Feykir - 17.06.1998, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 23/1998
Á ferð til fortíðar
Nýlega hélt samstarfshópur um
söguslóð í Skagafirði og Siglufirði
kynningarfund í Komhúsinu í Arbæjar-
safni í Reykjavík. Hópinn skipa fulltrú-
ar eftirtalinna stofnana sem í samein-
ingu hafa ákveðið að standa vörð um
menningararfleifð þessa sögufræga
svæðis: Byggðasafns Skagfirðinga,
Bændaskólans og Ferðaþjónustunnar á
Hólum, Iðnaðarmannfélags Sauðár-
króks, Vesturfárasetursins á Hofsósi og
Síldarminjasafnsins á Siglufirði.
Á fundinum var kynnt söguslóð sem
liggur um Skagafjörð til Siglufjarðar.
Hver staður hefur skírskotun í Islands-
söguna og með því að fara frá einum
stað til annars verður til slóð, þar sem
unnt er að nálgast hvem stað átfrá þessu
sérstaka sögulega samhengi. Hægt er að
ferðast frá gamla bændasamfélaginu til
upphafs nútíma og kynnast í sviphend-
ingu Ijörbrotum þúsund ára þjóðfélags.
Sem dæmi ná nefna, að gamli bær-
inn í Glaumbæ gefur innsýn í þúsund
ára aðlögun þjóðar í torfbæjununr, að-
búnað fólks og Iifnaðarhætti þess. Á
Hólum í Hjaltadal stendur steinhlaðin
dómkirkja, vitnisburður glæstrar fortíð-
ar, menningarsetur í fortíð og nútíð, sem
stóð vörð um samfélagið. Þar sátu bisk-
upar og skólamenn og þaðan lágu
straumar í allar áttir til þegna biskups-
dæmisins.
Á Sauðárkróki eru tvær smiðjur;
eldsmiðja bóndans, sem lagaði sig að
nýjum lífsháttum á mölinni með því að
koma sér upp snriðju í kjallara íbúðar-
hússins og vélsmiðja, verkstæði hag-
leiksmanns á mótum tveggja tíma.
í Vesturfarasetrinu á Hofsósi er rak-
in saga þeirra sem yfirgáfu Island í leit
að nýjum tækifærum, fjallað um að-
draganda og helstu ástæður vesturferða,
skýrt frá undirbúningi ferðalagsins, að-
búnaði á útleið og þeim veruleika sem
beið handan hafsins.
Á Siglufirði er kynnt saga síldveiða
og áhrif þeirra á mannlíf um miðja öld-
ina. Þar var lagður grunnur að
nútímasamfélagi,eins konar upphaf
þeirra lífshátta sem við þekkjum í
neysluþjóðfélagi líðandi stundar.
Markmiðið með samstarfi milli
þessara fimm staða er að nýta þekkingu
heimamanna á þessum viðfangsefnum,
skóla-og ferðafólki til ánægju og fróð-
leiks. „Saga íslensku þjóðarinnar er
vannýtt auðlind og viljum við stuðla að
sterkari tengslum á milli fræðimanna,
skóla og safna í þeim tilgangi að efla og
auðga sögufræðslu fyrir jafnt innlenda
sem og erlenda ferðamenn er kjósa að
heimsækja Skagafjörð og Siglufjörð,
bæði til fróðleiks og skemmtunar”,
sagði í tilkynningu frá hópnum, en
framsögumenn á kynningarfundinum á
Kornhúsinu voru: Sigríður Sigurðar-
dóttir safnstjóri sem kynnti samstarfs-
vettvang áður nefndra stofnana, starf-
semi Byggðasafns Skagfirðinga og
smiðjumar tvær á Sauðárkróki. Guðrún
Þóra Gunnarsdóttir ferðaþjónustufull-
trúi kynnti Hóla í Hjaltadal. Vigdís
Esradóttir upplýsingafulltrúi kynnti
Vesturfarasetrið á Hofsósi. Örlygur
Kristfinnson safnstjóri kynnti Síld-
arminjasafnið á Siglufirði og fór
nokkrum orðum um nýútkomið kort,
sem vísar til söguslóðar um Skagafjörð
til Siglufjarðar. Deborah Robinson
ferðamálafulltrúi Skagaíjarðar kynnti
aðra ferðamöguleika og afþreyingu á
svæðinu og Ijallaði um nrikilvægi sam-
vinnu af þessu tagi.
