Feykir - 19.01.2000, Blaðsíða 7
3/2000 FEYKIR 7
'
I
Fundaröð „vinstri-
grænna" byrjuð
Á miðvikudag í sfðustu viku
hófst fundarröð Vinstri hreyfing-
arinnar - græns framboðs undir
yfirskriftinni Græn framtíð: At-
vinna - umhverfi - velferð. Um
er að ræða opna almenna fundi
þar sem sérstök áhersla verður
lögð á sjálfbæra græna atvinnu-
stefnu og nýtt endurreisnar- og
umbótaskeið í velferðarmálum.
Þetta er baráttumál sem Vinstri-
hreyfingin - grænt ffamboð legg-
ur áherslu á.
Fyrsti fundurinn var haldinn
sl. miðvikudag á Kaffi Krók á
Sauðárkróki. Framsögumenn
vom alþingismennimir Jón
Bjamason og Steingnmur J. Sig-
fússon. Fundurinn var fjölsóttur
og mikill hugur í fundarmönn-
um. Steingrímur gerði grein fyr-
ir stefnu og áherslum flokksins
og þeirri nýju framtíðarsýn sem
þar em boðin.
Jón Bjamason ræddi um
þinghaldið og helstu mál haust-
þingsins. Sagði hann að þing-
menn „vinstri grænna” styddu
góð mál á þingi óháð hver flytti
þau og beittu öflugri viðspymu
gegn þeim málum sem til óheilla
horfa og em andstæð framtíðar-
sýn flokksins. Byggðamál vom
rædd og lögð áhersla á endur-
heimt forgangsréttar íbúanna
meðfram ströndum landsins til
nýtingar fiskimiðanna á gmnn-
slóð.
Jón fjallaði sérstaklega um
eflingu menntunar-, rannsókna
og annars þekkingariðnaðar og
hvatti til þess að sveitarfélög á
svæðinu í samstarfi við Hóla-
skóla, Fjölbrautaskóla Norður-
lands vestra. rannsókna- og þró-
unarstofnanir og iðnfyrirtæki
stofnuðu til sérhæfðs tæknihá-
skóla í Skagafirði. Að mati Jóns
þarf að breyta hinu almenna
menntakerfi í landinu þannig að
ungt fólk geti stundað lengur
nám í sinni heimabyggð, þó ekki
væri nema til 17 eða 18 ára ald-
urs og fjölskyldan búið lengur
saman sem ein heild og hver stutt
annan. Menntun og velferð fjöl-
skyldulífsins verði að fara sam-
an.
I þessari kynningarferð um
landið stefnir Vinstri hreyfingin
grænt framboð að því að halda
einn til tvo fundi í viku fram á
vor, ýmist á miðvikudögum eða
fimmtudögum, en hver fundur
verður auglýstur sérstaklega.
Næstu fúndir verða í Vestmanna-
eyjum 20. janúar og á Austur-
landi 26. janúar og síðan verður
haldið áfram í öllum kjördæm-
um. (fréttatilkynning)
Samstarf um sölu á áburði
Sláturfélag Suðurlands og
Áburðarverksmiðjan hafa gert
með sér samkomulag um sölu
áburðar frá Áburðarverksmiðj-
unni. Á síðasta ári annaðist SS
sölu á áburði sem nemur um
15% af heildarsölu Áburðarverk-
smiðjunnar. Samkomulagið felur
í sér að viðskiptavinir SS geta
hvort heldur sem er skilað áburð-
arpöntunum beint til SS eða
Áburðarverksmiðjunnar auk
þess að geta greitt fyrir áburðinn
með innleggi afurða. Samkomu-
lagið var staðfest, mánudaginn
20. desember sl. af Bjama Krist-
jánssyni forstjóra Áburðarverk-
smiðjunnar og Steinþóri Skúla-
syni forstjóra SS.
Með þessu samkomulagi vill
SS tryggja gæði og hreinleika af-
urða sinna þar sem ljóst er að er-
lendur áburður er mjög misjafn
að gæðum. Áburður Áburðar-
verksmiðjunnar er hins vegar
framleiddur úr úrvals hráefnum
og með hreinni endumýjanlegri
orku. Hann er því eins vistvænn
og framast er unnt.
