Feykir - 13.08.2003, Page 5
27/2003 FEYKIR 5
Kántrýið afar
vel heppnað
á Skagaströnd
Kántrýtónleikamir á laug-
ardagskvöldi um verslunar-
mannahelgi tókust einstaklega
vel. Þeir hófust með því að
hljómsveitin The Hefners sté á
svið og lék létta diskósmelli.
Hljómsveitarmeðlimir vom
uppábúnir í stíl fyrri tíma, með
hárkollur og lituð andlit. Þeir
vom hressir og skemmtilegir
og tónlist þeirra lífleg.
Næstir á svið vom KK og
Magnús Eiríks sem léku m.a.
lög af metsöludiski sínum 22
ferðalög. Ahorfendur sem
vom á bilinu 1000-1500
kunnu vel að meta skemmti-
legan flutning þeirra félaga og
tóku undir sönginn, fullum
hálsi.
Hljómsveitin BSG sem
skipuð er þeim Björgvin Hall-
dórssyni, Sigríði Beinteins-
dóttur, Grétari Örvarssyni og
Kristjáni Grétarssyni tók
næstu syrpu. Þar vom á ferð at-
vinnumenn sem kunnu sitt fag
og enn magnaðist frábær
stemming við kraftmikinn tón-
listarflutning þeirra.
Næstur á pall var kántrý-
kóngurinn sjálfur Hallbjöm
Hjartarson. Hann brást ekki
aðdáendum sínum ffemur enn
fyrri daginn og renndi sér í
gegnum sína þekktu kán-
trýslagara við undirleik BSG
manna.
Hljómsveitin Brimkló tók
svo lokahnykk á tónleikana og
óhætt að segja að það hafi ver-
ið hnykkur sem um munaði.
Tónlist þeirra félaga var hreint
út sagt ffábær. Hafi einhver
komið með hálfum hug yfir
því að þama yrðu einungis
fluttar útjaskaðar dægurflugur
af hálfryðguðum poppumm.
Hallbjörn Hjartarson klikkaði ekki frekar en vanalega.
Sigga Beinteins var meðal einsöngvaranna.
Björgvin Halldórsson leiðir gosspellsönginn.
þá fékk sá hinn sami heldur
betur aðra afgreiðslu.
Gömlu góðu dægurflugum-
ar vom keyrðar út af raffnögn-
uðum krafti og greinilegt að
þeir sem að því stóðu vom
hvergi ryðgaðir í ffæðunum.
Hljómsveitin sem núna er
skipuð þeim Björgvin Hall-
dórssyni, Amari Sigurbjöms-
syni, Haraldi Þorsteinssyni,
Guðmundi Benediktssyni,
Magnúsi Einarssyni, Þóri
Baldurssyni og Ragnari Sigur-
jónssyni, var gífúrlega þétt og
skemmtileg. Ahorfendur
skemmtu sér hið besta og bæði
sungu og tóku línudansaspor á
túninu fyrir framan sviðið.
Þótt margir ágætir lista-
menn hafi komið ffam á kán-
trýhátiðum á Skagaströnd und-
anfarin ár er ekki á neinn hall-
að þótt fúllyrt sé að þessir tón-
leikar hafi í heild verið besta
dagskráratriði sem setti hafi
verið á svið á þeim hátíðunum.
A sunnudeginum var hin
hefðbundna gospelmessa. Séra
Magnús Magnússon messaði
og kór Hólaneskirkju söng
gospellög undir stjóm og und-
irleik Óskars Einarssonar. Ein-
söngvarar í messunni voru:
Björgvin Halldórsson, Sigríð-
ur Beinteinsdóttir, Fannar
Viggósson og Hugrún Sif
Hallgrímsdóttir. Messan var
að vanda létt og skemmtileg
og tónlistarflutnigur allur eins
og best verður á kosið.
mikam
(gfts#2 7$
i~FAIRY
Bfþvottalögur
S8K.169-
LENOR
Mýkir 750ml
199^“
ARIEL
^pvot'tðefni 1350g
[599-
FRON S
■Kremkex 250m|
. 99- b
FRON
Mjólkurke^^-I^1
49-\/v
á hverjum deqjj