Feykir - 15.04.2003, Side 2
2 l EYKIK 14/2003
Frá sýningu LS á nýju leikriti Hávars Sigurjónssonar, Ertu hálf dán? Mynd/JS.
Sæluvikustykkið „Ertu hálf dán?
eftir fyrrverandi ritstjóra Feykis
Verk Guðmundar
á Fjalli sýnd í
Miklabæj arkirkju
Nú um páska sýnir Hrossa-
ræktardeildin Gráni verk Guð-
mundar Hermannssonar á
Fjalli. Syning þessi er lialdin á
þeim tímamótum að Guð-
mundur lætur af störfum sem
handmenntakennari í Varma-
hlíðarskóla. Guðmundur hefur
um langan tíma sinnt hand-
verki eins og hann kýs sjálfur
að nefna list sína, því auðvitað
er þetta list. Guðmundur hefiir
á liðnum ámm meðal annars
farið að nota hrossbein sem
grunnefni í verk sín, sem em
um margt heillandi hugar-
flugsverk.
Sýningin verður í Mikla-
bæjarkirkju og verður opið
hús skírdag, laugardaginn fyr-
ir páska og annan í páskum frá
klukkan 14 til 17 alla dagana.
Sýningin verður opnuð form-
lega með stuttri athöfn á skír-
dag kl. 14. Boðið verður upp á
léttar veitingar. Verum öll vel-
komin og njótum þess að sjá
það sem vel er gert. Gleðilega
páska.
Hrossaræktardeildin
Gráni.
Senn líður að Sæluviku og
það er orðið stutt í frumsýn-
ingu hjá Leikfélagi Sauðár-
króks á Sæluvikustykkinu sem
að þessu sinni er ffumsamið
íslenskt leikrit „Ertu hálf dán”
eftir Hávar Sigurjónsson, fyrr-
verandi ritstjóra Feykis sem nú
um stundir er með afkastameiri
leikritaskáldum þjóðarinnar.
Hávar byijaði að skrifa þetta
sfykki á jólaföstunni og lauk
því í febrúarmánuði eða rétt í
þann mund sem æfingar hófust
hjá LS.
„Hugmyndin að þessu
leikriti varð til í leikhúsinu og
spratt út af brandara. Eg var að
fíflast við vin minn í leikhús-
inu, og þegar ég leiddi hugann
að þessari glettni sá ég að það
væri hægt að gera eitthvað úr
þessu, það bættust við fleiri
persónur og ég ákvað að nýta
þetta sem efnivið í leikrit.
Leikurinn gerist einmitt í
leikhúsinu. Leikaramir em að
æfa leikrit og þegar þeir em að
undirbúa sýninguna fara að
gerast hlutir sem tmfla og það
kveður svo rammt að þessu að
sýningin fer algjörlega úr
böndum. Þetta er eginlega
leikrit inni í leikritinu”, sagði
Hávar þegar blaðamaður
Feykis hitti hann að máli að
lokinni æfmgu í Bifföst sl. sun-
nudag. „Eg myndi nú eiginlega
segja að þetta væm þq'ú leikrit
þegar allt er talið”, skaut Þrös-
tur Guðbjartsson leikstjóri inn í
Hávar Sigurjónsson, eitt afkastamesta leikritaskáld
þjóðarinnar og fyrrverandi ritstjóri Feykis.
samtalið. En aðspurður sagði
Þröstur að æfingar hefðu
gengið vel og þetta liti allt
mjög vel út fyrir ffumsýningu.
„Þetta leikrit hefúr alls
engan boðskap og ein persón-
an í leiknum hittir alveg
naglann á höfuðið þegar hún
segir „Leikritið er fyrir fólk
sem vill hafa gaman af hlut-
unum og er ekki fyrir það að
taka með sér vandamálin heim
úr leikhúsinu””, segir Hávar.
Þröstur leikstjóri segir að
leikhópurinn hafi hlegið mikið
á æfingum í vetur og ennþá sé
fólk að drepast úr hlátri þegar
færi gefst þannig að hann efist
ekki um að þessi leikur muni
falla áhorfendum í geð.