íslandsmótið 2, deild
Tindastólsmenn með
mikilvægan sigur á Leikni
Tindastólsmenn unnu mikilvægan
sigur á Leiknismönnum í fímmtu um-
ferð 2. deildarkeppninnar í knattspymu
sl. laugardag. Tindastóll er nú í 2.-3. sæti
deildarinnar ásamt Dalvfldngum með 12
stig. Víðismenn eru efstir með 15 stig.
Næsti leikur Tindastóls er í kvöld 17.
júní gegn Leiftursmönnum í Bikar-
keppninni, en í deildinni gegn Siglfirð-
ingum á Króknum fimmtudagskvöldið í
næstu viku. Það verða því tveir derbí-
leikir í röð á Sauðárkróksvelli.
Tindastólsmenn voru mun betri aðil-
inn í fyrri hálfleik leiksins í Breiðholtinu
gegn Leikni. Eftir um það bil stundar-
fjórðung skoraði Sverrir Þór Sverrisson
fyrsta mark leiksins og skömmu síðar
bætti Jóhann Steinarsson við öðm marki
fyrir Tindastól. Þegar dómarinn var í
þann mund að flauta til leikhlés tókst
Leiknismönnum hins vegar að nrinnka
muninn og strax íbyrjun seinni hálfleiks
jöfnuðu þeir metin. Tindastólsmenn
vom samt ekki af baki dottnir og sýndu
sitt andlega þor og samstöðu með því að
ná að skora um miðjan hálfleikinn. Var
Kristmar Bjömsson þar að verki. Og
þótt sunnanmenn reyndu hvað þeir gátu
að jafna að nýju vom Tindastólsmenn
vel á verði með þjálfarana Olaf og Gísla
sem öftustu menn og náðu að innbyrða
kærkominn sigur.
Guðjón Jóhannsson miðvallarleik-
maðurinn sterki meiddist í leiknum og
ekki er Ijóst hvort hann gætur tekið þátt
í bikarleiknum. Þá var Helga Jónssyni
vikið af velli um miðjan seinni hálfleik-
inn og var það ósanngjamt að mati
Tindastólsmanna. Þá fékk Hilmar Hilm-
arsson að líta sitt fjórða gula spjald í
jafnmörgum leikjum og kemur það
kannski fæstum á óvart, að sá barátt-
uglaði vamarleikmaður fer snemma í
leikbann þetta árið. Það verður þegar
Siglfirðingar koma í heimsókn í næstu
viku.
Sigfirðingar hafa heldur misst flugið
í síðustu leikjum. Þeir töpuðu eins og
Tindastóll í fjórður umferðinni, 1:5 gegn
Víði efsta liði deildarinnar. í síðustu
umferð gerði KS síðan jafntefli við
Völsung 1:1 á Siglufirði.
Claumbcr Burndur og bímaður i luísund Ara bmdasamfélagi.
Hólar. D&mkirkja og mrnningarsrtur biskupa og bxnda um atdir.
Vesturfarasctriö á HofsósL Fimmtungur tslrndinga fóri vit nýrra
tækifxra i Vrsturlirimi.
Sauðárkrókur. Mótun þtttbýlis. Fri tldsmiðju bóndans til vélsmiðji
iðnvæðingarirmar.
Síldarminjasaf nið á SiglufirðL Ævintýri nýrrar vélaaldar, þrgar
hilfþjóðin vari síldinni. Vinnubrögðin, stritið, lífsgleðin.
Örlygur Kristfinnsson listamaður á Siglufirði og starfsmaður Síldarminjasafns-
ins hefur gert skcmmtilcgt kort af söguslóðinni, með mikilli skírsktoun í söguna
m.a. þjóðsögumar. Kort þetta er jafnframt póstkort og á sjálfsagt eftir að verða
mjög vinsælt og fágætt þegar fram líða studir.
Lónkot í Sléttuhlíð.
Sólstöðuhátíð í tjaldi
galdramannsins í Lónkoti
Dagana 19.-21. júní verður haldin
sólstöðuhátíð í stærsta tjaldi landsins að
Lónkoti í Skagafirði. Fram koma
hljómsveitimar Casino og Sixties,
Karlakór Akureyrar, Geysir, Jóhann Már
Jóhannsson, Blönduhlíðarkvartettinn og
Kirkjukór Sauðárkróks. Tjaldið var reist
í fyrrasumar og um vígt á sólstöðum.
Ráðgert er að hátíð um sólstöður verði
árviss viðburður. (fréttatilkynning)
Feykir óskar lesertdum sínum
gleðilegs þjóðhátíðadags