Feykir


Feykir - 18.12.2002, Page 16

Feykir - 18.12.2002, Page 16
16 FEYKIR 44/2002 „Gaman að hafa náð að færa sönginn í Skagfirðingum niður í fæturna” Spjallað við Loga Vígþórsson danskennara, þann vinsælasta á Króknum Dansinn er að verða mjög vin- sæll á Sauðárkróki og hefur það greinilega mælst mjög vel fyrir að taka upp danskennslu í öllum bekkjum Árskóla. Þá er það hreint ekki til „vansa“ að dans- kennarinn Logi Vígþórsson er af- arhress náungi og nær alveg ein- staklega vel til krakkanna. Það kom mjög greinilega fram í lok þemavikunnar á dögunum, þegar Logi lét 460 böm skólans dansa skiptidans og setti þar með heimsmet sem skráð verður í heimsmetabók Guinness. Þá brast á dúndrandi lófaklapp hjá krökkunum í hvert skipti sem nafn Loga var nefht, þannig að ætla má að þessi geðþekki dans- kennari sé kannski vinsælasti maður sem nokkurn tímann komið hefur í bæinn. Feykir leitaði eftir viðtali við Loga í jólablaðið og varð hann góðfuslega við því. Fyrst barst í tal hvemig í ósköpun- um honum hafi dottið í hug þetta með heimsmetið í skiptidansinum? „Ja það var nú þannig að ég var bú- inn að vera með skiptidansinn hjá fyrsta og öðmm bekk einn daginn og það verður nú að segjast eins og er að þetta er nú kannski svolítið flókinn dans fyr- ir svo unga nemendur, enda fer maður ekki fram á miklar færslur hjá þeim í dansinum. Þegar ég kom heim örþreytt- ur um kvöldið og kveikti á sjónvarpinu, þá var einmitt þáttur á skjánum um Guinness og skráningu heimsmeta, þannig að mér flaug í hug að líklega væri ekki til heimsmet í skiptidansi og því gaman að glíma við það. Það tókst í mikilli stemningu í íþróttahúsinu við gífúrlegan fognuð fjölmargra foreldra og aðstandenda sem voru viðstaddir.“ Efniviðurinn nægur - Þú varst að kenna hérna í fyrra og fékkst líka mjög góðar viðtökur þá, hver var ástæðan fyrir því að þú komst þá að kenna? „Ég var að kenna sjálfstætt síðasta vetur þegar ég hringdi í Elenóm frænku mína, konu Árna Gunnarssonar, og spurði hana hvort einhver danskennsla væri á svæðinu. Þetta símtal varð til þess að ég hringdi í Óskar Bjömsson skólastjóra Árskóla og hann tók mjög jákvætt í erindið og vildi strax fá kennslu fyrir fyrsta til þriðja bekk. Ég hélt síðan líka námskeið fyrir bekkina þar fyrir ofan og kennslan hjá mér héma í fyrra endaði með mjög vel heppnaðri danssýningu fyrir foreldrana. Þetta þróaðist síðan þannig að við Óskar skólastjóri ræddum meira saman um ffamhaldið og hann vildi endilega taka danskennsluna inn í skólann sem skyldufag og ráða mig í heilsárs stöðu. Ég tók þessu boði feginshendi, enda er miklu betra að starfa svona með fast land undir fótum en í lausamennskunni sem ég var áður. Ég er samt ennþá með nokkra nemendur fyrir sunnan. krakka sem em að keppa á fullu í dansi. Kannski er það ffamtíðardraumurinn héma á Króknum að við eignumst keppnisflokk í dansi, efiiiviðurinn er allavegana nægur. Mér finnst þetta mikið ffamtak hjá Árskóla að gera dansinn að skyldu- námsgrein, eins og námsskráin reyndar segir til um, en það em þó aðeins tveir skólar sem ég veit um í landinu í dag sem eru með danskennslu í öllum bekkjum grunnskólans, Árskóli og Hlíðaskóli í Reykjavík.