Feykir - 13.06.2001, Page 2
2 FEYKIR 22/2001
Góður árangur Árskólanema
á samræmdu prófunum
Hera Birgisdóttir og Kristín María Gísladóttir fulltrúar 10.
bekkjar aflienda bókagjafír til skólans. Það eru Óskars G.
Björnsson skólastjóri seni veitir þeim viötiiku.
Fimmtudaginn 31. maí sl. var
Arskóla slitið við hátíðlega
athöfn í skólanum. I vetur voru í
Arskóla 24 bekkjardeildir með
442 nemendum. Skólaslit voru
hjá yngri bekkjardeildum fyrir
hádegi í bamaskólahúsinu við
Freyjugötu, en eldri bekkjardeil-
dum eftir hádegi í
gagnfræðaskólahúsinu við
Skagfirðingabraut.
Vegna þrengsla í húsnæði
skólans er sá háttur hafður á að
nemendur hvers árgangs fyrir
sig mættu til skólaslita, en síðan
vom formleg skólaslit síðar um
daginn fyrir 9. og 10. bekk.
Athöfnin hófst með ávarpi
Óskars G. Bjömssonar skóla-
stjóra. Þá var tónlistaratriði flutt
af nemendum 10. bekkjar. Að-
stoðarskólastjóri Hallfriður Sverr-
isdóttir sagði frá starfi vetrarins,
fúlltrúar eldri nemenda skólans
fluttu ávörp, fyrir 10 ára útskrif-
tamema Sigrún Amardóttir og
færði hún skólanum gjöf, og
fúlltrúi árgangs 1957, Ómar
Bragi Stefánsson, semjafnframt
veitti vióurkenningu fyrir störf
að félagsmálum. Fonnaður nem-
endaráðs, Kristín Gísladóttir,
sagði frá vinnu 10. bekkinga í
vetur og afhenti skólanum
bókargjöf, umsjónarkennurum
blóin og bækur og Kristínu
Jónsdóttur blóm fyrir óeigingjama
vinnu fyrir skólafélagið.
Óskar Björnsson skólastjóri
veitti viðurkenningar og afhenti
ásamt umsjónarkennurum 10.
bekkjar útskriftarskírteini, og
allir nemendur fengu rós ffá
skólanum og gjafabók frá Máli
og menningu. Skólastjóri kvaddi
síðan nemendur og þakkaði
þeim frábæra samveru og í lok
athafnarinnar sungu 10. bekk-
ingar skólasönginn. Öllum
viðstöddum var svo boðið upp á
veitingar í félagsaðstöðu skólans.
Árangur í samræmdum pró-
fúm var mjög góður og vom
einkunnir yfir landsmeðaltali í
öllum fjórum greinum. í íslensku
var Áskóli 0,2 yfir, sömuleiðis í
stærðffæði og dönsku og í ensku
0,5 yfir landsmeðaltalinu.
Viðurkenningar fyrir góðan
námsárangur hlutu Sólveig
Margrét Karlsdóttir fyrir íslen-
sku, dönsku og ensku, Hera
Birgisdóttir fyrir stærðfræði,
Ámi Viggó Sigurjónsson fyrir
alhliða námsárangur, Kristín
María Gísladóttir fyrir heimilis-
ffæði og störf að félagsmálum
og Stefanía F. Björgvinsdóttir
fyrir handmennt.
Hefð er fyrir því að danska
sendiráðið gefi veglega danska
orðabók. Rótaríklúbbur Sauðár-
króks veitir þrenn verðlaun, tvö
fyrir tungumál og síðan velur
forseti ein verðlaun sem tengjast
gjaman hans atvinnugrein. I vor
var það Snorri Evertsson sem
valdi viðurkenningu fyrir heim-
ilisffæði. Þá veitir Kvenfélaga-
samband Skagafjaröar verðlaun
fyrir handmennt og jafnffamt
færði formaður þess, Sigrún
Aadnegard, ölluin nemendum
10. bekkjar að gjöf bækling og
upplýsingaspjald urn meðferð
þvotta.
Ásdís.
