Feykir - 17.05.2000, Qupperneq 2
2 FEYKIR 19/2000
Blönduósingar ætla að gera út
á hvalaskoðun og siglingar
Blönduósingar ætla að
fara að gera út á skemmtisigl-
ingar á Húnaflóa og um ná-
grennið. Nýlega var keyptur
sómabátur frá Isaíirði sem
þar var notaður í sjóferðir og
skemmtisiglingar og getur
tekið 15 manns um borð.
Kiddý IS 97 heitir hann en við
komuna til Blönduós verður
nafni hans breytt í Kópur
HU.
Hiutafélagið Sæheimar hef-
ur verið stofnað um reksturinn
og stendur hópur manna að því.
Ætlunin er að bjóða upp á
hvala- og selaskoðunarferðir
auk sjóstangaveiði, en einnig
em ýmsir aðrir möguleikar s.s.
ferðir á Strandir, sem verða án
efa boðið upp á sem og ævin-
týraferðir um Húnaflóann sem
býr yfir óendanlegri dulúð og
töfmm, þannig að það ætti að
vera ýmislegt sem verður fyrir
stafni hjá Kópi og þeim Sæ-
heima-mönnum í sumar, en þar
er aðallega í forsvari Hans Vil-
berg Guðmundsson.
Að sögn forsvarsmanna Sæ-
heima verður þó íyrsta rekstrar-
árið fyrst og fremst notað til
kynningar, en það er ætlun
þeirra sem að rekstrinum
standa að láta ferðaáætlanir
standast sem allra best.
Atli Már Óskarsson kennari við grunndeild tréiðna, Jón F.
Hjartarson skólameistari og Björgvin Sveinsson stjórnar-
maður í Iðnsveinafélagi Skagafjarðar.
Iðnsveinar gefa
FNV trésmíðavél
Ákveðið að gera úttekt á
félagsheimilum í Skagafirði
Félagar í Iðnsveinafélag
Skagafjarðar héldu nýlega upp
á 35 ára afmæli félagsins. I til-
efni tímamótanna var ákveðið
að gefa Fjölbrautaskóla Norð-
urlands vestra vandaða tré-
smíðavél, en fyrir liggur á-
kvörðun um að verkleg
kennsla við tréiðn verður við
skólann næsta vetur.
Við afhendingu gjafarinnar
gat Björgvin Sveinsson stjóm-
armaður í Iðnsveinafélaginu
þess að félagsmenn væm stolt-
ir að því að geta stutt við iðn-
kennslu í Fjölbautaskólanum,
enda veitti ekki af að styðja
við námsframboð í heima-
byggð. Björgvin færði fram
óskir um að fleiri aðilar sæju
sér fært að stuðla að uppbygg-
ingu skólans.
Menningar- íþrótta- og
æskulýðsnefnd Skagafjarðar
hefur farið að tillögu Asdísar
Guðmundsdóttur formanns
nefndarinnar um að láta gera
úttekt á félagsheimilum í
Sveitarfélaginu Skagafirði.
Skoðaður verði rekstur
þeirra, nýting, viðhaldsþörf
og möguleikar í framtíðinni.
Leitað verði til Atvinnuþró-
unarfélagsins Hrings um
framkvæmd úttektarinnar.
í greinargerð með sam-
þykkt nefndarinnar segir að í
Sveitarfélaginu Skagafirði
séu níu félagsheimili. Sveit-
arfélagið er stærsti eignarað-
ilinn að þeim öllum, en auk
þess eiga ýmiss félagasam-
tök hlut í þeim. Mjög mis-
munandi er hvernig nýtingu í
rekstri og viðhaldi félags-
heimilanna er háttað og í
hvernig ásigkomulagi þau
eru. Sum eru í mikilli notkun
á meðan önnur eru nánast
ekkert nýtt og önnur þarfnast
mikils viðhalds en önnur
ekki. Tilgangurinn með end-
urskoðun þessari er að fara
ofan í saumana á rekstri, nýt-
ingu og kanna viðhaldsþörf
félagsheimilanna. Leggja
skal áherslu á að finna ný og
aukin verkefni fyrir heimilin
og auka notkun þeirra með
aukna hagkvæmni og sparn-
að í huga.
Á fjárhagsáætlun fyrir
árið 2000 eru 10 ntilljónir
settar í rekstur félagsheimila
og er það fimmtungur þess
fjármagns sem fer í menn-
ingarmál á árinu úr sveitar-
sjóði Skagafjarðar.
Vontónleikar
kammerkórsins
Vortónleikar Skagfirska Kamm-
erkórsins verða í Hóladóm-
kirkju, mánud. 22,maí, kl.21.
Skagfirski Kammerkórinn var
formlega stofnaður um síðustu ára-
mót og má því segja að þetta séu
fyrstu opinberu tónleikar hans.
Hann er skipaður vönu kórfólki úr
héraðinu og telur tuttugu manns.
Kórinn hefur nú á vordögum lagt
áherslu á kirkjulega tónlist og er
nokkuð ömggt að margt að því
sem flutt verður á tónleikunum
hefúr aldrei heyrst í Skagafirði fýrr.
Efnisskráinerfjölbreytt. Þama
má finna íslenska sálma og sálma-
skáld og einnig verður erlent eíhi á
boðstólnum. Sr. Dalla Þórðardótt-
ir mun kynna hvem sálm fyrir sig.
Stjómandi kórsins er Sveinn
Amar Sæmundsson og einsöngv-
arar verða Haukur Steinbergsson,
Þun'ður Þorbergsdóttir og Signður
Elliðadóttir. Undirleik á orgel ann-
ast Stefán R. Gíslason.
Grunnskólinn á Hofsósi
Nýstárleg fjáröfl
Laugardaginn síðasta, 13. maí, fóm nemendur
Gmnnskólans á Hofsósi óhefðbundnar leiðir til að afla
tekna í ferðasjóð. Nemendur tóku sig til og buðu full-
orðnu fólki upp á tölvukennslu ásamt spunaveislu þar
sem nemendur létu gamminn geysa um ýmis málefni 5
mínútur hver.
Nemendur seldu kaffi og kökur, svo áhorfendur
fengju meira en andlegt fóður. Tölvukennslan fór þannig
fram að fólk keypti klukkutíma. Nýttu margir sér þetta
tækifæri, bæði fólk sem aldrei hafði snert á tölvum og
aðrir sem vildu auka þekkingu sína, þar á meðal skáldið
okkar frá Skálá Kristján Ámason, sem að loknum tíma
orti eftirfarandi;
Héðan fer ég fróðari,
fæ nú vald á tölvunni.
Indælt var hér atlæti,
eggið kenndi hænunni!
Nemendur GSH þakka öllum fyrirtækjum og einstak-
lingum sem styrktu þá í þessari fjáröflun, segir í tilkynn- Signður Jónsdúttir hjúkrunarfræðingur á Hofsúsi fékk tölvukennslu á
ingu frá Finni Sigurbjömssyni tómstundafulltrúa GSH. laugardagjnn eins og svo margir aðrir fullorðnir á Hofsúsi.
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf.
Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box 4,
550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703.
Myndsími 453 6703. Farsími 854 6207. Netfang:
feykir @ krokur. is. Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson.
Fréttaiútari: Örn Þórarinsson.
Blaðstjóm: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guð-
brandsson, Sæmundur Hennannsson. Sigurður
Ágústsson og Stefán Árnason.
Áskriftarverð 170 krónur hvert tölublað rneð vsk.
Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og
umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svait hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs-
fréttablaða.