Feykir - 13.08.2003, Síða 8
13. ágúst 2003,27. tölublað, 23. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
Nýir aðilar taka
við á HveravöUum
Þann 1. október á sl. ári
varð sú meginbreyting á rekstri
og umsjón á Hveravöllum að
Ferðafélag Islands lét þar af
allri umsjón í hendur Svína-
vatnshrepps sem eiganda
landsins.
Stofiiað var einkahlutafélag
um uppbyggingu og starfsem-
ina á Hveravöllum og hefiir
staðurinn verið skipulagður
með tilliti til náttúravemdar og
heilsárs íyrirgreiðslu og þjón-
ustu við það marga fólk sem
leggur leið sína um Kjöl og
umhverfi hans. Hlutafélag um
Hveravelli ermyndað af þrem-
ur jöfnum hlutum: Svínavatns-
hreppi og tveimur ungum
mönnum, sem báðir era Hún-
vetningar og sjá þeir alfarið um
allar ffamkvæmdir.
Byrjunarframkvmædir era
þær að komin er ný dísel raf-
stöð við hlið lítillar er fyrir var
og fyrst og fremst var starffækt
vegna veðurathugunar á staðn-
um, en nýja stöðin á að ffam-
leiða nægjanlega orku fyrir alla
starfsemi sem nú er fyrirsjáan-
leg á staðnum. Þá hafa hita-
lagnir verið endumýjaðar með-
al annar að aðalþjónustuhús-
inu, endurbætt og aukið við
tjaldstæði og fleira.
Hlutafélagið sér raunar um
alla fasta starfsemi sem ffam
fer á Hveravöllum, nema veð-
urathuganimar, en séð er um
girðingavörslu fyrir sauðfjár-
veikivamir, landvörslu,
heysölu til hestamanna og svo
sjálft aðalstarfið þjónustuna
við ferðalanga.
Mikil og vaxandi umferð er
um Hveravelli og mikið að
gera. Fast starfslið er þó aðeins
tvær ungar konur er stjóma og
vinna að daglegum rekstri og
sú þriðja sem annast girðinga-
vörsluna. Fyrir nokkra átti ffétta-
ritari leið um Hveravelli og
hvortveggja átti viðræður við
veðurathugunarfólkið og stúlk-
umar tvær sem stjóma sjálffi
umferðarmiðstöðinni. Fjórir
stórir langferðabílar vora þá á
staðnum auk smærri bíla. gg.
Húnþing vestra
Bóka- og skjalasafn
í nýtt húsnæði
Sl. mánudag var Bóka- og
skjalasafn Húnaþings vestra
opnað í nýju húsnæði á Höfða-
braut 6 á Hvammstanga. Safnið
var reyndar í sama húsi áður,
flutt milli hæða í stærra og að-
gengilega húsnæði. Kostnaður
við endurbætur og innréttingar
varð um 12,6 milljónir.
Að sögn Skúla Þórðarsonar
sveitarstjóra þýðir þetta bæði
bætta aðstöða og aðgengi fyrir
notendur. Einnig var komið fyr-
ir í húsnæði safhsins tölvum
með intemettenginu, eins og
krafa er nú um í nútímaþjónustu
safha. Skúli sagði að mánudag-
urinn hafi verið mjög ánægu-
legur, en efnt var til móttöku í
tilefni opnunarinnar.
Safhvörður Bóka- og skjala-
safhs Húnaþings vestra er Sig-
ríður Tryggjadóttir.
(0 Sími: 453 6666
VlE Sími: 453 6622
Ný bryggja í Drangey
Jón Eiríksson Drangeyjaijarl hefur staðið í
stórræðum að undanfömu. A síðustu tvemur
mánuðum tæpum hefur verið unnið að hafhar-
bótum í Drangey og búið að steypa þar öfluga
bryggju, en í hana fóra tæplega 90 rúmmetrar af
steypu, enda fjórir metrar þar sem dýpst var.
Trébryggja sem fyrir var í eynni, og byggð af
Jóni og hans mönnum fyrir nokkram árum, fór í
brimi á næstsíðasta vetri, þegar akkerissteininn
úti í sjónum hvolfdist á legu sinni.
Jón sagðist í samtali við Feyki hafa fengið
vaska sveit manna með sér í þetta verk, m.a.
bæði sveitarstjórann og organistann í síðustu
steypu. En þetta heföu verið svona fimm til sex
menn yfirleitt. Flytja þurfti 200 tonn af steypu-
efni út í eyna og var það gert í 42 ferðum, en
steypt var úr tveimur bátum í fyrra, eins og Jón
mælir steypumagnið.
Fyrsta steypan í sumar var 20. júní og síðan
er búið að vera talsvert stíf vinna við bryggju-
smíðina. Fyrir liggur loforð ffá Sturlu Böðvars-
syni samgönguráðherra um fjögun'a milljóna
króna fjárveitingu til bryggjusmíðinnar.
Jón vonast til að með þessari ffamkvæmd sé
lendingin tryggð i Drangey til ffamtíðar. „Mað-
ur hefur verið að reyna að vama því að lending-
in fari öll í sjóinn. Það hefur verið reynt að gera
það sem hægt er. Það er t.d. ágætis gangvegur
ffá altarinu og ágætist stígur upp á brúnina það-
an. Og þokkalegur stigi upp á Lambhöfðann, en
maður kemur ekki öllu í verk”, segir Jón Drang-
eyjaijarl.
Grettishátíð um helgina
Grettishátíð verður haldin í
Húnaþingi vestra um næstu
helgi. Hátíðin hefst með Grett-
isvöku i félagsheimilinu
Hvammstanga á laugardags-
kvöld, 16. ágúst kl. 20.00. Síð-
an verður fjölskyldudagur að
Bjargi í Miðfirði á sunnudegin-
um ffá kl. 11 til 16.
A Grettisvökunni á laugar-
dagskvöld flytur Einar Kárason
erindi, Þórarinn Eldjám les úr
verkum sínum og Ólafur Kjart-
an Sigurðarson syngur og leik-
ur af fingram ffam á hljóðfæri
allt ffá GSM-síma til mand-
ólíns. Þá verður Grettis saga
leikin á „mettíma” af íþrótta-
leikhúsinu. Kvæðamannafélag-
ið Vatnsnesingur lætur til sín
taka og hljómsveitin Rain leik-
ur ffumsamin lög.
Fjölskyldudagurinn að
Bjargi í Miðfirði hefst með
sögustund og rölti. Þá verður
grillað, tónlist, söngur, leikir og
skotbakkar að ógleymdri afl-
raunakeppni Grettishátíðar.
Meðal verðlauna er ferðavinn-
ingur, utanlandsferð, en keppt
er bæði í karla- og kvenna-
flokki. Skráning er í síma 455
2512 eða á grettir.sterki@gret-
tistak.is.
Blaðamaður Feykis var við-
staddur Grettishátíðina á síð-
asta sumri og varð ekki fyrir
vonbrigðum. Söguröltið t.d.
gefur ótrúlega innsýn í Grettis-
sögu, þar sem að hægt er að sjá
marga staði sem þekktir at-
burðir úr Grettissögunni gerð-
ust og ósjálffátt rifjast sagan
upp. Þá er jafhan mikið líf í
kringum aflraunakeppnina.
fiM KlftKJUTt&tl /j KA<Jfy/Ahl4Cn>&i
>> Bókabúð Brynjars BÓKABÚB
hefur opnar á nýjum stað,
Kaupvangstorgi 1 ð Sauðárkróki BKmJARS