Feykir - 17.06.1998, Page 5
23/1998 FEYKIR 5
Reiðskóli Ingimars
15 ára í sumar
Eitt af því sem bömunum á Króknum gefst möguleiki á
að prófa, er að læra að sitja hest og fara í útreiðartúra. Ingi-
mar Pálsson hefur starfrækt reiðskóla frá sumrinu 1983.
Þannig að nú í sumar verða 15 ár liðin ifá stofnun skólans
og hefur Ingimar tekist að halda kennslunni úti hvert sum-
ar frá því hann byrjaði. - En þegar hann er spurður að því
hvort reiðskólinn sé ekki komin til að vera eftir þessi 15
ár segir hann að það sé ekkert sjálfgefið. Reksturinn sé
erfiður og í raun ekkert út úr þessu að hafa. Raunar ætti
hann af þeim sökum að vera hættur fyrir þónokkm, en það
sé bara þráinn sem hafí haldið honum við þetta og svo hitt
að greinilegt sé að krakkamir vilji alls ekki missa reið-
kennsluna, en það mun ekki vera óalgengt að krakkamir
komi oftar en einu sinni í Reiðskólann.
Þegar Ingimar byijaði reið-
kennsluna 1983 hafði engin
kennsla verið í um 10 ár eða frá
því að Friðrik heitinn Mar-
geirsson var með reiðnámskeið
á vegum Hestamannafélagsins
Léttfeta.
„Eg fór af stað með tvö
námskeið í ágúst 1983. Sumar-
ið eftir jók ég starfsemina og
það sumar sóttu urn 100 krakk-
ar námskeiðin. Það var meiri
aðsókn í þetta þessi fyrstu ár,
enda nokkuð liðið frá því að
krökkunum gafst kostur á því
að læra að meðhöndla hesta.
Þess vegna var líka um breiðari
aldurshóp að ræða í skólanum
fyrstu árin. Síðan dró heldur úr
aðsókninni en síðustu árin hafa
þetta verið að jafnaði um 50
krakkar á ári sem hafa sótt
námskeiðin og mest eru þetta
yngri krakkamir”, segir Ingi-
mar.
- Nú þarft þú væntanlega að
vera með fjöldann allan af
þægum barnahestum sem
kannski nýtast þér ekki mikið í
önnur verkefni?
„Já ég er með svona 10-15
hesta fyrir Reiðskólann og það
er dýrt að halda þessu úti. Þetta
em hestar sem nýtast mér lítið í
oT] i
* t
■ EC
Búið að ganga frá reiðtygunum á hestunum, komin á bak
og þá er bara að halda af stað.
inn verða ýmsar uppákomur í
Víðihlíð í tilefni afmælisins og,
verður það nánar auglýst síðar.
Kl. 23-03 verður stórdansleikur
með Hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar þar sem Geirmundur
mun spila á 200. dansleik sínum
í Víðihlíð. Er þetta kjörið tæki-
færi fyrir alla unnendur sannra
sveitaballa, og danssveiflu, að
skella sér á eitt slíkt.
Grettisvaka
Laugardaginn 22. ágúst verð-
ur efnt til Grettisvöku í Miðfirði.
Vettvangsferð um slóðir Grettlu
kl. 10. Um kvöldið verður mál-
þing um Grettissögu og kvöld-
vaka ásamt kvöldverði á Brekku-
læk, þar sem einnig verður gist-
ing í boði. Nánari upplýsingar og
pantanir em hjá Döggva sf, Karli
Sigurgeirssyni í síma 451 2602
og hjá Ferðaþjónustu Arinbjöms
á Brekkulæk í síma 451 2938.
Ath. Hámarksfjöldi þátttakenda
er um 20 manns.
Hálandaleikar
Grettiskeppni að Bjargi,
sunnudaginn 23. ágúst
Keppni í anda Grettis sterka
frá Bjargi. Hjalti Ursus Amason
og Auðunn Jónsson, ásamt fleiri
aflraunamönnum og þungavigt-
armönnum úr héraði munu
keppa og sýna aflraunir.
