Feykir - 29.11.2000, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Hugbúnaðarkerfi fvrir íbúðalánasjóð
Fjárvaki í samvinnu
við indverskan aðila
Á vegum Fjárvaka á Sauð-
árkróki er unnið að innleiðingu
og aðlögun hugbúnaðarkerfis
fyrir íbúðalánasjóð sem tekið
verður í notkun á næstunni. Að
sögn Orra Hlöðverssonar fram-
kvæmdastjóra Fjárvaka, dóttur-
fyrirtækis KS, er mikið að ger-
ast hjá fyrirtækinu sem starfar
aðalega í hugbúnaðargeiranum
og beinir sínu starfi að bönkum
og fjármálastofnunum.
Orri segir að Fjárvaka sé í
sjálfu sér ekki ætlað að þenjast
út hvað starfsmannafjölda
varðar, heldur verði ráðnir
menn til að vinna einstök verk-
efni, og önnur fyrirtæki njóti
þannig góðs af starfsemi Fjár-
vaka. Fyrirtækið er í góðu sam-
starfi við Element, en varðandi
verkefnið hjá Ibúðalánasjóðn-
um, sem er það stærsta hjá Fjár-
vaka í dag, hafa tveir Indverjar
verið að forrita síðan á liðnu
vori og em þeir mikilvægir að-
ilar við innleiðingu hugbúnað-
arins. Þeir em starfsmenn ind-
verks samstarfsaðila Fjárvaka,
þess sama og Halldór Ásgríms-
son utanríkisráðherra heimsótti
í för sinni til Indlands samhliða
forsetaheimsókninni á dögun-
um.
„Indverjar standa mjög
framarlega í hugbúnaðargerð í
heiminum og þessir samstarfs-
aðilar okkar vom mjög ánægð-
ir með heimsóknina og það er
gott að efla samstarfið á þennan
hátt”, segir Orri en honum
bauðst að taka þátt í þessari
heimsókn í indverska hugbún-
aðarhúsið.
Einhugur um Hjálmar
Séra Hjálmar Jónsson hefur
verið ráðinn í starf dómkirkju-
prests í stað sr. Hjalta Guð-
mundssonar sem senn lætur af
stöfum. Valnefnd var einróma
um ráðningu Hjálmars en aðrir
umsækjendur vom séra Jón Að-
alsteinn Baldvinsson sendiráðs-
prestur í London og Sigurður
Ámi Þórðarson starfsmaður á
biskupsstofu.
Gert er ráð fyrir að Hjálmar
taki við starfinu í febrúarbyrjun.
Ekki er ákveðið hvenær hann
hættir á þingi en sæti hans tekur
Sigríður Ingvarsdóttir frá Siglu-
firði. Hjálmar sagðist í samtali
við útvarpið aldrei hafa ætlað að
gera þingmennsku að ævistarfi,
Séra Hjálmar Jónsson.
enda stæði trúarsannfæring sín
dýpra en stjómmálaskoðanir.
Unnið að löndun úr Málmey í gær.
Farið í síðasta túrinn fyrir jól
Málmey kom til hafnar á Sauðárkróki nú í
vikubyrjun með aflaverðmæti fyrir 62 milljónir
króna eftir 23 daga veiðiferð, sem þykir ágætt
miðað við þau aflabrögð sem verið hafa lengst
af þessu ári. Skipið var með 380 tonn upp úr sjó,
240 tonn af afúrðum, þriðjungurinn grúlúða,
svipað af þorski og afgangurinn blandaður afli.
Málmeyjan fer nú í svipan túr að tímalengd.
„Við emm að stilla okkur af fyrir jólin”, segir
Gísli Svan Einarsson útgerðarstjóri Fiskiðjunn-
ar Skagfirðings en öll skip fyrirtækisins verða í
landi yfir hátíðamar eins og mörg undanfarin.
Það er af sem áður var að skip sigldu reglulega
með aflann á erlenda markaði, og sérstaklega
þótti það álitlegt að fá gott verð fyrir aflann í
kringum hátíðamar, jól og páska.
Fundað um lausagönguna
Boðaður hefur verið fundur hjá landbúnaðar-
nefhd Sveitarfélagsins Skagaijarðar nk. föstudag.
Á fúndinum verður fjallað um lausagöngumál og
hefur verið óskað eftir að vegagerðin, lögreglan
og tryggingarfélögin sendi fúlltrúa sína til fúndarins.
Áð sögn Bjama Egilssonar formanns land-
búnaðamefndar er það af gefnu tilefni sem boð-
ar er til þessa fundar. „Við ætlum að skoða þessi
mál mjög alvarlega. Það verður farið yfir þau al-
veg frá a til ö. Obreytt ástand er ósættanlegt”,
sagði Bjami en talsvert er um búfé í lausagöngu
í héraðinu og girðingar meðffam vegum sum-
staðar engar eða lélegar. Alvarlegt rútuslys í
Fljótum á dögunum hefur sett þessi mál í brenni-
depil.
Þess má geta að þrír að gömlu hreppnum
höfðu samþykkt bann við lausagöngu búfjár á
sínu svæði áður en til sameiningar kom og er
ekki annað vitað en þær samþykktir séu enn í
fullu gildi. Þetta em Skarðshreppur, Lýtings-
staðahreppur og Hofshreppur. Ætla má að nú
verði auðveldara að samræma þessi mál þegar
Skagafjörður utan Akrahrepps er orðinn eitt
sveitarfélag.
—ICfcHSÍf! chjDI— JítfMbílaverkstæði
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 Æ 1111 sími: 453 5141
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmundargafa lb 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA ^Bflaviðgerðir Hjólbarðaviðgerðir
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA Réttingar # Sprautun