Feykir - 15.04.2003, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 14/2003
Uppbygging Nátt-
úrustofa á landinu
Gestir á ráðstefnu um nýjunar í ferðamálum á Hólum.
Nýjungar í ferðaþjónustu í
Skagafirði kynntar á Hólum
Ferðamáladeild Hólaskóla
boðaði í samvinnu við Sveitar-
félagið Skagafjörð til málþings
um nýungar í ferðaþjónustu á
svæðinu. Guðrún Þóra Gunn-
arsdóttir deildarstjóri setti mál-
þingið en fundarstjóri var
Bjami Jónsson formaður at-
vinnu- og ferðamálanefndar.
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra ávarpaði gesti í
málþingsbyijun og lagði áherslu
á mikilvægi menntunar og
fræðslu í ferðaþjónustunni. Jafn-
ifamt gerði hann að umtalsefni
sóknarfærin í skagfirskri ferða-
þjónustu þ.e. menningartengda
ferðaþjónustu og afþreyingu
s.s. flúðasiglingar og hesta-
ferðir. Pétur Rafnsson frá
Ferðamálaráði kynnti starfse-
mi upplýsingamiðstöðva, en
ein af landshlutamiðstöðv-
unum er einmitt í Varmahlíð.
Sigurður Jóhannesson frá Hag-
fræðistofnun Háskóla Islands
kynnti niðurstöður rannsóknar
á margfeldiáhrifúm ferða-
þjónustu í Skagafirði sem hann
vann fyrir Atvinnu- og ferða-
málanefnd Skagafjarðar. Verður
eflaust gerð nánari grein fyrir
þessu verkefni síðar.
Gestir voru fjölmargir og
komu víða að, bæði starfsfólk
og eigendur ferðaþjónustu-
fyrirtækja og áhugafólk um
uppbyggingu ferðamála. Síðari
hluti málþingsins þar sem rætt
var um nokkrar hugmyndir að
uppbyggingu sem nú er verið
að vinna að, vöktu sérstaka
athygli. Guðrún Helgadóttir
menningarráðgjafi við Ferða-
máladeild Hólaskóla hóf þá
umræðu með brýningu um að
vanda til verka, þvi þó menn-
ingin sé óþijótandi brunnur er
þó mögulegt að spilla honum
með óvönduðum vinnu-
brögðum.
Valgeir Þorvaldsson frarn-
kvæmdastjóri Snorra Þorfinns-
sonar ehf kynnti í máli og
myndum hugmyndir um ferða-
þjónustu í Kolkuósi, þar sem
mannvirki verði endurgerð og
gerð aðstaða fyrir ferðafólk að
njóta þar kyrrðar og náttúm-
fegurðar um leið og það kynn-
ist sögu staðarins. Þar munu liggja
saman margir þræðir, hrossa-
rækt, saga og náttúra verða í
öndvegi. Um það verkefni
hefúr þegar verið myndað
félag og í stjóm þess sitja
Vigdís Finnbogadóttir, Valgeir
Þorvaldsson og Skúli Skúlason
skólameistari Hólaskóla.
Þær Sigriður Sigurðardóttir
safhstjóri, og Guðný Zoéga
fomleifaffæðingur við Byggða-
safn Skagfirðinga, gerðu grein
fyrir þeim fomleifarannsóknum
sem nú standa yfir í Skagafirði
og mikilvægi þeirra við frekari
uppbyggingu og þróun á menn-
ingartengdri ferðaþjónustu í
héraðinu. Er óhætt að segja að
Skagafjörður sé að verða mjög
spennandi áfangastaður fýrir
þá sem hafa áhuga á fomleif-
um, en rannsóknir standa nú
yfir á mörgum stöðum í
héraðinu.