Nú í sumar em þau tímamót í
sögu Ungmennafélagsins Grettis
að 70 ár em liðin frá stofnun
þess. Þennan sama dag, 23.
ágúst, verður vígður nýr íþrótta-
völlur við Laugabakkaskóla sem
Ungmennafélagið Grettir í Mið-
firði hefur unnið að á síðustu
ámm. Tímasetning á dagskrá
verður auglýst síðar.
Ingimar og Reiðskólinn á sinni venjulegu Ieið neðan frá Flæðigerði, riðið meðfram Sauð-
ánni og síðan er för heitið upp Gr jótklaufma og upp á Nafir.
annað, aðeins í hestaleigu í
tengslum við sumarhótelið
handa fullorðnu fólki sem er
óvant hestum, en það er óskap-
lega litil eftirspum eftir því.
Það hefur því oft verið spurs-
mál hjá mér hvort ég eigi að
halda þessari starfsemi áfram.
Það hefur ekki verið mikill
stuðningur sem ég hef fengið
með starfseminni frá bæjaryfir-
völdum, en reyndar hækkaði
styrkurinn núna seinast. Það
veitti ekki af einhverri starf-
semi með Reiðskólanum sem
styrkti þetta, ef möguleiki væri
á slíku”, segir Ingimar Pálsson,
en þess má geta að komið hef-
ur til tals að bjóða fötluðum
upp á afþreyingu í hesta-
mennsku. Hvort það kemst á
framkvæmdastig eða er fram-
kvæmanlegt, á eftir að koma í
ljós.
Gaman í reiðskólanum
Brynja Skjaldardóttir 11 ára
stelpa úr Reykjavík er ein af
þeirn sem er í Reiðskólanunr
hjá Ingimar í sumar. Þetta er í
annað skipti sem Brynja er í
reiðskólanum og henni var víst
búið að hlakka mikið til að
koma norður lil afa og ömmu
og fara í Reiðskólann.
„Já það er alltaf gaman í
Reiðskólanum og ekki síður
héma heldur en hjá Fák í
Reykjavík, en ég hef verið þar
tvisvar líka. Jú ætli megi ekki
segja að ég sé algjör hesta-
dellukelling. Það er gaman að
koma norður og vera í hestun-
um með afa”.
Og hvað er það sem krakk-
ar læra í reiðskólanum?
„Við lærum að sitja hestinn
og stjóma honum. Við fáum
heinr með okkur litla bók, þar
sem allt er að fmna í sanrbandi
við hestinn. Þar lærum við allt
um reiðtygin og hvað allt heit-
ir á hestinum. Síðan lærum við
að beygja á hestinum, sitja rétt
og svo fylgjast kennararnir
með okkur, lfka þegar við tök-
urn hnakkinn af, en það er
alltaf endað á því í lokin. Síðan
endar skólinn alltaf á því að við
förum í langan útreiðartúr. Og
það er það allra skemmtilegsta
í skólanunr, finnst mér”.
Hvað heitir hesturinn sem
þú er á?
„Hann heitir Mósi og er
rosalega góður hestur”, sagði
Brynja og nú var konrið að því
að nða af stað frá hesthúsun-
um. Þess rná að endingu getá
að lokaútreiðartúr þessa nám-
skeiðs var sl. laugardag. Lagt
var af stað frá hesthúsunum unr
eittleytið og riði upp Göngu-
skörð og út á Laxárdalsheiðina.
Komið var heim á sjöunda tím-
anum um kvöldið.
Stórleikur á Sauðárkróksvelli
Tindastóll - Leiftur
í 32-liða úrslitum Bikarkeppni KSÍ
þjóðhátíðardaginn 17. júní kl. 20.
Missið ekki af þessum spennandi
og skemmtilega leik.