“ Svolítill vinur þeirra - Það er greinilegt að þú nærð mjög vel til krakkanna, hver er lykill- inn að því? „Kannski fyrst og fremst að vera svolítill vinur þeirra og dálítið á þeirra plani, en samt ráða ferðinn. Sem dæmi þá er það lífsins ómögulegt fyrir mig þegar ég er að kenna þeim yngstu að telja upp á tíu, ég ruglast alltaf einhvers staðar á leiðinni, og segi kex í staðinn fyrir sex og svoleiðis bull. Þau þurfa því stundum að hjálpa mér við hlutina. Þetta er nauðsynlegt til að ná athygli þeirra og halda þeim við efnið þó áhug- inn sé nógur. Síðan skipulegg ég tímana þannig að við byijum með ákveðnar skylduæfing- ar og ef krakkarnir eru dugleg og þæg þá getum við farið í það sem þeim finnst skemmtilegast í seinni hlutanum, marsera og ýmsa tískudansa. Það er í upphaldi hjá þeim yngstu að „breika“ og ýmsir leikir, en hjá þeim eldri er það rokkið og svo eru það skiptidansamir sem em mjög vinsælir. Atriði að vera karl að kenna - Er þá að verða einhver viðhorf- breyting gagnvart dansinum sem í- þrótt og afþreyingu? , Já mér finnst það allavega skrítið að hugsa til þess að það er allt í einu núna sem ekki þykir asnalegt að vera í dansi. Ég held reyndar að fyrir strákana þá skipti það rosalega miklu máli að það sé karlmaður sem kennir dansinn, en reyndar em það við karlamir sem stjómum hinum aðilanum. Þetta er kannski eitt af fáu vígjunum sem við eigum eftir ennþá.“ - En er þetta ekki svolítið feimnis- mál hjá sumum ennþá að bvrja dans- inn? „Jú það getur verið mikið átak að vinna á feimninni gagnvart hinu kyninu. Fyrir ungling sem hefúr farið í gegnum bamaskólann án þess að fara í dans, þá getur það verið mikið feimnismál t.d. fyrir strák að halda í hendina á stelpu í ,drliðar saman hliðar“, og ná ffam þess- um eðlilegum samskiptum kynjanna, sem er töluvert atriði fyrir alla í lífinu. Góð forvörn Ég tel dans vera eina bestu forvöm sem til er fyrir fólk í lífinu. Þegar ég hef rætt þetta atriði við unglinga þá höfúm við komist að þeirri niðurstöðu að það er femt sem þú gerir þegar þú ferð út að skemmta þér. Við fömm út til að borða, njóta skemmtiatriða, dansa og drekka! Nú ef þú kannt ekki að dansa, og ert ekki tilbúinn að bjarga þér með það, þá er aðeins eitt sem þú gerir eftir að þú er búinn að borða og fylgjast með skemmtiatriðinum. Þannig að ég tel dansinn það mikilvægasta fyrir skemmtanalífið. Það er gaman aö segja ffá því að ég hef verið með námskeið fyrir fúllorðna, tæplega 100 manns héma á Sauðár- króki. einu sinni í viku í vetur. Fólk virðist mjög ánægt og mér sýnist að all- ir ætli að halda áffam eftir áramótin. Mér finnst skemmtilegt að hafa náð því að færa sönginn í Skagfirðingum niður í fætuma. Vonandi á maður effir að sjá fleiri fætur bregða á leik. Þetta er sterk og góð líkamsrækt, ein af þeim fáu sem hjónafólk getur smndað saman. Svo á ég vitaskuld efir að heimsækja leikskól- ana og kíkja á Fjölbrautaskólann, en ég var þar með góðan hóp í fyrra, þannig að það er nægur akur að plægja“. - Nú spyrja sjálfsagt margir, er þetta einhver bóla eða verður Logi eitthvað áfram á staðnum? „Ég ákvað þegar ég kom hingað að vera að minnsta kosti í þijú ár, taka þetta sem þriggja ára verkefni og ég held ég standi við það. Ég held að það sé lág- markstími til að geta fylgt því eftir sem maður er að reyna að byggja upp“, seg- ir Logi Vígþórsson danskennari. En þess má geta að auk þess að kenna dans á Sauðákróki, hefúr hann kennt dans- hóp á Skagaströnd, sem og í skólunum ffam í firði fyrir áramótin. Eftir áramót er síðan planið að skólamir Flandna Vatna bætist við í danskennslunni.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.