Feykir - 13.08.2003, Side 7
27/2003 FEYKIR 7
Frægur kappi til Neista
Neista á Hofsós barst
óvæntur liðsauki á dögunum
þegar leikarinn og leikstjórinn
góðkunni Baltasar Kormákur
fór að mæta á æfingar og rifja
upp takta ífá því hann lék
seinast með Breiðabliki í 3.
aldursflokki sumarið 1981.
Baltasar hefur dvalið í
sumar ásamt fjölskyldu sinni á
ættaróðalinuHofí .Hesta-
mennskan er aðalsport Balt-
asars, en þegar hann hafði riðið
fram hjá íþróttavellinum
nokkrum sinnum í sumar og
séð Neistamenn á æfingum fór
að kitl’ann að skella sér í
boltann aftur, það væri kominn
tími til að hreyfa sig. Og kap-
pinn hefur verið iðinn að mæta
á æfingar að undanfömu og
virðist njóta sín vel.
„Þetta er geysilega gaman,
en ég var með nokkuð mikla
strengi eftir fyrstu æfingamar,
enda hefiir maður ekki notað
þessa vöðva lengi”, sagði
Baltastar. Hann lék sinn fyrsta
leik með Neista gegn Magna á
Grenivík sl. föstudagskvöld,
Baltasar Kormákur ásamt Magnúsi G. Jóhannessyni fyrir-
liða Neista tv. og Dusko Dimitrivich þjálfara.
kom þá inná þegar 10 mínútur
voru til leiksloka. Ekki er ljóst
livort „Balti” nær að leika fleiri
leiki með Neista þar sem að
komið er undir lok tímabilsins,
en kappinn hefúr engu að síður
verið að sýna takta á æfingum
á undanfömu og er greinilega
brúklegur í 3. deildinni.
Reyndar vom Neistamenn að
gantast með það þegar
Baltasar mætti á sína fýrstu
æfingu að líklega væri hann að
leita að leikumm í sína næstu
mynd, enda sumir þar stigið á
fjalimar við góðar undirtektir.
Það gengur vel að dæla upp úr Sauðárkrókshöfn og fylla undir Strandveginn. Eins og sjá
má er þetta myndarleg „spýja“ sem kemur frá dæluskipinu Perlu þegar hún losar sandinn
sem kemur upp úr innsiglingunni í höfnina.
Smáauglýsingar
Ýmislegt!
Smáíbúð til leigu.
Til leigu er smáíbúð fyrir
einstakling eða nægjusamt par
í Háuhlíð 1, Sauðárkróki.
Ibúðin er með sér inngangi
og er laus frá 15. ágúst.
Upplýsingar í síma 453-5632
og 899-5632.
Áskrifendur góðir!
Munið að greiða seðlana fyrir
áskriftargjöldunum.
Bikarkeppni FRI fór fram á Laugardalsvelli 8.-
9. ágúst og var keppnin jöfn og spennandi. Þeg-
ar upp var staðið voru það FH-ingar sem hömp-
uðu Dikarnum með 171,5 stig, sterkt lið Breiða-
bliks með Jón Arnar Magnusson í fararbroddi
náði öðru sæti með 162 stig. UMSS hafnaði í
jriðja sæti og hlaut 158 stig. Bestum árangri í
iði IJMSS naoi Sunna Gestsdóttir, sem sigraði í
ímm greinum.
*
I miklu hitaveðri sl. laugardag gerði þrumur og
eldingar í Húnaþingi og í kjólfarið dundi yfir
mikil úrhellisrigning. Eldingu laust niður á
Vatnsnesi og urau tveir sveitabæir rafmagns-
lausir um tíma. Þá fór Kjalvegur í sundur við
Bláfellsháls vegna vatnselgs en vegagerðamenn
fóru strax á staðinn og lauk viðgerð aðfaranótt
sunnudagsins. Þetta er í annað skiptið á stuttum
tíma sem þrumuveður gerir i Húnaþingi, en það
gerðist einmitt í lok síðasta mánaðar.
Samkvæmt dómi Héraðsdóms Norðurlands
vestra þarf Sveitarfélagið Skagafjörður að
;reiða fyrrverandi sveitarstjóra, Snorar Birni
^ irðssyiý, rúmlega eina mdjón króna í orlof á
_ Efrvinnu I framhaldi af dómnum fól byggðar-
ráð núverandi sveitarstjóra að skoða málið nán-
ar með lögmönnum sveitarfélagsins.
Sigui
ynrvi
Neistamenn unnu öruggan sigur á Hvöt í leik á
Hofsósi í gærkveldi. Lokatölur urðu 3:1. Neisti
var kominn í 3:0 snemma í seinni hálfleik, en
missti þá fljótlega tvo menn út af vegna tveggja
lra spjalda. Þeir léku því níu megnið af seinni
álfleiknum og tókst Hvöt að skora þegar tvær
mínútur voru til leiksloka. Andri Jóhannsson,
Helgi Páll Jónsson og Milo skoruðu fyrir Neista.
Hvot hefði ekki dugað að sigra Neista í gær til að
halda í vonina um úrslitasæti, þar sem Magni
sigraði Vask á Akureyri, 0:1.
gul
nái
Fljótamenn mót-
mæla húsfhitningi
íbúar í Fljótum eru ósáttir
við flutning íbúðarhúss í eigu
Svetiarfélagsins Skagfjarðar,
frá Lambanesreykjum á Sauð-
árkrók, þar sem nýta á húsið
fyrir skóladagheimili. Ibúamir
afhentu sveitarstjóm Skaga-
fjarðar undirskriftalista með
mótmælum við ákvörðun
sveitarstjómarinnar um að
flytja burtu húsið, og benda á
að ekki sé fúllreynt hvort að
unnt verði að halda áfram
starfsemi i fiskeldi á Lamba-
nesreykjum. Því geti orðið not
fyrir húsið í Fljótum áffarn. 75
íbúar skrifa undir yflrlýsing-
una. Talsmaður íbúanna,
Trausti Sveinsson á Bjamar-
gili, er óhress með að þegar
hefúr verið hafíst handa við að
flytja húsið þrátt fyrir óskir um
ffestun.
Lokafrestur á innritun
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig til náms.
Sérstök athygli er vakin á námi í grunndeild tréiðna
og grunndeild rafiðna. Tvö pláss eru laus í hvorri
deild um sig á haustönn 2003.
Hægrt er að fá inni á heimavist skólans og kostar húsnæði með fimm daga
fæði kr. 26.888 á mánuði að jafnaði yfir skólaárið.
Frábær aðstaða er til að stunda íþróttir, útivist og hestamennsku.
Jafnframt er auglýst eftir kennara til að kenna grunnteikningu
(18 vikustundir) og kennara í hlutastarf (1/3) í stærðfræði.
Umsóknarfrestur er til 24. ágúst nk.
Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 455 8000 og á heimasíðu skólans
www.fnv.is