Pétur Jónsson
forstöðumaður Byggðasafns
Húnvetninga og
Strandamanna kynnti
verkcfnið Grettistak, sem hófst
í Húnaþingi vestra og er í
mikilli sókn. Fyrirhugað er að
miðstöð þess verði á Lauga-
bakka, skammt frá fæðing-
arstað Grettis að Bjargi í
Miðfirði. Mikil áhersla verður
lögð á að höfða til allrar fjöl-
skyldunnar i túlkun á sögunni
og samtíma hennar. Pétur
sagðist vona að Skagfirðingar
tækju Gretti nútímans betur en
Gretti Ásmundarsyni forðum,
en hann var drepinn í Drangey
á Skagafirði. Slóð Grettis sögu
liggur um Húnaþing og
Skagafjörð að miklu leyti og
því standa vonir til að samstarf
takist um að veita leiðsögn og
upplýsingar um hana í samvin-
nu innan svæðisins. Sjálfs-
eignarstofnun hefúr verið sett á
laggimar um Grettistak.
Þorsteinn Sæmundsson for-
stöðumaður Náttúrustofú Norð-
urlands vestra kynnti verkefni
sem veitir ferðafólki greiðari
aðgang að upplýsingum um
fúglalíf við Héraðsvötnin,
bæði í fnðlandinu við Mikla-
vatn og víðar. Þetta er að hans
mati eitt besta
fúglaskoðunarsvæði á landinu,
varðandi fjölbreytileika tegun-
da vantar aðeins tvær uppá að
ná sama fjölda og við Mývatn.
Þegar hafa verið gerðar
ráðstafanir til að setja upp skilti
með upplýsingum á völdum
stöðum og síðan er stefnt að
frekari kynningu. Náttúmstofa
Norðurlands vestra heldur utan
um verkefnið.
Málþingið var mjög fróð-
legt og þeir sem hafa áhuga á
að kynna sér framsöguerindin
geta nálgast þau á vef Hóla-
skóla www.holar.is
Niðurstaða þess er í hnotskum
að Skagafjörður hafi alla burði
til að verða áfangastaður af
bestu gerð í menningartengdri
ferðaþjónustu, verði fag-
mennska áfram og enn frekar í
fyrirrúmi.
í framhaldi af málþinginu
var svo vöfflukaffi og opið hús
hjá Ferðaþjónustunni á Hólum,
hið fyrsta af nokkrum slíkum
kynningum sem fyrirhugaðar
em hjá ferðaþjónustuaðilum í
Skagafirði. Markmið þeirra er
að kynna þjónustuna fyrir
almenningi og innbyrðis milli
ferðaþjónustuaðila, sem þurfa
oft að veita gestum sínum
upplýsingar um hvað er fleira í
boði en það sem þeir sjálfir em
að veita.
Á nýafstöðnum ársfundi
Samtaka Náttúmstofa á Island,
SNS sem haldin var í Reykja-
vík þann 28. mars síðastliðinn
kom fram ákveðinn vilji stof-
anna að taka höndum saman
og fjölga störfúm í náttúmvís-
indum á landsbyggðinni. í dag
em starfræktar sex náttúmstof-
ur víðs vegar um land og á
þeim starfa milli 15 og 20
manns, allt ný störf.
