Feykir - 17.06.1998, Page 8
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra
17. júní 1998, 23. tölublað, 18. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
KJORBOK
Vinsœlasti sérkjarareikningur Islendinga
með hœstu ávöxtun í áratug!
Landsbanki
jsiands JPH
í forystu tll framtfðar
^JJtttJúlð á Sauðárkróki - S: 453 53Í
Hagstætt tíðarfar við gerð snjó-
flóðavamagarðanna á Sigtuflrði
Framkvæmdum við gerð Norðurgarðs Sauðárkrókshafnar
miðar vel. Verktakinn, Steypustöð Skagatjarðar, hefur lokið
við að leggja kjama garðsins og næst verður hafist handa við að
raða stórgrýti, sem ekið hefur verið á hafnarsvæðið, í klæðn-
ingu utan á k jarnann. Norðurgarðurinn er 60 metra Iangur,
en í fyrra var Sandfangarinn lengdur um 40 metra, þannig að
varnargarðarnir hafa verið Iengdir um 100 metra á einu ári.
Alkinn og Skagamenn
sækja fast sjóinn vestra
Þeim bregður sjálfsagt í brún
gestum sem koma til Siglu-
fjarðar í sumar, en búið er að
róta til miklum jarðvegi ofan
byggðar í fírðinum. Fyrir um
þrem vikum hófust fram-
kvæmdir við gerð snjóflóða-
vamargarða, mikilla mann-
virkja þar sem flytja þarf til
500 þúsund rúmmetra af
jarðvegi. Það var Héraðsverk
á Egilsstöðum sem átti lægsta
tilboðið í verkið upp á 225
milljónir og Austfirðingarnir
em mjög ánægðir með að
ekki skuli hafa komið dropi
úr lofti frá því verkið liófst,
meðan aðrir vonast eftir
vökvun, s.s. bændur sem bíða
eftir að túnin spretti.
, Já við lofúm hvem dag sem
ekki rignir, því það er þýðigar-
laust fyrir okkur að fást við jietta
þá daga sem rignir. Þá er betra
að bíða en að hræra í drullunni”,
segir Bjöm Sveinsson verk-
ffæðingur.
Sem fyrr segir er um mikil
mannvirki að ræða. Hæð garð-
anna er 16-18 metra ffá botni
flóðfarvegar upp á garðinn. í
topinn em þeir þrír metrar á
breidd en í botninn allt að 90
inetra breiðir. Garðamir em
tveir, svokallaður Strengsgils-
garður er 740 metra langur og
Jörundarskálaigarður 300 metrar.
Verkáætlun gerir ráð fyrir að
gerð garðanna verði lokið í sept-
emberlok 1999, með hléi á
ffamkvæmdum ffá októberbyij-
un til maíloka.
Að sögn Sigurðar Hlöðvers-
sonar bæjartæknifræðings á
Siglufirði hefur ffamkvæmdin
verið kynnt bæjarbúum og ekki
er annað að heyra en þeir hafi
trú á gagnsemi garðanna. Það
væri þá helst að fólk sé efins um
að strax og gerð garðanna ljúki
verði hafín uppgræðsla lands-
ins, en sá verkáfangi verður
boðinn út jægar þar að kemur
og reiknað með að uppgræðslan
hefjist vorið 2000. Það var Þor-
steinn Jóhannesson verkfræð-
ingur á Siglufírði sem sá um
forhönnun vamargarðanna á-
samt norskum sérffæðingi.
Verkfræðistofan Hnit sá um
gerð útboðsgagna og Línuhönn-
un í Reykjavík annast eftirlit
ffamkvæmda. i—i
„Talaða endilega við þá á
Alkanum af Króknum. Þar er
fféttin um menn sem sækja fast
sjóinn. Það er ekkert að miða
við okkur sem emm á nýlegum
bátum með öllum þægindum”,
sagði Þorleifur Ingólfsson á
Þorbjargarstöðum á Skaga en
þrír bátar af Skaganum og einn
af Króknum em komnir til
veiða vestur á fírði og hafa ver-
ið að mokveiða.
Stærsti hluti smábátaflota
landsins er kominn vestur og
flestir róa ffá Bolungarvík.
Það vom þeir á Alkanum á
Sauðárkróki, Guðmundur
Amason og Björgvin Guð-
mundsson, sem riðu á vaðið og
fóm vestur fyrir hálfum mán-
uði. Förin vestur tók Alkann 30
tíma, en hinir bátamir hafa ver-
ið að sigla jtessa leið á 10-12
tímum. „Við vomm samt mjög
heppnir með veður en báturinn
gengur bara ekki hraðar en
þetta. Og þó það fari miklu
meiri tími í keyrslur hjá okkur
en hinum bátunum, þá er þetta
búið að ganga mjög vel á jjess-
um á hálfum mánuði sem við
emm búnir að vera á veiðum.
Ætli við séum ekki búnir að fá
um 10 tonn og veðrið hefur
leikið við okkur. Jú jjetta er líf-
ið þegar svona gengur”, sagði
Björgvin Guðmundsson, sem
skrapp heim á Krók til að vinna
í nokkra daga, en síðan á að
drífa sig strax vestur.
Að sögn Þorleifs Ingólfsson-
ar á Þorbjargarstöðum hafa
menn verið að fá eins og bátam-
ir hafa borið, að jafnaði tvö tonn
þeir bátar sem bera svo mikið,
eins og hans bátur og Ingólfs
Sveinsonar í Lágmúla. Hrauns-
báturinn ber aftur á móú minna,
en jieir Hraunsmenn hafa fiskað
ágætlega. Þorleifur á Þorbjarg-
arstöðum skrapp heim til að
koma áburinum á túnin, en
strákmir hans em að fiska á
meðan. Síðan ætlar Þorleifur að
drífa sig vestur afitur. Þannig búa
jteir til lands og sjávar á Skag-
anum.
Helgi Hrafnkelsson og félagar hjá Héraðsverki hafa dásamað
hvern rigningarlausan dag. Búið er að róta til stórum hluta
fjallshlíðarinnar ofan byggðarinnar. Mynd/Öþ.
Endurhæfíngarstöð Sjúkrahúss Skagfirðinga
Aðeins eitt tilboð barst
Einungis eitt tilboð barst í byggingu endur-
hæfingarstöðvar við Sjúkrahús Skagfirðinga en
tilboðsfrestur rann út í síðustu viku. Það var
Ostak, samsteypa Trésmiðjunnar Borgar og
Friðriks Jónssonar sf, sem bauð 88 milljónir í
verkið. Er það nokkuð yfir kostnaðaráætlun,
sem var um 75 milljónir króna.
Að sögn Birgis Gunnarssonar fram-
kvæmdastjóra Sjúkrahúss Skagfirðinga er mál-
ið í skoðun hjá Framkvæmdasýslu ríksins og
ákvörðunar að vænta áður en langt um líður.
Bigir segir að það hafi valdið vonbrigðum að
fleiri tilboð skuli ekki hafa borist í verkið, en
einhvem veginn verði að brúa það bil sem er á
milli samnings um fjármögnun verksins og
jiess tilboðs sem fyrir liggur.
Gæðaframköllun
BÓKABtE)
BRYMJARS