Með því að stuðla að notkun
áburðar frá Áburðarverksmiðj-
unni er SS einnig að tryggja að
bændur í viðskiptum við SS nái
hámarks árangri í framleiðslu
landbúnaðarafurða. Áburðar-
verksmiðjan hefur í 45 ár lagað
áburð sinn að íslenskum aðstæð-
um. Fjöldi tegunda auðveldar
bændum að fá nákvæmlega þau
næringarefni jarðvegs sem þeir
þurfa og uppleysanleiki áburðar-
ins er í samræmi við íslenska
veðráttu. Vegna þessara eigin-
leika gæti þurft tugum prósenta
meira af erlendum áburði til þess
að fá sömu uppskeru. Þá em aðal
áburðartegundir Áburðarverk-
smiðjunnar einkoma sem þýðir
að öll aðalnæringarefni gróðurs
em í einu og sama áburðarkom-
inu.
Ætla má að nýting slíks ein-
koma áburðar sé um 10-20%
betri en fjölkoma áburðar eftir
aðstæðum. Áburðarverksmiðjan
og SS hafa einnig ákveðið að
efla samvinnu sína við áburðar-
framleiðsludeild Norsk Hydro
um rannsóknir og þróun en
Áburðarverksmiðjan hefur um
árabil keypt hráefni frá Norsk
Hydro. Sem liður í þessu verður
til sölu áburður frá Norsk Hydro
í takmörkuðu magni. (fréttatilk.)
Kýr til sölu!
Allar skýrslufærðar með lága frumutölu. Hluti af
þeim eru nýlega bornar og fengnar. Aðrar komnar að
burði. Nánari upplýsingar í síma 453 8057.
Okeypis smáar
Til sölu!
Til sölu notuð 12 kílóvatta
hitabúba, ásamt fylgi-
hlutum. Selst ódýrt. Halldór
Hafstað í síma 453 6745.
Til sölu tveggja sleða
kerra. Upplýsingar í síma
453 8037.
Til sölu Bens mótor 314.
Upplýsingar í síma 453
8043.
Nokkrar kefldar kvígur til
sölu og einnig tvö til þrjú
vindblesótt folöld. Upplýs-
ingar í síma 896 3088.
Félagsvist!
Félagsvist, þriggja kvölda
keppni, hefst í Melsgili
föstudaginn 21. janúar kl. 21.
Verðlaun - Kaffiveitingar.
Kvenfélagið.
Hlutir óskast!
Ódýrt sjónvarps- og
myndbandstæki óskast.
Hringið í síma 867 2749.
Húsnæði!
Ibúð til leigu. Upplýsingar í
síma 453 6665 á kvöldin.
Feykir sími
453 5757
fax 453 6703
+
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
Hrólfs Jóhannessonar
frá Kolgröf
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Laust starf við Hólaskóla
Auglýst er staða svæðisumsjónarmanns við Hólaskóla. Starfið felst m.a. í
eftirliti með fasteignum og búnaði staðarins auk ýmiss konar viðhaldi.
Æskilegt er að viðkomandi hafi iðnmenntun og meirapróf.
Umsóknir slculu verða skriflegar og þeim þarf að fylgja upplýsingar um
menntun og fyrri störf.
Umsóknarfrestur er til 31. janúar 2000.
Frekari upplýsingar veitir Slcúli Skúlason skólameistari í síma 453 6300.
Hólaskóli, Hólum Hjaltadal, 551 Sauðárkrókur. www.holar.is
VSvæðisvinnumiðlun
Norðurlandi vestra
Óskar eftir að ráða starfsmann í 75% starf á Sauðárkróki. Ráðið verður í starfið
fyrst til átta mánaða og umfang þess og reynsla metin að því loknu.
Starfsmaðurinn verður staðsettur í Stjómsýsluhúsinu á Sauðárkróki. Um er að ræða
starf við skráningu á atvinnuleysi, vinnumiðlun, ráðgjöf fyrir atvinnuleitendur og
samskipti við fyrirtæki.
Viðkomandi þarf að vera jákvæður og lipur í mannlegum samskiptum.
Æskilegt er að umsækjandi hafi góða þekkingu á vinnumarkaðinum og
menntakerfinu.
Gerð er krafa um háskólamenntun og/eða mikla reynslu af vinnumarkaðsmálum.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknum með upplýsingum um menntun og starfsferil skal skila til:
Svæðisvinnumiðlunar Norðurlands vestra
Þverbraut 1, 540 Blönduósi.
Umsóknarfrestur er til 27. janúar 2000.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Richardsson forstöðumaður í síma 455 4200.