Að sögn dr. Þorsteins Sæ-
mundssonar forstöðumanns
Náttúmstofú Norðurlands
vestra er mikill hugur í for-
stöðumönnum náttúmstofanna
að efla starfsemi þeirra á lands-
vísu. Hugmyndin með stofnun
Náttúmstofanna kom fýrst
fram í lögum um Náttúmfræði-
stofnun Islands og náttúmstof-
ur árið 1992 og er án efa ein af
betri hugmyndum sem komið
hafa fram um að byggja upp
sérhæfð vísindastörf utan höf-
uðborgarinnar. Náttúmstofúm-
ar em byggðar upp sem sjálf-
eignarstofnanir sem hafa bæði
sjálfstæðan fjárhag og verk-
efnaval, en em í eign og á-
byrgð þeirra sveitarfélaga sem
gert hafa samning við ríkið um
rekstur þeirra. I tilfelli Náttúm-
stofú Norðurlands vestra em
Sveitarfélagið Skagafjörður og
Akrahreppur þau einu sveitar-
félög sem hingað til hafa gert
rekstrarsamning við ríkið. Ár-
lega leggur ríkið um 7,5 millj-
ónir í starfsemi hverrar náttúm-
stofú og rekstrarsveitarfélög
rúmar 2 milljónir, þannig að
það fasta fjármagn sem hver
stofa hefúr til ráðstöfúnar er
tæpar 10 milljónir. Að auki
hafa stofúmar verið að sækja
til sín styrki í sérverkefni ým-
isskonar. Uppbygging náttúm-
stofa er kostnaðarsöm og tíma-
frek enda þurfa þær að koma
sér upp dýrum sérhæfðum
tækjum og hugbúnaði, sem off
á tíðum em ekki til staðar á
þeim stöðum sem stofúmar
byggjast upp á. Einnig fer
vemlegur tími í upphafi að “-
sanna “ tilvist stofanna og
marka þeim sess innan við-
komandi sveitarfélaga. Sá upp-
byggingartími hefúr að meðal-
talið tekið 2-3 ár. Til að spoma
við miklum kostnaði á upp-
byggingu hverrar stofú stofú-
uðu forstöðumann stofanna
SNS samtökin fýrir um ári síð-
an. Megin tilgangur þeirra var
að samræma stefnumótun stof-
anna, stuðla að sameiginlegri
uppbyggingu þeirra og verk-
efnaöflun, og ekki síst að deila
á milli sin sérhæfðum verkefn-
um. Þetta hefúr verið gert til að
stofúmar í sameiningu geta
tekið að sér verkefni sem
spanna flesta þætti náttúmvís-
indanna, þar sem hver stofa
hefúr þróast út í ákveðna sér-
hæfmgu.
Dr. Þorsteinn Sæmundsson
forstöðumaður Náttúmstofu
Norðurlands vestra hefúr veitt
SNS samtökunum formennsku
fýrsta starfsárið. Hann sagði að
starf samtakanna hafi gengið
vel fýrir sig þrátt fýrir að
nokkrar væringar hafi verið
síðastliðna mánuði meðal ann-
ars samfara breytingum á lög-
um um Náttúmstofúr sem tók
gildi vorið 2002 og í kjölfar
nýafstaðinna sveitastjómar-
kosninga. Þorsteinn telur þó
eðlilegt að slíkt gerist en bend-
ir þó á að tryggja verði að upp-
bygging stofanna geti gengið
eðlilega fýrir sig og að þær fái
svigrúm til að halda áfram
þeirri uppbyggingu sem þegar
hefúr verið lagt út með.
Hvað framtíðina varðar tel-
ur Þorsteinn að hún sé björt, en
bendir þó á að vel þurfi þó að
halda á spilum. Greinilegt er að
bæði ríkið og sveitarfélög þurfi
að hlúa betur að uppbyggingu
þeirra sér í lagi með að beina til
þeirra auknum verkefnum.
Þorsteinn bendir á að með
auknum kröfúm um rannsókn-
ir á sviði náttúmvísnda sem em
að koma fram meðal annars frá
ESB þurfi að stórauka slíkar
rannsóknir. Hann bendir á að
náttúrustofúmar séu kjörin
grundvöllur til að taka að sér
verkefúi á þessum sviðum og
þar sem um hreina aukningu á
náttúrurannsóknum sé að ræða
þá er ekki verið að taka atvinnu
frá fólki á höfúðborgarsvæðinu
og færa út á land. Slíkt sé mjög
mikilvægt að nýsköpun geti
líka farið fram út á landi.
Bar Par Hofsósi
Fimmtudag 17. apríl kl. 21
Lokasýning: Föstudaginn langa kl. 23.
Miðapanatanir í síma 893 0220
kl. 14-16 sýningardagana.