Feykir - 13.06.2001, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Lokið við fráveituna
við Blöndu í haust
Gott atvinnuástand er á
Blönduósi og engin vandkvæði
með vinnu handa skólafólki.
Skúli Þórðarson bæjarstjóri
segist hafa fregnað að einstök
fyrirtæki hafi frekar vantað
fólk en hitt og verkefnastaðan
sé ágæt. Eins og síðustu miss-
erin er langstærsta verkefni
bæjarsjóðs tengt fráveitu-
mannvirkjunum og stefna
forráðamenn Blönduósbæjar
að uppfvlla þau skilvrði sem
sett eru varðandi fárveituna.
„Við erum að ljúka á þessu
ári íráveituffamkvæmdunum og
þær eru langstærsti fram-
kvæmdaliðurinn, síðan er það
þetta venjubundna viðhald og
minni framkvæmdir”, segir
Skúli en á þessu ári ver Blöndu-
ósbær um 25 milljónum í fráveit-
una. Þrír verktakar vinna í sam-
einungu að framkvæmdunum
Steypustöð Blönduóss, Tré-
smiðjan Stígandi og Pipulagna-
verktakar. Allt fráveitukerfið
norðan Blöndu er endumýjað og
byggð hreinsistöð við sjávarmál-
ið skammt frá ósnum neðan
mjólkurstöðvarinnar og iðnaðar-
húsanna.
Ljóst er að með þessum mikl-
um íramkvæmdum er Blönduós
komin talsvert ífamar en önnur
sveitarfélög á norðanverðu land-
inu hvað ffáveitumálin varðar og
sýnir mikið fordæmi í þessum
málum, en mörg þeirra standa
ffammi fyrir því að þurfa að ráð-
ast í mjög kostnaðarsamar ffam-
kvæmdir á næstu árum.
Útlán hjá Héraðsbókasafni Skagfirðinga eru orðin raffæn. í gær
var fyrsta raffæna kortið afhent lánþega númer eitt, Hjalta Pálssyni,
fyrrverandi safnverði. í máli Dóru Þorsteinsdóttur forstöðumanns
bókasafiisins kom ffam að síðustu fimm árin hefiir verið unnið að
tölvuskráningu saffisins og hafa átt sér stað um 26.000 færslur og
eru útlán á ári því rúm fimm þúsund. Þá verður hægt að nálgast
upplýsingar um bóka og myndbandakost safnsins á heimssíðu og
einnig á safninu unnt að fara inn á intemetið gegn vægu gjaldi.
A myndinni er Anna Pálsdóttir starfsmaður bókasafusins að af-
henda Hjalta korfið í gær. Þær fylgjast með Dóra Þorsteinsdóttir
forstöðumaður og Nanna Jónsdóttir starfsmaður safusins.
Skúli Skúlason skólameistari tilgreinir rétti bleikjuborðins fvrir Guðna ráðherra við
upphaf bleikjuveislunnar á Hólum sl. laugardag.
Bleikjueldisstöð tekin í
notkun á Hólum í Hjaltadal
Sl. laugardag opnaði Guðni
Agústsson landbúnaðarráð-
herra nvja seiðaeldisstöð fyrir
blcikjukynbætur á Hólum í
Hjaltadal. Kvnbótastöðinni
hefur verið komið fyrir í göm-
lum fjárhúsum, sem upp-
haflega voru teiknuð af Guð-
jóni Samúelssyni, en hafa
verið innréttuð fyrir þessa
nýju starfsemi. Við hönnun
kynbótaaðstöðunnar hefur
verið tekið mið af rannsókn-
um og þróunarvinnu á sviði
hlcikj ueldis sem farið hefur
fram við Hólaskóla. Eld-
isvatnið er hreinsað og endur-
nýtt þannig að vatnsnotkun
og umhverfismengun frá
stöðinni er haldið í lágmarki.
Að mati Helga Thorarensen
deildarstjóra fiskeldisbrautar
Hólaskóla er fátt sem getur bætt
meira afkomu og samkeppnis-
stöðu íslenskra fiskeldisstöðva
en kynbætur. Frá 1992 hefúr
Hólaskóli annast kynbætur á
bleikju og árið 1998 gerði land-
búnaðarráðuneytið sérstakan
samning við Hólaskóla um þessa
starfsemi. Jafhframt var hafist
handa við það að bæta aðstöðu á
Hólum fyrir kynbótastöðina.
A Hólum er miðstöð á Is-
landi fyrir kennslu og rann-
sóknir á sviði fiskeldis. Kyn-
bótaaðstaðan nýja er fyrsti
áfangi í uppbyggingu húsnæðis
fyrir kennslu og rannsóknir á
sviði fiskeldis á Hólum sem
stefnt er að Ijúka á næstu ámm.
Við upphaf dagskrár á laugar-
daginn bauð skólinn gestum til
hádegisverðar. Á borðum vom
úrvals bleikjuréttir frá Hóla-
eldhúsinu. Við opnunarathöfn-
ina vék Guðni Ágússon land-
búnaðrráðherra að þeirri upp-
byggingu sem átt hefúr sér stað
á Hólastað síðustu áratugina og
mikilvægi rannsókna og kennslu
í greinum er tengjast landbún-
aðinum. Þá afhenti framkvæmda-
stjóri fóðurverksmiðjunnar ís-
tess að gjöf tölvustýrt stjóm-
borð fyrir seðaeldisstöðina.
í ávörpum annarra er til
máls tóku, m.a. Jóns Bjama-
sonar alþingismanns og fyrrum
skólastjóra á Hólurn og Skúla
Skúlasonar skólameistara, kom
fram að margir hafa komið að
málum og eiga þakkir skildar
fyrir uppbyggingarstarfið að
Hólum. Að byggingu nýju
seiðaeldisstöðvarinnar komu
ýmsir ffammámenn í héraði og
hjá ráðuneyti auk iðnaðarmanna
er unnu verkið.
—ICTcH^ÍI! chjDI— SíMfMbílaverkstæöi
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 Æ ÆJLM-Æ. sími: 453 5141
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmundargata lb 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA ^Bílaviðgerðir 0 Hjólbarðaviðgerðir
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA 0 Réttingar ^ Sprautun