Feykir - 08.11.2000, Page 8
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra
8. nóvember 2000,38. tölublað, 20. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
Eh Eh KJÖRBÓK
L Eh rj / Vinsœlasti sérkjarareikningur íslendinga \ - með hœstu ávöxtun í áratug! M Landsbanki^ fl íslands
L " í forystu tii framtíðar 1 Útibúið á Sauðárkróki - S: 453 5353 |
Nemendur 10. bekkjar Árskóla efndu til árlegs maraþons í lok síðustu viku og prjónuðu þá
og dönsuðu gömlu dansana í rúman sólarhring. Fjölmargir foreldrar komu í skólann til að
fylgjast með börnum sínum og veita þeim móralskan stuðning.
Fjörug umræða í sveitarstjóm SkagaQarðar
Karpað um jarðir og rjúpaveiði
Miklar umræður urðu um
jarðamál og rjúpaveiðilendur á
fundi sveitarstjómar Skagafjarð-
ar í síðustu viku. Tilefnið var
eyðibýlið Reykasel, sem mun
vera norðan ár á Mælifellsda! í
Lýtingsstaðahreppi gamla, en
nokkrar umkvartanir hafa verið
varðandi ýmiss mál á Mælifells-
dalnum undanfarin ár. Að þessu
sinni var það erindi frá Margeiri
Björnssyni bónda á Mælifellsá
vegna girðingamála á dalnum og
málefna Reykjasels. f>á óskaði
Sigurður Friðriksson á Bakka-
flöt eftir að fá leigðan rjúpna-
veiðirétt í Reykafjalli, það er
eignarhlut sveitarfélagins í
Reykaseli.
Landbúnaðarnefndin ef-
greiddi erindi Margeirs á þann
hátt að þar sem umbeðin girðing
yrði ekki í landi sveitarfélag-
isværi hún því óviðkomandi.
Varðandi bréf Sigurðar Friðriks-
sonar taldi nefndin ekki ástæðu
til að leigja einum aðila veiðirétt
þar sem um almannaeign er að
ræða og Sigurði heimilt að veiða
þar eins og öðrum þegnum
sveitarfélagsins. Ef hinsvegar
yrði tekin sú ákvörðun að leigja
veiðirétt á lendur sveitarfélags-
ins þá yrði það að sjálfsögðu gert
að undangenginni auglýsingu.
Að lokum samþykkti síðan land-
búnaðarnefnd að eignarhlutur
sveitarfélagsins í Reykjaseli
verði auglýstur til sölu, en land-
búnaðarnefnd hefur talsveit fjall-
að um málefni jarðarinnar.
Hófst nú löng umræða um
þetta mál í sveitarstjóminni, þar
sem flestir ræðumanna voru
sammála því að réttast hefði ver-
ið fyrir landbúnaðarnefnd að
vísa erindi vegna sölu
Reykjasels til byggðaráðs, þar
sem nefndin hefði fjármálalega
umsýslu fyrir sveitarfélagið. Var
það samþykkt við lok umræð-
unnar.
Ræðumenn voru sammála
um nauðsyn þess að gert yrði yf-
irlit um jarðeignir sveitarfélagins
ásamt þeim kvöðum sem þeim
fylgja og kvaðst Gísli Gunnars-
son forseti sveitarstjórnai- þegar
hafa beðið Sigurð Haraldsson á
Grófargili starfsmann sveitarfé-
lagsins að taka saman það yfirlit.
enda þekkti hann talsvert til
þeirra mála. Gísli sagði að það
væri líka ótækt að ekki væri
hægt að verða við beiðnum fólks
sem vildi kaupa land og flytja í
fjörðinn.T.d. hefði einum aðila
verið synjað í tvígang um land.
Stefán Guðmundsson sagðist
vera ósamála þeirri afgreiðslu
landbúnaðarnefndar að leigja
ekki rjúpnaveiðiréttin. „Mér
finnst skynsamlegt að leigja
þeim aðilum sem eru að berjast í
ferðaþjónustu hér í Skagafirði
aðstöðu til að geta stýrt þessum
veiðiskap. Það erengin spuming
í mínum huga að rnikil og vax-
andi ásókn manna er í slfkt og
þykist vita að það er víðast hvar
stjómlaust hvemig menn ganga
um þessi svæði”, sagði Stefán en
öðmm fannst slæmt ef veiði-
lendur yrðu lokaðar almenningi,
nóg væri af slíku í Skagafirði og
það væri slæmt fyrir þá sem ættu
lítið af vinum og vandamönnum
út um sveitir héraðsins, en það
var Snorri Styrkársson sem benti
á þennan ókost boða og banna.
