Feykir - 29.03.2000, Qupperneq 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Eylendið í Skagaíirði var eins og hafsjór
yfir að líta í leysingunum í gær. Upp úr
hádeginu var Skagfirðingasveit kölluð að
bænum Ytri - Húsabakka en þar voru hús
orðin umflotin vatni og flæddi bæði inn í
íbúðarhúsið hjá Gísla bónda Jónssyni og
fjárhúsin. Ljóst er að tjón hefur orðið
talsvert vegna þessara vorflóða á Húsa-
bakka, sem eru óvenjumikii og líka óvenju
snemma. Björgunarsveitarmenn dældu
vatni úr húsum og aðstoðuðu við að koma
búpeningi undan vatninu. Eins og sjá má
var vegurinn að bænum farinn í sundur og
ekkert nema trukkur björgunarsveitar-
innar komst þama yfir í gær.
Skagfirðingar leiti að Rauði
Skagfirðingar, sérstaklega aust-
an Héraðsvatna, ættu að svipast
vel um í stóði sínu núna á næst-
unni, hvort ókunnugur rauður
hestur gæti verið þar saman við.
Þá væri tilvalið fyrir vélsleða-
menn að gera sér ferð í fjöllin.
Feyki barst eftirfarandi tilkynn-
ing frá Guðmundi Jónatanssyni
ritstjóra Bæjarpóstsins á Dalvík.
I Svarfaðardal hefur verið
týndur hendur frá því um síðustu
jól. Hesturinn er dökkrauður 10
vetra gæðingur, frostmerktur á
hálsi. Ýmislegt er undarlegt við
hvarf þessa hests. Segja má að
hann hafi horfið sporlaust, þrátt
fyrir mikla leit hefur ekkert fund-
ist.
Það rifjaðist upp að völva
Bæjarpóstsins á Dalvík spáði því
að hestur myndi týnast og ekki
finnast fyrr en eftir nokkum tíma.
Er það að koma fram? Leitað
hefur verið til nokkurra miðla og
öllum ber saman um að hestur-
inn muni vera á h'fi. Tveir miðl-
ar hafa tekið fram að hesturinn
hafi álpast saman við hóp hrossa
án vitundar þeirra sem með hafa
að gera. Nú er þess farið á leit við
Skagfirðinga að þeir kíki eftir því
hvort þessi hestur geti verið hjá
þeim Búið er að leita svo mikið
að hestinum að farið er að skoða
nánast ótrúlega möguleika. Vert
er að hafa í huga að hér er um
mikinn gæðing að ræða og tjón-
ið því tilfinnanlegt fyrir eigand-
ann. Vanti einhvem nánari upp-
lýsingar er þær að finna í síma
868 2304.
Fundur um þjóðlendumálið í Víðihlíð
Krefst þess að kröfii-
gerð fulltrúa ríkisins
verði dregin til baka
Sameiginlegur fundur sveit-
arstjóma, landbúnaðamefnda og
stjóma búnaðarsambanda á
Norðurlandi vestra, sem haldinn
var í Víðihlíð í fyrrakvöld, mót-
mælir harðlega þeim kröfum til
eignaréttar á landi sem fram em
komnar af hálfu fúlltrúa rfldsins
á gundvelli laga um þjóðlendur.
Fundurinn lýsir furðu sinni á því
að fram skuli vera komnar kröf-
ur um, að þinglýst eignalönd
bænda, sveitar- og/eða upp-
rekstrarfélaga, verði að hluta til
eða öllu leyti, gerð að þjóðlend-
um og þar með eign ríkisins.
Fundurinn krefst þess að þessar
kröfúr verði [regar í stað dregnar
til baka og virtur verði eignar-
réttur aðila á því landi sem þing-
lýsingar og skráð landamerki
taka til. Þá gerir fundurinn þá
skýlausu kröfu til ríkisstjómar
og Alþingis að frekari aðgerðum
um kröfur til þjóðlenda í Ames-
sýslu verði þegar í stað frestað
þar til fyrir liggja heildarkröfur
ríkisins til þjóðlenda yfir landið
í heild, þannig að heildaryfirsýn
fáist um þessa kröfugerð hins
opinbera á hendur bændum og
öðmm landeigendum.
Mikill einhugur ríkti á fund-
inum í Víðihlíð sem um 60
manns sóttu, þar á meðal þing-
menn kjördæmisins og gestir úr
Amessýslu. Fundurinn lagði
þunga áherslu á stjómmálalega
ábyrgð rflcisstjómar og Alþingis
og taldi umrædda kröfugerð í
mótsögn við það að alþingis-
menn og stjómvöld hefðu lagt
mikla áherslu á, a.m.k. í orði, að
spoma þurfi við frekari fækkun
fólks á landsbyggðinni og flutn-
ingi þess til Reykjavíkursvæðis-
ins. Krafa ríkisins til stórra
landssvæða væri í reynd skýr
skilaboð til fólks á landsbyggð-
inni að vera þiess þar, sem bygg-
ir á eignarrétti á landi, sé ekki
æskileg. Þetta geri málflutning
stjómmálamanna um nauðsyn
þess að efla landsbyggðina ekki
trúverðugan.
Fundurinn lýsir eindregnum
stuðningi við ályktun Búnaðar-
þings um þetta mál og skorar á
stjóm Bændasamtaka Islands að
gangast hið allra fyrsta fyrir
skipulögðum fundum í öllum
hémðum landsins, þar sem þetta
mál verði kynnt og rætt, svo að
bændum og öðm landsbyggða-
fólki gefist þar kostur á að koma
skoðunum sínum á framfæri og
mótmæla þeim gerræðisfullu
vinnubrögðum sem viðhöfð em
af hálfu fulltrúa ríkisvaldsins og
á ábyrgð þess.
I ályktun fundarins segir
einnig að hann vilji ekki að ó-
reyndu trúa því að það hafi ver-
ið ætlun alþingismanna með
samhljóða samþykki á lögum
um þjóðlendur og ákvörðun
marka eignarlanda, þjóðlenda
og afrétta, að þau fælu í sér þá
eignaupptöku sem fulltrúar rík-
isins gera kröfu til. í þeirri trú
vill fundurinn mega treysta því
að umrædd kröfugerð verði þeg-
ar í stað dregin til baka og hún
endurskoðuð frá gmnni.
—KTeh£Ít! chíDI— JÍMTJlbílaverkstæði
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 jMÆJLÆ-JL sími: 453 5141
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmundargata lb 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA jfc Bílaviðgerðir Jþ Hjólbarðaviðgerðir
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA jj Réttingar Sprautun