Hlutverkin em mjög jöfh í
þessum leikriti, 10 talsins
leikin af átta leikurum og er
þetta fólkið sem hefur að
mestu borið hitann og þungan
af sýningum hjá LS síðustu
misserin. Fmmsýningin verður
sunnudagskvöldið 27. apríl
nk., að sjálfsögðu í Bifföst.
íslenska óperan
í Miðgarði
íslenska óperan leggur land
undir fót eftir páskana og sýnir
„Tvær óperur á einu kvöldi” í
Laugarborg í Eyjafirði 26. apríl
og Miðgarði sunnudaginn 27.
apríl kl. 17.00. Sýningin í
Miðgarði er liður í dagskrá
Sæluviku Skagfirðinga og er
haldin í samstarfi við
Tónlistarfélag Skagafjarðar.
„Tvær óperur á einu kvöldi”
em útdráttur úr óperunum
Madama Butterfly eftir Puccini
og Itölsku stúlkunni í Alsír eftir
Rossini. Flytjendur eru fimm
fastráðnir söngvarar Islensku
ópemnnar; þau Hulda Björk
Garðarsdóttir sópran, Sesselja
Kristjánsdóttir mezzósópran,
Davíð Olafsson bassi, Jóhann
Friðgeir Valdimarsson tenór og
Ólafur Kjartan Sigurðsson bar-
itón og píanóleikarinn Clive
Pollard, sem segja má að gegni
hlutverki heillar hljómsveitar.
Höfundur útdráttanna er
Ingólfur Níels Ámason sem
jafnffamt er leikstjóri.
Sýningin hefst í Nagasaki og
endar í Alsír. Báðar íjalla óper-
umar um örlög kvenna sem
hnepptar em í ánauð - önnur
gerir sér ekki grein fyrir því fyrr
en of seint, hin er sér miðvitan-
di um aðstæður sinar og hefiir
þess vegna möguleika á að bjar-
ga sér. Hér mætast tvær óperur,
tvær örlagasögur, gaman og
alvara í nýstárlegri sýningu sem
fléttar saman verk tveggja
meistara ópembókmenntanna,
þeirra Puccinis og Rossinis.
Næsti Feykir kemur úr
miðvikudaginn 30. apríl
Afmælismót tileinkað Haraldi
í tilefni af 80 ára affnæli Haraldar Hermanns-
sonar ffá Ysta-Mói stendur Skákfélag Sauðár-
króks fyrir móti um páskanna. Áhugi Haraldar á
skáklistinni spratt upp úr miklu skáklífi í Fljót-
unum. Haraldur hefiir lengi auðgað skáklíf í
Skagafirði og verið þátttakandi á mótum ffá því
fyrir miðja síðustu öld. Síðustu áratugi hefiir
Haraldur verið öflugur liðsmaður Skákfélags
Sauðárkróks og lagt mikla vinnu í að efla skák-
líf í firðinum. Von er á ýmsum góðum gestum á
mótið, má þar nefna stórmeistarana Helga
Ólafsson og Helga Áss Grétarsson auk öflugra
skákmanna ffá Reykjavík og Akureyri ásamt
skagfirskum skákmönnum.
Tefldar verða 7 umferðir og fær hver þátttak-
andi 30 mín. til umráða. Telft verður í Ólafshúsi.
Fyrsta umferðin hefst kl. 16:00 föstudaginn
langa og verða tefldar 4 umferðir þann dag. Á
laugardegi verða tefldar 3 umferðir og hefst sú
fyrsta kl. 10:00.
Áhorfendur em velkomnir og er aðgangur
ókeypis. Skráningu þarf að tilkynna fyrir kl.
20:00 fimmtudaginn 17. apríl í síma 892 6640
eða í netfang: unnar@krokur.is
Óliáð fréttahlað á Norðurlandi vestra
Kernur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir
hf. Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki.
Póstfang: Box 4,550 Sauðárkróki. Símar: 453
5757, 897 5729 og 854 6207. Netfang: feykir
@ krokur. is. og feykir@simnet.is
Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson.
Áskriftarverö 210 krónur hvert tölublað með
vsk. Lausasöluverð: 250 krónur með vsk.
Setning og umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt &
Svart hf.