Feykir - 06.12.2000, Page 8
6. desember 2000,42. tölublað, 20. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
L A KJÖRBÓK m
Mmú L 7^ Vinsœlasti sérkjarareikningur íslendinga 1
L A hœstuávöxtun íáratug! Bf Landsbanki ísiands flU í forystu til framtíðar
MJk N, Útibúið á Sauðárkrókí - S: 453 5353 .
Þeir kalla sig Fimmkallana, ungir harmonikkuleikarar frá Hofsósi sem léku á stofnfundi
Stéttarfélagsins Öldunnar sl. laugardag, og hlutu mikið lof viðstaddra.
Mjólkursamlag Kaupfélags Skagfirðinga
Opið hús í tilefni 65 ára afmælis
Mjólkursamlag Skagfirðinga
hefur um þessar mundir verið
starfrækt í 65 ár. Af því tilefni
verður nk. laugardag opið hús
í samlaginu frá kl. 12 til 15,
þar sem almenningi gefst
kostur á að skoða vinnslulín-
una og bragða á framleiðslu-
vörum. Starfsmenn samlags-
ins verða á staðnum og kynna
gestum starfsemina, en allir
eru velkomnir.
Á starfstíma MKS hefur orð-
ið mikil þróun í mjólkurfram-
leiðslu og samhliða því að fram-
leiðendum hefur fækkað á síð-
ustu árum, hefur meðalbúið
stækkað og framleiða þau nú að
jafnaði vel yfir 100.000 lítra.
Tekur samlagið nú á móti um 10
milljónum lítra af mjólk á ári.
Áð sögn Snorra Evertssonar
mjólkursamlagsstjóra hafa for-
ráðamenn KS lagt mikla áherslu
á að búnaður samlagsins sé þró-
aður og endurnýjaður og sé jafn-
an í takt við kröfur tímans. Nú
nýverið lauk gagngerum endur-
bótum á framleiðslulínum fyrir
osta og var vinnsluformi sam-
lagsins breytt verulega í tengsl-
um við það. Miða breytingar
einkum að því að tryggja sem
best framleiðslugæði og hrein-
læti.
Aðal framleiðsluvörur sam-
lagsins hafa lengst af verið fastir
ostar og hafa starfsmenn MKS
náð góðum árangri í gerð þeirra
og hlotið fjölda verðlauna fyrir
framleiðslugæði, bæði innan-
lands og utan. Mest er framleitt
af 17% og 26% gouda-ostum og
mozzarella-osti, en að auki er
talsvert af hinum þekkta mari-
bou-osti, með eða án kúmens,
sem og sælkeraostinum Gretti
og skólaostinum Gotta. Frarn-
leiðsla ferskostsins mozzarella
fer stöðugt vaxandi, og helst það
í hendur við auknar vinsældir
ítalskra rétta, s.s. pizza og pasta-
rétta.
Að auki vinnur samlagið og
selur á heimamarkaði allar al-
gengustu ferskvörur úr mjólk,
þ.e. nýmjólk, léttmjólk, súr-
mjólk, undanrennu og rjóma. Þá
er framleitt verulegt magn af
bragðbættri súrmjólk sem seld er
um land allt og nýtur mikilla
vinsælda. Þá er talsvert strokkað
af smöri og smjörva hjá samlag-
Óskilahross eru
vaxandi vandamál
Nokkuð hefur verið um ó-
skilahross í Húnaþingi vestra í
ár, sem og áður, en fer þó vax-
andi. Þetta kom fram á fundi
landbúnaðamefndar fyrir stuttu.
Þegar slík mál koma upp er kerf-
ið mjög stirrt og þungt, og um
langt ferli að ræða, þannig að
hross eru lengi í vistun hjá þeim
sem fangar þau, með tilheyrandi
kostnaði fyrir sveitarfélagið og
oft ama fyrir fangarann, sérstak-
lega ef aðhald er ekki nægjan-
lega gott. Landbúnaðamefndin
hefur beint því til sveitarstjóm-
ar að finna einhvem flöt á því að
auðvelda vinnuferli vegna
óskilahrossa, en þetta mun vera
vandamál víðar en í Húnaþingi
vestra.
nefndar kom fram að nefndar-
menn vilja sjá betri samantekt á
niðurstöðum grenjavinnslunnar,
þannig að glöggt verði hverju
samningar við veiðimenn skila.
Samningamir voru til tveggja
ára og því er komið að endur-
skoðun þeirra og því telja nefnd-
armenn sig þurfa að hafa skýrari
niðurstöður.
Einnig kom fram á fundin-
um að líklega yrði ekkert gert í
vetur vegna fjárkláðans þar sem
samstöðu vanti í A.-Hún. og
Skagfirði, en hinsvegar mun
vara samstaða í Húnaþingi
vestra. Landbúnaðamefndin tel-
ur bráðnauðsynlegt að vinna bug
á þessari óvæm. Því fyrr, því
betra“, segir í fundargerð
Á sama fundi landbúnaðar- nefndarinnar
Saurkoligerlar í neyslu-
vatni Varmhlíðinga
Við rannsókn á neysluvatni í
vatnstanki í Varmahlíð í síðustu
viku kom í ljós að talsvert magn
af saurkoligerlum var í vatninu.
íbúum í Varmahlíð hefur vedð
bent á að sjóða neysluvatn fyrst
um sinn, en ekki er vitað til þess
að þessi óhreinleiki vatnsins haft
valdið veikindum hjá íbúum við
neyslu þess.
Tekin hafa verið fleiri sýni og
er vonast eftir niðurstöðum úr
þeim jafnvel í dag, miðvikudag.
Rannsóknin beinist einkum að
öðm tveggja vatnsbólanna í
Varmahlíð, en verið var að vinna
við það skömmu áður en þessar-
ar mengunar í vatninu varð vart.
Vönast er til að Varmhlíöingar
fái ómengað neysluvatn að nýju
á allra næstu dögum.
Þrjú ný fyrirtæki af stað á Skagaströnd
Þjónustufyrirtækjum er heldur betur
að tjölga á Skagaströnd þessa dagana,
en í gær, þriðjudag, hófu þrjár konur
sjálfstæða starfsemi í sama húsinu á
staðnum. Það er í Iðavöllum sem er við
hliðina á kirkjunni, gamalt hús sem
konumar keyptu fyrir nokkru og hafa
endurbætt myndarlega.
Það em systumar Björk og Bima
Sveinsdætur og mágkona þeirra Hafdís
Ásgeirsdóttir sem standa saman að Iða-
völlum og er hvor með sína starfsemina.
Hafdís starfrækir hársnyrtistofu, Birna
snyrtistofu, og báðar heita þessar stofur
Vtva. Síðan er á Iðavöllum verslunin Ris-
ið sem Björk Sveinsdóttir rekur, en Björk
ætlar að versla með fatnað og gjafavöm.
Ekki hefur verið verslað með fatnað lengi
á Skagaströnd, að sögn Bjarkar, og ekki
með gjafavöru síðan blóma- og gjafa-
verslunin hætti starfsemi fyrir nokkm.
Snyrtistofa hefur ekki áður verið starf-
rækt á Skagaströnd og hársnyrtistofa hef-
ur ekki verið þar lengi, en hársnyrtimeist-
arar frá Kúnst á Sauðárkróki hafa verið
duglegir að snyrta Skagstrendinga og ná-
granna á undanfömum ámm.
...bílar, tiyggrigar,
bækur, ritföng,
framköllun, ra.mmaf,
tímajft, ljósritun,
gjafavara...
BÓKABÚÐ
BRYBJARS
SUÐUROCmj 1 StMI 453 5950