Feykir - 13.08.2003, Page 3
27/2003 FEYKIR 3
„Mikil sjálfboða-
vinna iyrstu árin“
Spjallað við Ragnar Guðmundsson
forseta Kiwanisklúbbsins Drangeyjar
Það er stórt ár hjá kiwanismönnum í
Drangey á Sauðárkróki, en á vordög-
um var haldið upp á 25 ára afmæli
klúbbsins með stórveislu í félagsheim-
ilinu Árgarði. í tilefni afmælisins var
einnig safnað fyrir heitum potti handa
heimilisfólki á sambýlinu í Fellstúni á
Sauðárkróki. Það var einmitt á 20 ára
afmæli Kiwanisklúbbsins Drangeyjar
fyrir fimm árum sem klúbbfélagar
beittu sér fyrir söfnun vegna kaupa á
bíl fyrir sambýlin á Sauðárkróki, sem
gerði það að verkum að nú getur heim-
ilisfólk þar bmgðið sér í bíltúr og rofið
þannig hversdagsleikann annað slagið.
Drangeyjarklúbburinn hefúr eins og
kiwanisklúbbar, og reyndar aðrir líkn-
arklúbbar um allt land, stutt við þá sem
minna meiga sín i þjóðfélaginu. „Böm-
in fyrst og fremst” em einkunnarorð
Drangeyjarmanna og eins og áður er
getið hefúr klúbburinn stutt afar vel við
fatlaða á Sauðárkróki og í Skagafirði,
og er þá ónefndur stuðningur klúbbsins
við íþróttafélagið Grósku en þar taka
kiwanisfélagar t.d. virkan þátt í dóm-
arastörfum á bocciamótum. Einnig
hefúr Drangey um árabil gefið verð-
laun til bikarmóta hjá sunddeild Tinda-
stóls og þannig mætti áffam telja. Síð-
ast en ekki síst gefa Drangeyjarmenn
öllum 7 ára bömum í Skagafirði reið-
hjólahjálm á vori hveiju.
Núverandi forseti Drangeyjar er
Ragnar Guðmundsson múrarameistari
Ragnar Guðmundsson forseti Drangeyjar við Kiwanishúsið á Eyrinni, en
hann segir að það hafi skipt sköpum fyrir klúbbinn, þegar hann eignaðist
eigið húsnæði.
og leigubílstjóri. Þetta er í annað sinn
sem Ragnar gegnir þessari ábyrgðar-
stöðu en skipt er um klúbbforseta ár-
lega.
„Ég gekk í klúbbinn þegar hann
hafði starfað í eitt ár og er meðal þeirra
sem þar hafa verið lengst. Þegar við
fögnuðum 25 ára afmælinu í vor, voru
þeir sex sem enn em í klúbbnum af
stofnfélögunum heiðraðir. Þetta em
þeir Gunnar Pétursson, Hjalti Guð-
mundsson, Ingimar Hólm, Jónas Svav-
arsson, Svavar Einarsson og Sverrir
Svavarsson.”
Talið berst að fyrstu starfsámm
Kiwanisklúbbsins Drangeyjar?
„Þetta var mikil sjálfboðavinna sem
lögð var að mörkum fyrstu árin. Þá
vom aðalfjáraflanimar girðingavinna
og þökulagnir. Fljótlega fómm við svo
að selja fisk í sveitum Skagafjarðar.
Farið var í söluferðir einu sinni í mán-
uði og skiptu félagamir því á milli sín.
Þessu var mjög vel tekið og salan gekk
ágætlega lengi vel. Svo fór smá saman
að draga úr fisksölunni, þannig að á
síðasta ári hættum við henni. Þá kom í
staðinn sem aðalfjáröflun útgáfa síma-
skrár fyrir héraðið. Við söfnum í hana
auglýsingum og þessi útgáfa gefúr
okkur þokkalegar tekjur.”
Auk þess sem fyrr er getið í tilefni
25 ára afmælis Drangeyjar, þá má
nefna það að á 20 ára afrnæli klúbbsins
barst það í tal að vegna nafns klúbbsins
þá væri snyðugt að gera eitthvað úti i
Drangey. Þessi fyrirheit vom efnd í vor
þegar kiwanisfélagar komu upp útsýn-
isskifú í eynni. Fjömtíu manna hópur
fór út þegar útsýnisskifan var vígð, fólk
á öllum aldri með klúbbfélögum, en
auk Ragnars var það Ingólfúr Guð-
mundsson sem átti drýgstan þátt í upp-
setningu útsýnisskífúnnar.
Félagar í Kiwanisklúbbnum Drang-
ey hafa löngum verið vel á fjórða tug-
inn, en síðustu árin hefur gengið erfið-
lega að halda uppi félagatölunni eins
og reynst hefúr í hreyfingunni í heild
og annarri klúbbstarfsemi. í dag em
Drangeyjarfélagar um 30 talsins.
Frá afliendingu heita
pottsins í sambýlinu í
Fellstúni á Sauðárkróki.
Ragnar Guðmundsson og
Ingólfur Guðmundsson að
Ijúka við að koma fyrir
útsýnisskífunni í Drangey.
Samvinnubókin og KS-bókin
Tveir góðir kostir til að ávaxta spariféð þitt
KS-bókin er með 4,60% vexti, bundin í 3 ár og verðtryggð
Samvinnubókin er með lausri bindingu, nafnvextir
5,10%, Ársávöxtun 5,17% —^
Innlánsdeild