Feykir - 19.01.2000, Page 6
6 FEYKIR 3/2000
Hagyrðingaþáttur 288
Heilir og sælir lesendur góðir.
Að þessu sinni skal byrjað á
nokkrum vísum sem tengjast vetrinum.
Það mun hafa verið séra Sigurður í
Hindisvík sem orti þessa kunnu vísu.
Það em sjálfsagt átján ár
eða lengra síðan.
Vetrargaddur svo var sár
þeir sátu við að þíð’ann.
Guðjón Kristmannsson er höfundur
að næstu vísu.
Fönnin hvíta fyllir mó
færð er þung í spori.
I brekkunni munu brosa þó
blóm á næsta vori.
Jón S. Bergmann mun hafa ort þessa.
Aftangliti geislar ský
glöggur viti nætur,
jörðin situr sorgum í
sólarhitann grætur.
Þar sem stutt er í þorrann er gott að
rifja næst upp þessa ágætu vísu Maríu
Rögnvaldsdóttur frá Réttarholti.
Undan þykkju þungri brún
þorri sjónum renndi.
Sá hefur marga ramma nín
rist með kaldri hendi.
Arni Jón Eyþórsson á Bálkastöðum
er höfundur að þessari.
Hart er frost og herðir vind
helfrýs úti vera.
Mörsugur, þín mikla synd
mætti smærra gera.
Ekki skal haldið lengra í þessa áttina,
hlýjum okkur með þessum ágætu vísum
Jóns Péturssonar frá Nautabúi.
Þegar kýs sér maður mær
munann frýr í kringum,
ef ei lýsa augun skær
innri vísbendingum.
Það vill hrelldri þjaka sál
þagnar seldri kjömm,
logi eldheitt ástarbál
innar felldum vömm.
Næsta vísa mun vera eftir séra Einar
Friðgeirsson.
Stundum finnst mér ekkert að
og unað lífið bjóða,
hallist þú að hjartastað
heilladísin góða.
I gleðskap yrkir Gissur Jónsson frá
Valadal.
Enn hefur sálin endurfæðst
ei við brjálast gaman.
Á ótal málum er við ræðst
ef við skálum saman.
Rúnar Kristjánsson hlustaði eitt sinn
á umræður um ferðir manna á vertíðir
hér áður fyrr. Hann orti:
Hér á landi vaskir vermenn
vom fyrr á tíð.
Unnu þeir sem þarfir hennenn
þjóðar sinnar stríð.
Um stjómmálin yrkir Rúnar.
Stjómvöld hrapa að ráði rög
réttu tapa skyni.
Hafa skapað heimskulög
handa apakyni.
Þá kemur næst sléttubandavísa eftir
Rúnar.
Haldinn leiða myrkum má
margur deyða tíma.
Faldinn breiðir ævi á
óláns neyðir glíma.
Þórarinn Jónsson ættaður frá Öxl í
Þingi, mun hafa ávarpað á eftirfarandi
hátt prest, sem hann taldi að væri einn af
mörgum í þeirri stétt sem geðjaðist vel
að gróða.
Lát mig svarið hiklaust heyra
hef ég til þess sterka lyst,
vita hvom þér metið meira
Mammon eða Jesúm Krist.
Sagt er að kona Baldvins, skálda,
Halldórssonar, hafi einhverju sinni haft
á orði að hann væri að verða ansi grá-
hærður. Orti þá Baldvin.
Ellin herðir átök sín
enda sérðu litinn.
Æði ferðafötin mín
fara að verða slitin.
Eitt sinn er Baldvin átti við veikindi
að stríða orti hann svo.
Ellin kveður kjark í mát
kraftar hætta að vinna.
hún er nú að bika bát
batavona minna.
Margrét Sigurðardóttir á Dönustöð-
um yrkir svo er hún nálgaðist áttrætt.
Gisna hárin gráu mín
göngu minnkar hraði.
Byrgja tekur sólarsýn
sveigt að hinsta vaði.
I svipaðan tón tekur Oddur Bene-
diktsson í Tungu í Gaulverjarbæjar-
hreppi.
Heimurinn mig hefur þreytt
hrömar lífsins kraftur.
Nú er ég ekki orðinn neitt
annað en gigt og kjaftur.
Að lokum er þetta innlegg Guðríinar
Ámadóttur frá Oddsstöðum.
Þegar andinn vegavilltum
vonin þrýtur yndislega,
vil ég hörpustrengjum stilltum
strjúka burtu hjartans trega.
Þótt ég finni fyrir löngu
gullin tæmd úr lífsins bmnni,
fylgir mér á grafargöngu
gamalt Ijóð sem ein ég kunni.
Veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum,
541 Blönduósi, sími 452 7154.
„Sjáum bara til hvernig
útkoman verður í vora
segir Valur Ingimundarson þjálfari Tindastóls
Valur Ingimundarsson ásamt bömum sínum Steinunni og Vali Orra.
„Ég er mjög hreykinn af stákunum
mínum og finnst að þeir eigi heiður
skilið fyrir frammlstöðuna. I>að er ekki
hægt annað en vera ánægður með
gengi liðsins. Ég held að fæstir hafi
búist við því sem við emm búnir að
gera í vetur, þar sem að breytingamar
voru miklar á liðinu fyrir kepp-
nistímabílið. Núna þegar Sverrir Þór
Sverrisson, sem er að fara í fótboltann
til Grindavíkur, er farinn þá emm við
búnir að missa átta menn sem voru í
hópnum á síðasta tímabili”, segir
Valur Ingimundarson þjálfari
Tindastólsliðsins í körfubolta, en
Stólamir hafa verið að gera góða hluti
í vetur. Þeir hafa lengst af verið meðal
fjögurra efstu liðanna í deildinni og
gerðu sér lítið fyrir og sigmðu í Eggja-
bikarkeppninni. Að vísu duttu þeir út
úr Bikarkeppninni í heimleik gegn
Grindvíkingum á dögunum, en komu
síðan sterkir til baka nokkrum dögum
síðar og sigmðu KR-ingana í Vestur-
bænum, sem höfðu ekki tapað heima
fram að þeim leik.
- En áttir þú von á þessu gegni fyrir
tímabilið?
„Ég átti von á öllu. Ég var með breytt
lið, að vísu fékk ég tvo góða Dana til liðs
við okkur og Kristinn Friðriksson sem
sannarlega er betri en enginn. Svo náðum
við okkur í góðan útlending sem passar
mjög vel inn í liðið. Eftir að ég hætti að
spila með og við fórum að hafa betri
stjóm á hlutunum inni á vellinum hefur
þetta smollið saman og liðið spilað
virkilega vel og hver leikmaður verið að
berjast fyrir hvom annan. En það sem ég
er ánægðastur með er hvað ungu
strákamir em að spila vel í vetur. Þeir
hafa staðið alveg fullkomlega undir
væntingum og em búnir að leggja
virkilega hart að sér. Þeir vita að þetta
snýst um það að æfa vel og berjast og em
að uppskera samkvæmt því.”
- Én þið vomð fremur slakir á móti
Grindvíkingum í Bikarkeppninni, hverer
skýringin á því?
„Það vantaði alla stemmningu í liðið í
jæirn leik og ég held að skýringin á því
hafi verið sú að við lentum í tveimur
festuðum leikjum í röð og menn vom
búnir að eyða mörgum dögum í að
„móti vera“ sig fyrir leiki, sem var frestað
og drógust á langinn, fyrst á móti
Haukunum í deildinni og síðan
Grindvíkingunum.”
- En þið komuð svo sterkir til baka á
móti KR?
„Já það var mjög mikilvægt fyrir
okkur að ná sigri í þeim leik og komast á
sigurbraut að nýju. Strákamir sýndu
vikilegan karakter að sigra á þessum
erfiða heimavelli í Vesturbænum.”
- Hvað manni heyrist að nú sé krafan
að verða eitt af þeim fjómm efstu og ná
í oddaleikjaréttinn í úrslitunum, er það
nokkuð nema eðlilegt?
„Það er náttúrlega ekki hægt að gera
þannig kröfur og það væri t.d. óraunhæft
að krefjast þess að við spiluðum til
úrslita. Mérfinnst mitt unga lið vera búið
að gera meira, en hægt er að krefjast í
rauninni, en við emm ekki hættir. Ég er
reyndar með fimm unglingaflokksstráka
í liðinu, þannig að þetta getur verið mjög
brothætt og menn verða virkilega að
passa sig á að halda sér á jörðinni. Við
emm ekki með eins reynt lið og þessi lið
á toppnum sem við emm að berjast við,
eins og t. d. Grindvíkingar og Njarð-
víkingar sem em með hálft landsliðið. En
vitaskuld stefnum við að því að verða eitt
af fjómm efstu liðunum, eða öllu heldur
að við stefnum að því að halda áfram að
vinna leikina og það ætlum við að gera
með því að halda því áfram sem við
höfum verið að gera, að æfa vel og gera
okkar besta. Mér finnst ekki hægt að
krefjast meira en að við gemm okkar
besta. Svo sjáum við bara til hvemig
útkoman verður í vor”, sagði Valur
Ingimundarson.