Feykir - 15.04.2003, Qupperneq 8
15. aprfl 2003,14. tölublað, 23. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
O Shejl .
IDBO^ha
Stefán Guðmundsson stjórnarformaður KS afhendir þeim Skúla Skúlasyni skólameistara á
Hólum og Sólrúnu Harðardóttur viðurkenninguna „Skagfirskt framtak“.
Hólaskóli fékk vidurkenn-
inguna Skagfírskt framtak
Á aðalfúndi Kaupfélags
Skagfirðinga sem haldinn var
laugardaginn 12. apríl sl. veitti
Menningasjóður Kaupfélags
Skagfirðinga viðurkenninguna
„Skagfirskt framtak 2003”.
Að þessi sinni hlaut hana
Hólaskóli Háskólinn á Hólum
og Skúla Skúlason skólameist-
ari. Afhenti Stefán Guð-
mundsson, formaður stjómar
Menningarsjóðsins og stjóm-
arformaður Kaupfélags Skag-
firðinga, Skúla auk viðurkenn-
ingarskjals, listaverk úr silfri,
smíðað af Jens Guðjónssyni.
Menningarsjóður Kaupfélags
Skagfirðinga veitir þessa
viðurkenningu til einstaklinga,
fyrirtækja eða stofnana sem
sýnt hafa frumkvæði og
áræðni í verkefnum til eflingar
atvinnu- og menningarlífs í
Skagafirði.
Mjólkurbændur ánægðir
Aðalfúndur samlagsdeildar
Mjólkursamlags Húnvetninga
og Félags kúabænda í A.-Hún.
var haldinn á Blönduósi 27.
mars sl. Fram kom á fúndinum
að rekstur samlagsins var
hagstæður á síðasta verðlagsári
og skilaði rúmlega átta millj-
óna hagnaði. fnnlagt mjólk-
urmagn nam 4,3 milljónum
lítra sem er örlitil aukning frá
fyrra ári. Innleggjendum
mjólkur fækkaði úr 53 niður í
48 en meðalinnlegg
framleiðenda óx úr 79 þúsund
lítrum árið 2001 í 90 þúsund
lítra árið 2002. Mesta mjólk frá
einum framleiðenda var 173
þúsund lítrar, en mesta innlegg
úr einni sveit var úr Svína-
vatnshreppi og litlu minna úr
Bólstaðahlíðarhreppi, en báðir
hreppamir lögðu inn yfir átta
hundrað þúsund lítra. Hæst var
meðaltal tveggja innleggjenda
úr Áshreppi tæplega 118
þúsund litra, en lægst sjö inn-
leggjenda úr Skagahreppi er
losaði 71 þúsund litra. 99,5%
allra þeirrar mjólkur sem kom
til mjólkurstöðvarinnar á
Blönduósi fór í fyrsta
gæðaflokk og 11 innleggjendur
eða fast að einn af hveijum
fjórum fengu heiðursviðurken-
ningu fyrir úrvals gæðamjólk.
í umræðum á fúndinum
kom m.a. fiam að vel gert skipu-
lag í vinnslugreinum mjólkur-
stöðvarinnar á Blönduósi með
tilliti til heildarffamleiðslu
Mjólkursamsölunnar og sölu-
möguleika. Nýtísku fjósbyg-
ging á Brúsastöðum í Vatnsdal
þykir og horfa til framfara í
mjólkurfJamleiðslu í héraðinu
en þar er nú eini framleiðslus-
taðurinn í Áshreppi. Nokkurs
uggs gæti aftur á móti í máli
manna um næstu búvöm-
samninga með tilliti til
verðfalls og mikillar sölutregðu
búvöm framleiðslunnar í heild.
gg-
Kaupfélagsstjóri á aðalfundi
„Má ekki veikja
s j ávarútveginn“
„Mikilvægt er að Skaga-
fjörður verði raunhæfur
valkostur til framtíðar, þegar
fólk velur sér búsetu.
