Feykir - 25.02.2004, Side 5
8/2004 FEYK3R 5
F - • w&iK,æBðrt- &;
m / K 1 > 'V ■ * '
Pétur kempulegur, fyrir miðri mynd Mynd/ÖÞ.
Pétiir á Hraunum segir
frá þorrablótunum
Um fyrri helgi var þorri blótaður á
Ketilási í Fljótum og var fjölennt á Asn-
um að venju, um 140 manns sem telst
ágætt á fámennri sveit. Þegar ritari
þessa pistils var fyrir margt löngu á
bamaskemmtun á Ketilási um jólin,
brást það ekki að Pétur Guðmundsson
bóndi á Hraunum tilkynnti fund hjá
væntanlegri þorrablótsnefhd meðan á
samkomunni stóð. Pétur er sá maður
sem sjaldnast hefur látið sig vanta, enda
ffemstur í flokki þeiira sem endurvöktu
þorrablót Fljótamanna í byijun sjöunda
áratugs síðustu aldar. Á blaðamannstið
ritstjóra Feykis hjá Degi á Akureyri fyr-
ir 17 árum síðan var tekið viðtal við Pét-
ur á Hraunum, sem þar er titlaður einn
af félagslyndustu og lífsglöðustu
mönnum sveitarinnar. Hér á eftir kemur
þetta viðtal við Pétur, enda það væntan-
lega fallið í gleymskunnar dá.
„Það mun vera langt síðan farið var
að halda þorrablót hér í Fljótum. Þegar
ég kom í Fljótin 14 ára gamall með for-
eldrum mínum í Nefstaði í Stíflu 1938
vom þorrablótin í algleymingi. Ég átti
heima á Nefstöðum til ársins 1945 að
allt undirlendi Stíflu fór undir vatn við
gerð Skeiðsfossvirkjunar. Þá fluttu for-
eldrar mínir í Hraun. Á þessum ámm og
og áður vom haldin tvö þorrablót í
sveitinni. Stíflubúar stóðu fyrir blóti í
Miðgarði, sem var hús í eigu ung-
mennafélagsins, nokkurskonar félags-
heimili Stífubúa og stóð það neðan við
húsið á Melbreið. Veggir þess em enn
að nokkm uppistandandi. Hitt blótið var
í höndum neðri sveitunga og haldið á
Ketilási. Setti fólk ekki fyrir sig að fara
á þessar skemmtanir um langan veg á
skíðum, en þegar hesta- og sleðafæri
var gott var sá ferðamáti notaður.
Þorramaturinn var framreiddur í
trogum eins og gerist á blótunum á Ket-
ilási enn í dag. En þá dmkku menn af
stút og vom drykkjarföng að mestu
heimatilbúin. Skemmtiatriðin í þá daga
vom aðallega ræðuflutningur og söng-
ur. Síðan var að sjálfsögðu stiginn dans
fram á morgun og ég man að í eitt skipt-
ið var sólin komin upp þegar haldið var
heimleiðins. Það þarf ekki að orðlengja
hvað þessar skemmtanir vom mér ung-
lingnum minnisstæðar og maður var al-
veg í sjöunda himni á meðan á þeim
stóð og lengi á eftir. Þama voru menn
hressir og kátir og héldu ræður. Ég man
sérstaklega eftir ræðu sem Jóhann P.
sem byggði hótelið í Haganesvík, faðir
Siguijóns skipstjóra, flutti einu sinni í
Stíflunni og var að þakka móttökumar
eins og títt var með boðsgesti á blótun-
um. Jóhann var ansi skemmtilegur karl
sérstaklega þegar hann hafði fengið sér
smá bragð. 1 ræðunni hældi hann Stíflu-
mönnum fyrir hvað þeir væm miklir
víkingar, hraustir og miklir og sagði:
„Ef helvískur Rússinn kæmi, mundi ég
vilja stofna herdeild héma í Stíflunni. Þá
mundi ég setja í ffemstu víglínu þá Þor-
vald á Deplum og Jón á Móafelli. Jón í
Tungu mundi ég hafa fyrir herforingja,
þótt hann sé lítill, Napoleon var ekki
stór.” Það var mikið hlegið að þessari
ræðu, Svona gat þetta verið skemmti-
legt maður.
Og svo var það söngurinn. Þeir vom
feiknamiklir söngmenn Stíflumenn,
Þorvaldur á Deplum var söngstjórinn og
organistinn Þorlákur sem þá var á
Gautastöðum og seinna á Gautlöndum,
var alltaf sóttur þegar hann var nærtæk-
ur. Hann gaf sko tóninn. Mér er sérstak-
lega minnisstæður Slétthlíðingur einn
sem off var gestur á blótum í Stíflunni.
Ásgrímur nokkur bóndi á Skálá. Stór og
mikill maður með ógurlega bassarödd,
svo mikla að ég held að hann hefði get-
að sungið bassa á móti mörgum. Og
hann var líka svo músíkalskur að hann
vissi alveg hvemig átti að syngja bassan
í öllum lögum. Þá man ég líka eftir
nafna Ásgríms ffá Karlsstöðum í Ólafs-
firði. Hann hafði gaman af að halda
ræður, en var svolítið gjam á að mistala
sig og að því var oft hlegið. Eitt sinn
sagðist hann hafa fæðst sex ára á Berg-
hyl í Fljótum. Ásgrimur þessi var ákaf-
lega gestrisinn maður þrátt fyrir fátækt
og þegar Fljótamenn voru á leið til
Ólafsfjarðar var ekki við annað kom-
andi en að þeir stönsuðu og fengu ein-
hvem viðurgjöming.
Þorrablótin lágu niðri í Fljótum í all-
mörg ár, en vom síðan endurvakin fyrir
liðlega 20 ámm. Þetta em ákaflega
skemmtilegar og góðar samkomur og
skemmtiatriðin yfirleitt fjölbreytt. Þar á
meðal er alltaf fluttur annáll ársins í
gamansömu formi og oft grínkvæði. En
einhvem veginn finnst mér blótin nú
hvert öðm lík og stansa ekki eins í hug-
anum og þau sem ég upplifði þegar ég
var unglingur.”
KOSTABÓK
- Stighækkandi vextir eftir tímalengd
Hentar vel fyrir reglubundin sparnað
og lægri innborganir
www.kbbanki.is
KB BANKI
Sauðárkróki s: 455 5300
Hofsósi s: 453 7400
Varmahlíð s: 453 8200