Feykir - 06.07.2005, Blaðsíða 5
26/2005 Feykir 5
Landsbankamót Tindastóls
Hressir krakkar á
knattspyrnumóti
Tindastólsstrákar fagna afkrafti.
Landsbankamót Tlndastóls í knattspyrnu var haldið
í fyrsta skipti á Sauðárkróki um síðustu helgi en það
voru knattspyrnukempur í 4. flokki (bæði strákar og
stelpur) sem höfðu þátttökurétt. Það er mál manna að
mótið hafi tekist vel og það sé komið til að vera.
Kristjáni þakkað fyrir með handabandi en Ellen gefur aðdáenda eiginhandaráritun. ÓÞ
Tónleikar í Hóladómkirkju
Húsfyllir hjá KK og Ellen
Veður til sparks var hið
ágætasta á laugardeginum; sólin
lét kræla á sér og á miUi helltist
rigning ofan af himninum
eins og hellt væri úr fötu. Á
sunnudeginum kólnaði og
hvessti eftir því sem á daginn
leið.
Keppendur gistu í Árskóla í
góðu yfirlæti og ekki er annað
að heyra en að vel hafi til tekist
með mótið.
Um tvöhundruð manns
komu á tónleika í Hóla-
dómkirkju á mánudags-
kvöldið. Þar fluttu syst-
lcynin Kristján og Ellen
Kristjánsbörn mörg af
sýnum þekktustu lögum
á undaförnum árum.
Tónleikarnir voru hald-
nir að tilstuðlan Hólanefn-
dar og Guðbrandsstofnunar
sem hafa staðið fyrir tónlei-
kahaldi á Hólum síðdegis á
sunnudögum um tíma. Var
kirkjan og inngangurinn full
og nokkrir hlýddu á utan-
dyra sem var vandalaust því
Skagafjörðurinn skartaði
sýnu fegursta þetta kvöld.
Eins og við var að
búast voru hinir fjölmörgu
áheyrendur ekki sviknir af
flutningi þeirra systkyna sem
var sérlega vandaður og ekki
spillti ágætur hljómburður
Hóladómkirkju fyrir. Flutt
voru nokkur lög af sálrna-
plötu Ellenar sem út kom
fj'rir síðustu jól og einnig
ýmiss dægurlög sem þau hafa
gert vinsæl á undanförnum
árum.
Var þeirn þakkaður flutn-
ingurinn og ekki síður sér-
lega elskuleg framkoma með
lang\'innu lófataki í lokin auk
þess sem margir gestir þök-
kuðu þeim með handabandi
eftir hljómleikana. Þetta voru
sjöttu tónleikar þeirra syst-
kyna á landsbyggðinni á nok-
krum dögum og jafnframt
þeir síðust að þessu sinni.
Þess má geta að nk.
sunnudag verður Seljakórinn
í Hóladómkirkju og helgina
þar á eftir verður blásaratrío
úr Reykjavík og 24 júlí mun
kór Glerárkirkju verða þar
með hjómleika.
ÖÞ:
Magnús Helgason afhendir verðlaun.
Þróttar-stelpur með bikar.
Tindastóls-stelpurnar til í slaginn!
r tomato
\ KETCHUP j
^gWAIT.NOMfg
Heinz tómatsósa
907 gr.
ORA maís 1/2 ds.
Hunts BBQ sósur
McVities Caramel kex
300 gr. 4
Ef þú kaupir 2 pk. af
Kellog s færö þú
handklæði i kaupbætir.
Food line maccarónur
500 gr. QQ
Food line pastaskrúfur
500 gr. QQ
Food line spaghetti 1 kg,