Feykir - 18.12.2002, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 44/2002
Á braut friðar
og réttlætis
Jólin koma til okkar í
svartasta skammdeginu, rétt um
það leyti sem sólargangur er
styttstur á árinu. Ljós og boð-
skapur jólanna hjálpar okkur til
að bægja myrkrinu frá einmitt
þegar það er svartast og þegar
jólahátíðinni er lokið fer daginn
smám saman að lengja og líða
fer að hinu langþráða vori.
íslendingum verður oft tíðrætt
um veðrið og ekki er hægt að
segja að veðrið á aðventunni hafi
verið sérstaklega jólalegt, það
sem af er vetri hafa fáir þurft að
ösla skafla með rautt nef og kald-
ar tær. Haustið og veturinn hefur
verið okkur auðvelt veðurfars-
lega séð. Jólasnjórinn lætur bíða
eftir sér, þessi hvíti, mjúki en
kaldi feldur sem gjarnan þekur
allt um þetta leyti árs. Börnin
óska þess sjálfsagt að brátt fari
að snjóa en hinir fullorðnu eru
flestir fegnir meðan þeir þurfa
ekki að grafa sig út úr húsunum
og skafa af bílunum. Kannske að
jólin í ár hér á Norðurlandi verði
rauð en ekki hvít, það væri líka
ágæt tilbreyting.
Svo margt hefur líka breyst
varðandi helgihald jólanna á síð-
ustu áratugum og það helst í
hendur við bættan hag þjóðar-
innar, umgjörð jólanna er sífellt
að verða veglegri, innihaldið er
samt sem áður það sama. Inntak
jólanna og tilgangur er að fagna
fæðingu frelsarans, fagna þeim
undarlega og í raun óskiljanlega
atburði að Guð sjálfur skildi
fæðast sem lítið bam í Betlehem,
þetta bam eigum við að taka að
okkur og næra í bijósti okkar,
það er hið raunverulega inntak
jólahátíðarinnar
Jólin em fæðingarhátíð frels-
arans, sem kom til þess að leiða
mannkyn frá myrkri til ljóss, á
braut réttlætis og friðar - frá
dauða til lífs. Já svo elskaði Guð
heiminn að hann gaf okkur son
sinn. Jólahátíðin boðar það að
Guð hefúr ekki sleppt hendi
sinni af okkur. Hann vitjar okk-
ar stöðugt á ný því Kristur er ei-
lífúr og stöðugt nærri. Hann er
hér og á erindi við okkur, tjáir
okkur elsku sína, von og lausn.
Um jólin leggjum við gjaman
mikið á okkur til að gleðja aðra,
veislur eru haldnar, jólakort em
send og kveðjur, sjúkir og bág-
staddir fá sérstaka athygli og
ýmsum söínunum er lagt lið. Jól-
in leysa úr læðingi jákvæða orku
kærleikans.
Jólin boða einnig ffið, raun-
vemlegan frið, ffið á jörðu og
sátt á meðal manna. Boðskapur
jólanna fjallar um það hvernig
við getum gert heiminn að betri
stað þar sem trúin, vonin og kær-
leikurinn eiga heima. Boðskap
jólanna er ætlað að breyta þess-
um heimi. Verkin sem okkur er
ætlað að vinna em mörg og stór
vegna þess að við berum ábyrgð
hvert á öðm og náunga okkar
hvar í heimi sem er.
Kristnin snýst ekki aðeins um
himininn ffamundan heldur lífið
sem við lifúm hér og nú. Kristur
gerði öllum gott og græddi alla
sem til hans leituðu. Að fylgja
Kristi er að gera það sama, vera
öðmm til blessunar, lifa öðrum
ffemur en sjálfúm sér. Að fylgja
Kristi er að standa vörð um lífið,
um samfélag fólks í landinu, rétt-
lætið og allt sem gott er.
Frelsari okkar sem fæddist á
jólum, lifði og dó í nafúi kærleik-
ans og reis upp í dýrð, er með
okkur í öllum okkar verkefnum,
hver sem við emm og hvert sem
við förum. Hann fer fyrir okkur
og styður allt gott sem við ger-
um. Hann sfyður okkur með því
að næra okkur og sfyrkja í lífs-
baráttunni. Það gerir hann ekki
hvað síst í starfi kirkjunnar þar
sem orð hans er boðað og sakra-
menti hans höfö um hönd. Hann
er með okkur í verki og mun
leiða allt líf að eilífú markmiði
sínu, reisa það upp og gjöra heilt
og skapa nýjan himinn og nýja
jörð.
Guð gefi okkur öllum gleði-
legjól.
Sr. Fjölnir Asbjömsson.
Sendum viðskiptavinum okkar bestu kveðjur um Gleðileg jól $$ Brasscri • Bar
og farsælt komandi ár Þökkum viðskiptin á árinu Sendum starfsfólki okkar og viðskiptavinum bestu óskir um
Gleöileg jól
gott og farsœlt nýár
WW Þökkum góðar viðtökur á árinu sem er að líða