Feykir - 15.04.2003, Blaðsíða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Kaupfélag Skagfirðlnga
Mikill hagnaður
og síðasta ár gott
Góður dagur við smábátabryggjuna á Sauðárkróki, grásleppusjómennirnir Þorvaldur
Steingrímsson og Ragnar Sighvatsson.
Invest kannar iðnaðarkosti
fyrir Norðurland vestra
Rekstrarhagnaður KS eftir
skatta var 258 milljónir á
síðasta ári. Hagnaður sam-
stæðunnar fyrir afskriftir og
fjármagnsliði var 935 millj-
ónir, samanborið við 967
milljónir árið á undan.
Veltufé frá rekstri er um 690
milljónir samanborið við 828
milljónir árið 2001 og 667
milljónir árið 2000.
Fjárfestingar samstæðunnar
vom meiri en nokkm sinni fyrr á
einu ári, eða um 1.100 milljónir.
Helstu fjárfestingar ársins vom:
Kaup á hlutabréfum í Hesteyri
ehf. kaup á hlutabréfum í
Steinullarverksmiðjunni, kaup á
hlutabréfum í Fiskiðjunni
Skagfirðingi og fjárfestingar við
uppbyggingu á nýtísku slát-
urhúsi og kjötvinnslu á
Sauðárkróki.
Fram kom í máli
kaupfélagsstjóra Þórólfs
Gíslasoanr að rekstrarumhverfi
fyrirtækja á síðasta ári var um
margt nokkuð hagstætt, en
gengissveiflur gjaldmiðla mjög
miklar og sterk staða krónunnar
síðari hluta ársins veikti mjög
rekstrarumhverfi sjávarútvegs-
ins og annarra útflutningsgreina.
Verðbólga fór lækkandi frá því
sem verið hafði á árinu 2001, en
raunvextir héldust áffam verule-
ga hærri en í samkeppnislön-
dum.
Kaupfélag Skagfirðinga
hefúr á síðustu ámm verið að
auka hlut sinn í Fiskiðjunni
Skagfirðingi og átti í árslok
90% af heildarhlutafé í félaginu.
Hesteyri ehf., sem er hlutafélag
í eigu Fiskiðjunnar Skagfirðings
h.f. og Skinneyjar-þinganess
h.f. á Homafirði, keypti á árinu
25% eignarhlut í Vátrygginga-
félagi íslands h.f.
Stjóm Kaupfélags Skag-
firðinga tók um það ákvörðun
að byggja upp nýtískulega og
tæknilega fullkomna kjötaf-
urðastöð á Sauðárkróki. Þessar
ffamkvæmdir hafa staðið ffá
árinu 2000. Verulegum fjár-
hæðum hefúr verið varið til
verkefúsins og gert er ráð fyrir
að ffamkvæmdum ljúki að
mestu á þessu ári. Með þessum
ffamkvæmdum verður til hér í
Skagafirði eitt allra, ef ekki fúll-
komnasta sláturhús og kjöt-
vinnslustöð landsins.
„Kaupfélag Skagfirðinga er
fyrirtæki með mjög fjölþætta
starfsemi og blandaðan rekstur.
Fyrirtækið leggur rekstrarlegar
forsendur til gmndvallar
ákvarðanatöku, en horfir jafn-
ffamt til og er meðvitað um
staðsetningu sína í Skagafirði”,
segir Þórólfúr Gíslason.
Iðnþróunarfélags Norður-
lands vestra hefur sótt um
styrk til Impru að upphæð
kr. 5.000.000, vegna undir-
búnings og rannsókna, er
tengjast iðjukostum á Norð-
urlandi vestra. Umsóknin
var kynnt á fundi byggða-
ráðs Skagafjarðar á dögun-
um.
Fulltrúar meirihlutans í
byggðaráði Gísli Gunnarsson
og Bjami Jónsson sögðu í bók-
un á fúndinum að umsókn IN-
VEST væn í samræmi við þá
stefnu Sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar að vinna með Blöndu-
óssbæ og Höfðahreppi að leit
að heppilegum iðjukostum fyr-
ir svæðið. Megi í því sambandi
vísa til sameiginlegs fúndar
sveitarstjóma Sveitarfélagsins
Skagafjarðar, Blönduóss og
Höfðahrepps þann 21 mars síð-
astliðinn þar sem ákveðið var
að þessi sveitarfélög ynnu sam-
an að leit að heppilegum at-
vinnukostum fyrir svæðið.
Gunnar Bragi Sveinsson
fúlltrúi minnihluta sveitar-
stjómar lét bókað:
Aðkoma Sveitarfélagsins
Skagafjarðar að þessari um-
sókn er ekki tímabær. Sveitar-
félagið hefúr komið að slíkri
vinnu í gegnum Atvinnuþróun-
arfélagið Flring hf. Þar sem
leitað var iðnaðar og iðjukosta
fyrir Skagafjörð. Þar hefúr
mikið starf verið unnið og
miklu til kostað. Undirritaður
telur að hagsmunum íbúa
sveitarfélagins Skagafjarðar
verði betur borgið með þvi að
halda áffam með þá vinnu í
stað þess að byija á ný á byij-
unarreit. Ljóst er að Skagfirð-
ingar em komnir lengst allra
sveitarfélaga á Norðurlandi í
leit að hentugum iðnaðar
og/eða iðjukostum og því væri
það gegn hagsmunum Skag-
firðinga að halda ekki áfram
með þá vinnu.“
—KTeM£ÍM chjDI—
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
ÆI
bílaverkstæði
sími: 95-35141
Sæmundargata 1 b 550 Sauðárkrókur Fax: 36140
lavi ger ir & Hj Ibar avi ger ir
0 R ttingar ^Sprautun