Feykir - 27.03.2002, Side 5
11/2002 FEYKIR 5
Ástæðan fyrir slitum meirihlutans
Nú hefur ástæðan fyrir slit-
um meirihlutasamstarfs Sjálf-
stæðis- og Framsóknarflokks
birst í sinni réttu mynd. Hags-
munagæsla þessara flokka
hentaði ekki Kaupfélagi Skag-
firðinga og því var myndaður
nýr meirihluti framsóknar og
Skagafjarðarlista KS.
Nú er komin upp drauma-
staða Þórólfs Gíslasonar kaup-
félagsstjóra að geta vasast með
málefni sveitarfélagsins til
hagsbóta fyrir KS. Bæjarstjór-
inn var látinn fjúka. Rafveita
Sauðárkróks seld og rafveitu-
stjórinn fékk líka að fjúka. Þar
sem Þórólfur Gíslason var að
verða nokkuð ofhlaðinn varð
að ráði að ráða „ódýran “
starfsmann á skrifstofur Sveit-
arfélagsins sem hafði í mán-
aðalaun árslaun verkamanns
með því skilyrði að hann væri
við á skrifstofunni tvo til þrjá
daga í viku. Nú gat Þórólfur
snúið sér að skipulagi skrif-
stofuhalds á Sauðárkróki, því
þar er hann verulega útsjónar-
samur. Fyrst flutti hann Ibúða-
lánasjóðsskrifstofuna af þriðju
hæð KS niður á aðra hæð KS,
þá flutti hann Byggðatofnun úr
eigin húsnæði á þriðju hæð KS
og því næst Element af þriðju
hæð KS í skrifstofuhúsnæði
Sveitarfélagsins og skrifstofur
Sveitarfélagsins í húsnæði
Byggðastofnunar. Þarna er
Þórólfur að spara ríkinu nokkra
tugi milljóna í fjárfestingu í
skrifstofuhúsnæði sem
Byggðastofnun ætlaði að
kaupa af Sveitarfélaginu.
Svo er KS búið að fá feikna
tekjur vegna vinnu við allar
þessar breytingar og flutninga
og Sveitarfélagið fær líka að
borga þokkalegan aukakostnað
af gjörðum Þórólfs. Enn var
botninum ekki náð í afskiptum
Þórólfs Gíslasonar kaupfélags-
stjóra af Sveitarfélaginu. Nú
skyldi seilast til Steinullarverk-
smiðjunnar fyrirtækis sem
mestur arður er af í Skagafirði
og koma því úr höndum
heimamanna, sem hafa setið í
meirihlutastjóm þess og gætt
hagsmuna íbúanna af kost-
gæfni. Þórólfur tók sér það
vald að gerast útsölustjóri á
hlutabréfum Sveitarfélagsins,
því stutt er í sveitarstjómar-
kosningar og enginn tími má
fara til spillis ef KS á að takast
að ná afgerandi eignarhaldi á
verksmiðjunni.
Þórólfur fékk tvö markaðs-
ráðandi fyrirtæki á sölu stein-
ullar á suðvesturlandi til sam-
starfs við KS um að yfirtaka
verksmiðjuna. Eftir yfirtöku
verður kallaður saman hlut-
hafafundur og þar kosin ný
stjóm og nýr stjómarformaður.
Þessi nýi formaður fer í næsta
banka og tekur lán fyrir hönd
verksmiðjunnar fyrir allri þeirri
upphæð sem nýju hluthafamir
undirgengust að greiða fyrir
hlutabréfin og þannig eignast
þeir Steinullarverksmiðjuna án
þess að greiða eina krónu.
Sveitarfélagið Skagafjörður gat
lika keypt verksmiðjuna á
sama hátt, með þátttöku starfs-
manna, en án þátttöku KS og
tryggt að öll arðsemi hannar
yrði eftir heima í héraði og það
verður að segjast að það munar
um 150 til 200 milljónir í sam-
félagið í Skagafirði á ári.
Svona einfaldir hlutir geta
ekki gerst þar sem Framsókn-
arflokkurinn hefúr allt öðram
hnöppum að hneppa en styðja
við afkomu Sveitarfélagsins.
Svo má spyija hvar eru úr-
lausnir Sjálfstæðisflokksins í
svo einföldum málum. Helst
mætti halda að Sjálfstæðis-
flokkurinn sé of upptekinn við
að vera í stjórnarandstöðu, að
hann sjái ekki við einfoldum
leikfléttum kaupfélagsstjórans
og ffamsóknar, sem allar mið-
ast að því að gera Sveitarfélag-
ið að féþúfu fyrir KS. Það
mætti rifja það upp hvernig
Hofsóshreppur missti togarann
Skaffa þegar Útgerðarfélag
Skagfirðinga var lagt niður og
hvemig KS komst yfir 80% af
skipakosti Útgerðarfélagsins.
Þar var hagur Sauðárkróks og
annarra hluthafa algjörlega
fyrir borð borinn. Það em
sömu öflin á ferðinni í fram-
sókn með sömu markmiðin
um að draga alla æta bita und-
ir Kaupfélagið jafnvel þó rekst-
ur þess sé kominn á það stig að
veltan standi í stað ár effir ár á
verðbólgutímum, sem er
hættumerki i rekstri og því full
ástæða til að skipta út kaupfé-
lagsstjóranum. Þessi atlaga
kaupfélagsstjórans að Steinull-
arverksmiðjunni gerir það að
skammaryrði að vera í stjóm
KS og mun rjúfa tiltrú Skag-
firðinga á Kaupfélaginu.
Hvemig ætlar Þórólfur
Gíslason og Framsóknarflokk-
urinn að koma í veg fyrir að
Húsasmiðjan og BYKO kaupi
2,1% umfram samkomulag
þeirra við KS og nái þar með
meirihluta í Steinullarverk-
smiðjunni. Hver er staða
heimamanna þá!!!!!
Pálmi Sighvatsson.
Besti rapparinn
frá Sauðárkróki
Það verður ekki annað sagt
en ungmenni frá Sauðárkróki
hafi verið áberandi á tónlistar-
sviðinu um síðustu helgi. Auk
sigursins í Söngkeppni ffam-
haldsskólanna stóð hljómsveit-
in „Tannlæknar andskotans”
sig vel í Músíktilraunum sem
fram fóm sl. föstudagskvöld.
Þar var valinn besti rapparinn
Kristinn Loftur Einarsson.
Það hefur verið viðburðar-
rikt hjá Krimi Loffi undanfarið,
en hann var einn aðalleikarinn
og söngvarinn í sýningu 10.
bekkjar Arskóla á Hárinu og er
myndin af Kristni í hlutverki
sinu í þeirri sýningu. Aðrir
meðlimir „Tannlækna andskot-
ans” em þeir Arni Sæmundur
Guðmundsson og Oddur
Tryggvi Elvarsson.
Snj ósleðafólk
Snjósleðaolíur, reimar, hjálmar og margt
fleira fyrir sleðaútgerðina
Delpi rafgeymar í flestar bifreiðar
Vredestein fólksbílahjólbarðar,
margar stærðir
Bílabúð Sauðárkróki