Hagsmunir Kaupfélags Skag-
firðinga og íbúa héraðsins
fara saman”, sagði Þórólfur
Gíslason kaupfélagsstjóri í
ávarpsorðum sínum á
aðalfaundi Kaupfélags
Skagfirðinga sl. laugardag.
Kaupfélagsstjóri vék að
landsmálunum í inngangsræðu
sinni og sagði m.a. „Stöðugleiki
í efnahagslífi og festa í stjóm
fiskveiða ráða hvað mestu um
þróun atvinnulífs á
landsbyggðinni á næstu árum.
Án öflugra fyrirtækja á lands-
byggðinni er óraunhæft að tala
urn möguleika landsbyggðarin-
nar til að keppa um búsetuval
fólks við höfúðborgarsvæðið.
Einu öflugu fyrirtæki lands-
byggðarinnar era sjávarútvegs-
fýrirtækin. Með því að veikja
gmndvöll þeirra með kú-
vendingu í fiskveiðistjóm, hvort
sem það er með óhóflegri
sérsköttun, fymingu veiðiheim-
ilda með uppboðskerfi eða
öðmm vanhugsuðum
aðgerðum, er verið að kalla yfir
landsbyggðina ómældar hör-
mungar. Öllum atvinnugreinum
er mikilvægt að búa við starf-
sskilyrði, þar sem leikreglur lig-
gja fyrir svo hægt sé að byggja
upp fyrirtæki með langtímas-
tefnu. Sú tíð á ekki lengur
heima í vestrænu hagkerfi, að
rekstrarskilyrðum atvinnu-
greina sé kúvent eftir úrslitum
þingkosninga hveiju sinni. Slík
hagstjóm er viðhöfð í
vanþróuðum einræðisríkjum og
á ekkert erindi inn í íslenskt
efnahagslíf og í raun hafa
stjómmálamenn á íslandi ekkert
leyfi til að að íhuga slíkar
aðgerðir og hvað þá ffamkvæ-
ma slík skemmdarverk á atvin-
nulífmu nú þegar komið er ffam
á 21. öldina.”
Skemmtun Heimis
Mikíl skemmtun verður
haldin í reiðhöllinni Svaða-
stöðum nk. laugardagskvöld.
Þama verður margt til skemmt-
unar, söngur, glens og gaman
auk reiðsýninga. Fram koma
m.a. Karlakórinn Heimir,
Jóhannes Kristjánsson eftirherma,
Óskar Pétursson, Djákninn ffá
Myrká, Abbaatriði úr Blöndu-
hlíðinni, söngelsk gmnnskóla-
böm úr Skagafiðri og fleira.
Kynnir á samkomunni
verður Óskar Pétursson frá
Álftagerði og væntanlega mun
hann smella sínum góða húmor
inn þegar við á. Það er Karla-
kórinn Heimir sem stendur fyrir
skemmtuninni og að sögn Páls
Dagbjartssonar formanns kórs-
ins er þetta tilraun til þess að
auka framboð menningar og
skemmtunar yfir páskahátíðina
og var hugsað sem valkostur
fyrir skíðafólk og aðra
ferðamenn sem koma í héraðið
um páskana, en þar sem að
snjóinn vanti nú í hlíðar
Tindastóls verði heimafólk og
gestir að huga að annarri
afþreyingu, svo sem menningu
og skemmtun.
Áformað er að skemmtun í
þessa vem á Svaðastöðum verði
árleg, en þar þykir hljómburður
mjög góður og hentugt að taka á
móti fjölda fólks. Skemmunin
þann 19. apríl hefst klukkan 21.
...bílar, tiyggngar,
bækur, ritföng,
framköllun, rammar,
tímarit, ljósritun,
gjafavara...
BÓKABÚÐ
BRYNcJABS
SDÐUBGÖ'nj 1 SÍMI 453 5950
Flísar, flotgólf
múrviðgerðarefnl
Aðalsteinn J.
Maríusson
Sími: 453 5591
853 0391 893 0391