Feykir


Feykir - 18.12.2002, Blaðsíða 17

Feykir - 18.12.2002, Blaðsíða 17
44/2002 FEYKIR 17 „Þarf að koma sýnishorni til Friðriks“ Hjörleifur Kristinsson bóndi, sagnaþulur og heimsspekingur á Gilsbakka í Austurdal er ógleyman- legur þeim sem honum kynntust. Hjörleifur var afar næmur á umhverfi sitt, náttúruffæðingur af guðs náð, og svo slingur að sjá þessa litlu skemmtilegu hluti, sem skipta svo miklu máli og var svo hamingjusam- ur með þá, þessi gáfa endurspeglaðist í ffásagnargleði hans. Nú er kominn út diskur með frásöngum Hjörleifs, rúmlega tveggja klukkustunda efni. Annars vegar viðtal sem þeir bræður í Flatataungu, Ami og Kári Gunnars- synir tóku veturinn 1983 og hinsveg- ar viðtal sem Sveinn Allan Mortens tók að kvöldi 12. október 1984. Þar segir Hjörleifur m.a. ffá samferða- mönnum sínum úr Austurdal og víð- ar, þar sem bændur voru á heims- mælikvarða á hveijum bæ með kost- um sínum og göllum, effir ffásögnum Hjörleifs að dæma. í þessari frum- stæðu upptöku heyrist snarkið í oliu- ofninum í bakgrunni, daufur ómur ffá útvarpi og bunuhljóð þegar hellt er í kaffibollana. Diskinn er hægt að fá í áskrift í Rafsjá á Sauðárkróki, en hann heitir „Þegar byljir bresta á“. Einn af þeim mönnum sem mér eru minnisstæðastir sem ég hef kynnst er Sveinn Sigurðsson sem lengi bjó á Giljum og var kallaður Sveinn riddari. Hann hafði í raun og veru erft þetta nafn af móðurafa sín- um sem var samtíðamaður Bólu - Hjálmars og það er eins og þessi við- umefni hafi stundum gegnið í erfðir, það á alla vega við um Svein þennan. Þetta var svona nokkuð stæðilegur maður og eginlega ákaflega tröllsleg- ur í útliti og málrómurinn líka trölls- legur. Merkilegur karl að mörgu leyti. Eitt var það, að það var óvenjulegt hvemig hann viðurkenndi ffamfarim- ar og var alls ekki að dýrka neitt liðna tímann og mat framfarimar mjög mikils. Eitt af því var að hann sagði mér að það hefði nú verið eitt af því allra besta sem þessi þjóð hefði feng- ið þegar hún fékk bankana. „Meðan enginn mátti skulda neitt, þá gat eng- inn neitt“, sagði Sveinn. Svo gerðist það einu sinni að ég fékk bölvun í hnéð. Friðrik læknh var sóttur og tók mig með út á Krók og lagði mig inn á spítala. Daginn eftir þá birtist Sveinn riddari þama og ger- ist þá herbergisfélagi minn. Og það eginlega hlakkaði í mér að Sveinn skyldi vera kominn þama því mér fannst ég ekki geta kosið mér betri herbergisfélaga. Sveinn var ekki rúmliggjandi, en það var þvagteppa eða einhver fjand- inn svoleiðis að honum, og hann var á ferli út um allan bæ á daginn en kom svo heim á kvöldin. Nú, hann átti hross ffam á Hofsaffétti sem hann þurfti endilega að sækja eins fljótt og hann gæti. Svo var það einn morgun- inn; þetta var nú ekki orðið eins formfast og núna, sjálfsagt aðrar regl- ur sem mundu gilda núna, að hann bað mig fyrir það þegar hann fór út um morguninn, „að passa nú að stelpumar helli ekki úr koppnum mínum“, sagði hann, „því það þarf að koma sýnishomi til Friðriks. Hann þarf að rannsaka þvagið“, sagði Sveinn. Svo fór Sveinn út en það var nú eitt að þegar ég kom á spítalann, að þá var óðara farið að gefa mér ein- hveijar svefhtöflur sem þurfti í raun og vem ekki því ég var einlægt syfj- aður. Svo er Sveinn varla fyrr farinn út en ég sofha og vakna ekki fyrr en Sveinn kemur inn aftur og gáir óðara í koppinn og segir: „Hver andskotinn sjálfur, koppurinn galtómur.“ Svo einhvemveginn var þetta orð- ið of seint þennan daginn, svo þetta ffestaðist allt þangað til daginn eftir. Þá fer Sveinn enn af stað og biður mig að gá að því að stelpumar helli ekki úr koppnum meðan hann er úti. En það fer eins og fyrri daginn að ég sofna nærri því shax og Sveinn er farinn, en vakna samt áður en Sveinn kemur og sá þá að stelpurnar voru búnar að hella úr koppnum hans, svo ég tek mig til og míg sjálfur í kopp- inn. Sveinn kemur svo inn og fer með prufu til Friðriks. Svo birtist Sveinn aftur eftir að hafa verið þónokkuð lengií burtu. Eg sé það shax á göngu- laginu að Sveinn hafði góðar fréhir að færa. Hann hossaðist í hveiju spori ef að lá vel á honum. Sveinn kemur þama inn og hossast í hveiju spori og ég segir svona, jæja hvað sagði Friðrik? „Nú hann sagði að þeha væri al- deilis úrvals hland“, sagði Sveinn og þar með var hann rokinn fram á Hofsafféh að ná í hrossin. Svo endaði það nú með því að Sveinn var orðinn fastur maður þama á spítalanum og í seinasta skiptið sem Sveinn Sigurðsson „riddari“. ég hihi Svein á götu þá segir hann við mig. „Jæja nú væri ég dauður ef ég hefði ekki verið undir læknishendi. Ég fékk slæmt hjartakast, en Friðrik bjargaði mér. En að vera að halda líf- inu í þessum aumingjum“, sagð’ann, „það finnst mér aldeilis dæinalaust“, bæh’ann svo við. Þá kom búmaður- inn upp í honum nefnilega, að þeha myndi ekki borga sig. Bœkur fra Sögufélagi Skagfiróinga Góöar og vanáaöar jólagjafir Byggóasaga Skagafjarðar I og II bindi. Skagfirskar œviskrár. - Saga Sauóárkróks. Skagfirskur annáll 1847-1947. Auk fjölda annarra titla. Afgreidsla Sögufélags er í Safnahúsi Skagfiröinga s. 453 6640. Næsti Feykir 8. janúar 2003 &****<, Gleðileg jól gott ogfarsœlt komandi ár Þökkum góð samskipti á árinu sem er að líða

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.