...bílar, tiyg^ngar,
bækur, ritföng,
framköllun, rammar,
tímarit, ljósritun,
gjafavara...
BÓKABÚÐ
BRYWJARS
SUÐUBGÖTU 1 SÍMI 453 6950
TOYOTA
- tákn um gæði
Lögreglan á Blöndu-
ósi á hrakhólum
Lögreglan á Blönduósi býr við
bráðabyrgðaástand í húsnæð-
ismálum á þessum vetri en
mun með vorinu komast í
endurbætt og rýmra húsnæði.
Framkvæmdir eru hafnar við
endurbætur á húsnæðinu á
Hnjúkabyggð 33 og þar bætist
við á jarðhæðinni pláss sem
söfnin voru með áður og vað-
ur þar komið fyrir bflageymsl-
um lögreglunnar, sem sárlega
hefur vantað.
Lögreglan færði sig upp á
þriðju hæðina meðan þetta rask
stendur yfir en sýslumannsemb-
ættið keypti það húsnæði af Hér-
aðsbókasafninu og héraðsskjala-
safninu, en héraðsnefndin keypti
húsið að Hnjúkabyggð 30 fyrir
söfnin og hefur því húsnæði ver-
ið breytt til þeirra nota, en þarna
var áður til húsa saumastofan
Eva. Bókasafnið var opnað á
nýjum stað í síðustu viku en ein-
hver bið verður á því að héraðs-
skjalasafnið hefji þar sína starf-
semi og formleg vígsla þessa
nýja húsnæðis safnanna fari
fram. að sögn Þorvalds G. Jóns-
sonar safnsstjóra.
Þetta húsnæðisástand hjá
lögreglunni á Blönduósi gerir
það að verkum að hún þarf að
vera upp á embættin í Borgar-
nesi og Sauðárkróki komin ef
vista þarf fólk í fangaklefa, eins
og gerðist á dögunum þegar æði
rann á skoska sláturhússtarfs-
menn á Hvammstanga og
Blöndóslögregla varð að flytja í
Borgarnes. Hinsvegar var allt
með kyrrum kjörum bæði hjá
Blönduóslögreglu og lögregl-
unni á Sauðárkróki um helgina.
Meira veitt af tófu í
Skagafírði en áður
Alls voru veiddar 307 tófur
í Sveitarfélaginu Skagafirði á
síðasta veiðitímabil sem var lfá
1. sept. ‘99 til 31. ágúst sl.
Þetta er 50 dýrum fleira en árið
á undan og kostnaðurinn varð
4.7 millj. króna, hækkaði unt
rúma milljón frá fyrra ári. f
skýrslu sem Sigurður Haralds-
son þjónustufulltrúi í Varma-
hlíð hefur tekið saman um
minka- og refaveiðar kemur
fram að alls voru unnin 39
greni í vor. Fullorðin dýr voru
142 en yrðlingar 165. Kostn-
aður á hvert veitt dýr varð lið-
lega 15 þúsund krónur.
Á sama tíma veiddust 238
minkar sem er 46 dýrum færra
en ári á undan þar nam heildar
kostnaður tæplega 1,1 millj.
króna. Kostnaður við veiðam-
ar hjá sveitarfélaginu varð því
tæpar 5,8 milljónir. Af því
munu fást unt ein milljón
króna endurgreitt frá ríkissjóði.
Það sem sveitarstjómar-
mönnum hefur sviðið hvað
mest varðandi kostnað við
þessar veiðar er að þegar ríkis-
váldið lækkaði endurgreiðslu-
hlutfallið fyrir nokkrum árum
varð þessi vinna virðisauka-
skattskyld. Þykir mönnum af-
leitt að þau sveitarfélög sem
reyni að halda þessum rándýr-
um í skefjum skuli vera skatt-
lögð af ríkinu. Hinsvegar séu
dæmi um sveitarfélög sem
ekki sinni þessum veiðum sem
skyldi, og auki þar með kostn-
að þeirra sem halda uppi
skipulagðri leit og vinnslu á
hverju ári. ÖÞ.