. Þá sýningu sótti um
Gestir Bjartra nátta gæða sér á kræsingum af hlaðborðinu í Hamarsbúð.
2500 manns og var það mjög
eftirminnileg og skemmtileg helgi bæði
fyrir gesti og sýnendur”, segir Bjöm
Hannesson þegar hann drepur á helstu
liðum Bjartra nátta.
í sérlega glæsilegum upplýsingabæk-
lingi um sumarhátíðina, sem margar
gullfallegar myndir prýðir er Jón Eiríks-
son bóndi og listamaður á Búrfelli hefur
tekið, fylgir einnig með skrá yfir öll al-
vöm sveitaböll sem haldin em í sýslunni
í sumar, messur og réttardaga haustsins.
Með því síðasta sem ferðamönnum um
Vestur-Húnavatnssýslu er boðið að taka
þátt í er stóðsmölun í landi Gafls og
Krókslands, en færst hefur í vöxt á síð-
ustu ámm að fólk víðs vegar að vilji taka
þátt í störfum heimamanna við stóðrétt-
ir. Gangnamenn í Víðidal leggja af stað
árdegis þar sem farið verður á vit ftjáls-
ræðis heiðanna og stóðið sótt og rekið til
byggða.
Bjartar nætur Dagskrá sumarhátíðar
Hamarsbúð á Vatnsnesi, Laugardaginn
20. júní.
Kl. 19,00 hefst árleg hátíð í Hamarsbúð
með hinu glæsilega og sérstæða hlaðborði
þar sem húsmæður á Vatnsnesi taka á móti
gestum. Auk veitinga verður spákona á
staðnum, bögglauppboð og sönghópurinn
Norðanátt mun syngja nokkur lög. Þá
munu tónlistamenn úr sýslunni skemmta
gestum fram á nótt. Sérstæð stemmning í
óvenjulegu umhverfi.
Víðidalur, dagur hestamana, laugar-
daginn 27. júní.
Kl. 11-18 handverksýning í Víðihlíð.
Kl. 20,00. Hestasýning, kvöldskemmtun
að Stóru-Ásgeirsár. Keppt verður í skeiði
þar sem hylltur verður skeiðmeistari
Húnaþings, hindrunarstökk, ýmsir leikir
og uppákomur. Grillveisla, brekkusöngur
og dansað í tjaldi með hljómsveit Hjalta
Júlíussonar.
Hvammstangi, tónlistarhelgin ‘98 2.-5.
júlí.
Fimmtudagurinn 2. júlí.
Kl. 16,00. Opnun málverkasýningar í
VSP-húsinu þar sem Dóra Sigurðardóttir
sýnir verk sín.
Kl. 21,00. Tónlistarhelgin ‘98 hefst
með tónleikum landsþekktra listamanna. 1
Félagsheimilinu á Hvammstanga verða
tónleikar á vegum Bjartra nátta og Tónlist-
arfélags V.-Hún. þar sem söngkonumar
„Hann var lengi dags að fást við
steininn". Ein af skemmtilegum
myndum Jóns Eiríkssonar á Búr-
felli. Hún minnir á kraftakeppnina
að Bjargi 22. ágúst nk.
Guðrún Gunnarsdóttir og Berglind Björk
Jónsdóttir syngja ásamt hljómsveit sem
skipuð er þeim Pálma Sigurhjartarsyni,
Björgvin Plogder, Þórði Högnasyni og
Karli Olgeirssyni. Flytja þau gullfallega
tónlist úr kvikmyndum Walt Disney.
Föstudaginn 3. júlí. Útvarp Norður-
lands á Hvammstanga. Útvarpið verður á
staðnum og tekur púlsinn á mannlífinu
millikl. 12,45 og 19.
Kl. 14,00. Opnun málverkasýningar á
verkum Jóns Eiríkssonar á Hótel Seli.
Þetta kvöld verða opnir tveir staðir með
lifandi músík á Hvammstanga. Á Selinu
verður kaffihúsastemmning með Marinó
og Skúla og í VPS-húsinu verða tónleikar
þar sem hljómsveitin Vein mun spila.
Laugardagurinn 4. júlí.
Kl. 14. Tónlistardagskrá í Félagsheim-
ilinu Hvammstanga. Hljómsveit ásamt
Kirkjukór Hvammstangakirkju, Karla-
kómum Lóuþrælum og Lillukómum
koma fram ásamt hóp tónlistarmanna í
söng og hljóðfæraleik í blandaðri tónlist-
ardagskrá.
Kl. 15,30. Kaffileikhús á Selinu í hönd-
um Lcikflokksins á Hvammstanga, kaffi-
hlaðborð.
Kl. 21,00. Popp og dægurlagadagskrá
í umsjá hópsins „Á hálum ís”, sem sam-
anstendur af 8 manna hljómsveit ásamt
hóp söngvara úr héraðinu sem flytja dag-
skrá frá sjöunda og áttunda áratugnum.
Kl. 23-03. Stórdansleikur í félagsheim-
ilinu á Hvammstanga. Stjömuband Magn-
úsar Kjartanssonar, Gunnars Þórðarsonar,
Rúnars Júlíussonar, Helgu Möller og fleir-
um standa fyrir stanslausu stuði fram á
rauða nótt.
Héraðsmót USVH Kirkjuhvammsvöllur.
Föstudaginn 10. júlí. Keppni hefst í
frjálsum íþróttum, allir aldursflokkar.
Laugardagurinn 11. júh'. Kl. 11. Fótbolta-
keppni yngri flokka á Mjólkurstöðvartúni.
Kl. 12,30. Skrúðganga frá Mjólkurstöð að
Kirkjuhvammsvelli. Kl. 13. Mótssetning.
Gestur mótsins verður Jón Amar Magnús-
son íþróttamaður ársins ‘97 og hitar hann
upp með keppendum. Kl. 18. Verðlauna-
afhending og móksslit ásamt grillveislu.
Hrútafjörður - sunnudagsbíltúr fjöl-
skyldunnar. Sunnudagurinn 12. júh'.
Kl. 13-18. Dagur í Byggðasafni Hún-
vetninga og Strandamanna. Kl. 14-16.
Bátsferðir á vegum Bjöigunarsveitar S VFI
Káraborgar ffá Reykjaskóla í Hrútey með
leiðsögn þar sem litið verður á fuglalífið
og eyjan skoðuð.
Kl. 15-16,30 verða sýnd vinnubrögð
gamalla tíma í réttu umhverfi, s.s. sláttur
og hirðing heyja og tóvinna í baðstofu. I
Byggðasafninu er margt fróðlegra og eft-
irtektarverðra muna sem vert er að skoða.
Söngur og hljóðfæraleikur, veitingar.
Aðrir athyglisverðir liðir sumarhátíðar-
innar eftir að skyggja tekur og nætur em
ekki lengur bjartar:
Laugardagur 15. ágúst. I tilefni 60 ára
afmælis Félagsheimilisins Víðihlíðar em
áformuð hátíðahöld 17. helgi sumars þ.e.
15. ágúst nk.
Fyrir alllöngu komst sú hefð á að
skipta helgum sumarsins milli félagsheim-
ilanna í V.-Hún. og hefur þessi helgi, 17.
helgin ætíð skipað veglegan sess í
skemmtanahaldi Húnvetninga sem helgi
stórdansleikja í Víðihlíð. Um miðjan dag-