Tónlistaratriði frá 10. bekkingum. Stefanía Björgvinsdóttir
syngur og þeir Björn Magnús Árnason. Magnús Barðdal og
Árni Viggó Sigurjónsson leika undir. Myndir Trausti Helga.
Skagafjörður
VINNUSKÓLINN
8. BEKKUR á SAUÐÁRKRÓKI MÆTI MÁNUDAGINN 18.
JÚNÍ kl 9.00 í VINNUSKÓLANN, BORGARTÚNI 8.
Á HOFSÓSI ÁAÐ MÆTA KL. 8:00 VIÐ GRUNNSKÓLANN.
Flokkstjórar.
1 mr Flf 7't
1 Lm
1
■ ^ ■; . . k
1 ■ xflfl ■
í 1
Fulltrúar styrkþega menningarsjóðs Kaupfélags Skagfirð-
inga ásamt Stefáni Guðmundssyni formanni sjóðsstjórnar.
Menningarsjóður KS
Styrkjum úthlutað
til sjö aðila
Meginúthlutun úr menning-
arsjóði Kaupfélags Skagfirð-
inga fyrir þetta ár fór ffam sl.
miðvikudag, en þar var sjö
aðilum veittir styrkir, að
upphæð 50.000 krónur hver
styrkur. Fram kom í ávarpi
Stefáns Guðmundssonar for-
manns sjóðsstjórnarinnar að í
athugun er breytt fyrirkomulag
á úthlutnunum á næsta ári, að
ffamlögunum fækki en stefnt að
því að hærri upphæðir komi til
hvers aðila. Stjórn sjóðsins
vonast til að með þessari
nýbreytni megi framlög sjóðs-
ins verða sýnilegri og að enn
meira gagni fyrir ntenningar- og
framfaramál í héraði.
Menningarsjóðurinn er 40
ára á þessu ári. Á starfstíma
sjóðsins hefúr hann styrkt marg-
víslega menningar- og þjóð-
þrifastarfsemi i héraði: kóra,
leikfélög, bjöigunarsveitir, íþrótta-
félög og einstaklinga til ýmiss
konar verkefiia. Framreiknað til
verðlags ársins 2000 námu
úthlutanir sjóðsins á árunum
1962, þegar fyrst var úthlutað, til
ársins 2000, um 24,3 milljónum
króna. Er því þess að vænta að
stuðnings sjóðsins ltafi víða séð stað.
Meðal þeirra aðila er hlutu
nú styrk úr menningarsjóðnum
var Karlakórinn Heimir, en
kórinn hefúr eins og fleiri félaga-
samtök margoft fengið stuðning
ffá sjóðnum. Páll Dagbjartsson
stjómarformaður Heimis sagði
af því tilefhi að það væri starfi
kórsins ekki síður mikilvægt að
eftir því væri tekið á heimavelli
og vék lofsorði að starfi
menningarsjóðsins um leið og
hann fór yfir síðasta starfsár
kórsins og hvað væri á döfinni,
en m.a. er á leiðinni nýr geisla-
diskur. Félag eldri borgara í
Skagafirði hlaut einnig styrk og
að því tilefni sagði Guðmundur
Márusson stjómarformaður fféttir
af starfinu. Aðrir em hlutu styrki
að þessu sinni voru Leikfélag
Sauðárkróks, Rökkurkórinn,
Kammerkór Skagafjarðar,
Skagfirska söngssveitin og
samtök um varðveislu menn-
ingarminja.
Feykir kemur
næst út 27. júní
Þar sem tími sumarleyfa fer nú í hönd
verður sú breyting á útgáfu Feykis að
blaðið kemur út annan hvern
miðvikudag næstu tvo mánuðina.
Kernur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf.
Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box 4,
550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703.
Mvndsími 453 6703. Farsínii 854 6207. Netfang:
feykir @ krokur. is. Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson.
Fréttaritari: Öm Þórarinsson.
Blaðstjórn: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guð-
brandsson, Sæmundur Hennannsson, Sigurður
Ágústsson og Stefán Árnason.
Áskriftarverð 170 krónur hvert tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og
umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hf.