Feykir - 08.11.2000, Síða 6
6 FEYKIR 38/2000
Hagyrðingaþáttur 305
Heilir og sælir lesendur góðir.
Það er Ingibjörg Sigfúsdóttir frá
Forsæludal sem á fyrstu vísurnar að
þessu sinni.
Áður taldi íslensk þjóð
óðsnilldina gæði.
Kveðin voru og lesin ljóð
lærð og sungin kvæði.
Nú má kaupa þessi þjóð.
Þi-ykkt og gyllt í sniðum.
í gerviskinni gerviljóð
af gerviljóðasmiðum.
Benedikt Valdimarsson frá Þröm
mun hafa ort svo til konu sinnar.
Tímans breyting tíðum skín
og tildurs skreytir fjöðrum.
Ávallt heita höndin þín
hjálp mun veita öðrum.
Eins og stundum áður um þetta leyti
heyrist talsvert frá þingmönnum í fjöl-
miðlum. Eitt sinn var eftirfarandi vísa
ort um þingstörfin, án þess að ég muni
hver var talin höfundur að henni.
Ei vom spömð orðin þar
enda meir en nóg sagt,
en megnið af þeirri mælgi var
miklu betur ósagt.
Eins og margir vita má enginn tala í
þingveislum nema í bundnu máli og
leggja sumir talsvert á sig til að komast
á mælendaskrá þar. I einni slíkri orti
séra Hjálmar Jónsson.
Áma Johnsen þekkir þjóð
og þolir af honum hrekki.
Gjaman vill hann gera ljóð
en getur það bera ekki.
Eiður Guðnason sá eitt sinn í þing-
veislu að ntiða var stungið að Áma og
fór hann síðan í ræðustól og las af mið-
anum. Næstur fór Eiður og flutti eftir-
farandi vísu.
Ámi fór með eitthvert mix
sem annar honum sendi.
Hann er bara núll og nix
frá náttúmnnar hendi.
Eitt sinn var gefið út blað sem kall-
að var Vesturlandspóstur. Um það leyti
og hann var að syngja sitt síðasta mun
Jón Þ. Bjömsson hafa ort svo.
Þegar hund í hamsi ber ég
hressir lundu fjömgt blað,
um þessar mundir oftast er ég
enga stund að lesa það.
í blöðum birtast oft skondnar aug-
lýsingar og mun Sigríður Sigfúsdóttir í
Forsæludal hafa séð eina slíka er hún
orti svo.
Dálítið í brún mér brá
brosti þó að vana,
auglýst þegar ágæt sá
undirföt á hana.
Gott væri að heyra frá lesendum ef
þeir kannast við eftirfarandi vísu.
Aldrei á strik sér andinn náði
ótuktarlega brást hann mér.
Holdið er þó með réttu ráði
og reiðubúið til hvers sem er.
Sama má segja um þá næstu, ekki
veit ég nein deili á henni.
Það er flest að fara sko
til fjandans held ég bara.
I upphafi hélt ég ekki að svo
illa mundi fara.
Eitt sinn lærði ég vísur sem gerðar
vom um alla mánuði ársins. Held ég að
þær séu ættaðar úr Borgarfirði og er
trúlega nokkuð langt síðan þær voru
gerðar, ef tekið er mið af því sem sagt
er um skólana.
Tólf em synir tímans
sem tifa framhjá mér.
Janúar er á undan
með árið í faðmi sér.
Febrúar á fannir
þó læði hann geislum lágt.
Mars þó blási biturt
þá birtir smátt og smátt.
í apríl sumrar aftur
' þá ómar söngur nýr.
I maí flytur fólkið
og fuglinn hreiður býr.
Íjúnísest ei sólin
þá brosir blóma fjöld.
I júlí baggi er bundinn
og borðuð töðugjöld.
í ágúst slá menn engi
og bömin tína ber.
í september fer söngfugl
og sumardýrðin þver.
í október fer skólinn
að bjóða bömum heim.
í nóvember er náttlangt
í norðurljósageim.
Þó desember sé dimmur
og dýrleg á hann jól.
Með honum endar árið
og aftur hækkar sól.
Það mun hafa verið í síðasta þætti
sem rangt var farið með eina vísuna.
Þakka ég upplýsingar þar um og einnig
að höfundur hennar mun vera Þórður
Einarsson fæddur í Nýlendu í Garði.
Bjó hann nokkuð víða en síðast í
Reykjavík. Birtist þá vísan hér aftur
með leiðréttingu.
Stelirðu litlu í steininn mátt
staulast karl minn sérðu,
en stelirðu miklu og standir hátt
í stjómarráðið ferðu.
Veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum,
541 Blönduósi, sími 452 7154.
Þetta kemur okkur öllum við
Þetta kemur okkur öllum
við er yfirskrift borgarafundar
sem Sveitaifélagið Skagafjörð-
urbýðurtil í samráði við sýslu-
mann, Heilbrigðisstofnun
Sauðárkróks og Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra um
vímu- og fíkniefnamál í Skaga-
firði. Verður fundurinn á sal
FNV miðvikudaginn 15. októ-
ber. Margir góðir frummælend-
ur taka til máls í stuttum erind-
um, allt fólks sem þekkir til
þessara mála frá ólíku sjónar-
horni og verður víða komið
við. Eftir fundinn verða al-
mennar umræður um erindin
og gefst fundargestum tækifæri
að koma á framfæri spumingum.
Foreldrar og aðstandendur
eru sérstaklega hvattir til að
mæta. „Því þetta kemur jú okk-
ur öllum við og er orðið löngu
tímabært að viðurkenna það
fyrir sjálfum okkur að vímu- og
fíkniefni eru hér allt í kringum
okkur. Við verðum að halda
vöku okkar og vera á varðbergi
gegn þessari vá”, segir í til-
kynningu vegna fundarins.
NM|jj Heilbrigðisstofnunin
Sauðárkróki
Eftirtaldir sérfræðingar verða með móttöku í stofnuninni í
nóvember og desember:
Tímabil
6/11-10/11
13/11-17/11
20/11-24/11
27/11 -1/12
4/12- 8/12
11/12 - 15/12
Læknir
Vilhjálmur Andrésson
Arnbjörn Arnbjörnsson
Ólafur R. Ingimarsson
Haraldur Hauksson
Edward Kiernan
Ari Ólafsson
Sérgrein
kvensjúkdómalæknir
skurðlæknir
bæklunarlæknir
skurðlæknir
kvensjúkdómalæknir
bæklunarlæknir
Tímapantanir í síma 455 4000.
Epsondeildin í körfubolta
Tindastólsmenn
á sigurbraut
Úrvalsdeildarlið Tindastóls
hefur átt velgengni að fagna
síðustu vikuna í körfuboltan-
uni. Liðið hefur unnið báða
sína leiki í Epson-deildinni.
Fyrst Hamarsmenn frá
Hveragerði á Króknum sl.
fimmtudagskvöld og síðan
Þórsara á Akureyri á sunnu-
dagskvöldið. Tindastóll er nú í
þriðja sæti deildarinnar, með
10 stig eins og Grindavík sem
er í öðru sæti og Haukar sem
eru í því fjórða, en efstir eru
Keflvíkingar með 12 stig.
Tindastólsmenn áttu á bratt-
ann að sækja framan af gegn
Þórsurum á Akureyri. Þeir voru
fimm stigum undir í leikhléi en
náðu að komast yfir áður en
þriðja leikhluta lauk. I síðasta
fjórðungnum sýndu þeir hverjir
voru betri og sigruðu örugglega
81:65. Tony Pomones, Kristinn
Friðriksson og Shawn Mayers
voru einna bestir Tindastóls-
manna í leiknum. Kristinn gerði
21 stig.Tony 18, Mayers 17,An-
dropov 9, Svavar 6, Ómar 3 og
Lárus 2.
Það var frekar þunglamaleg-
ur körfubolti sem leikinn var á
Sauðárkróki á fimmtudags-
kvöldið. Heimamenn virkuðu
frekar áhuga- og stemmnings-
lausir í upphafi leiks og voru
seinir í gang.
Það voru gestirnir sem voru
mun grimmari og sterkari í byrj-
un, en strax í upphafi annars
leikhluta voru heimamenn fam-
ir að ranka við sér og tókst að
halda jöfnu í hálfleik, 32:32,
þrátt fyrir að vera að leika illa í
fyrri hlutanum. í seinni hálfleik
var síðan engin spurning hvort
liðið væri sterkara og ekki bætti
úr skák fyrir Hvergerðinga að
þeir pirruðu sig ákaflega mikið
út í dómara leiksins. Lokatölur
urðu 81:63 fyrir Tindastól.
Hjá Tindastóli átti Kristinn
Friðriksson mjög góðan leik og
þeir Maeyrs og Andropov voru
einnig mjög góðir, sömuleiðis
léku Ómar og Lárus vel. Stig
Tindastóls: Kristinn Friðriksson
18, Shawn Mayers 17, Michail
Andropov 16, Lárus Dagur Páls-
son 8, Toni Pomones 8, Ómar
Sigmarsson 8, Friðrik Hreinsson
3 og Svavar Birgisson 3.