Feykir - 06.07.2005, Side 8
SHELL SPORT SKAGFIRBINGABRAUT 29 SAUÐARKROKI SIMI 453 6666
Si®lls])0vt
Skagafjörður
Landsvirkiun leggur
Brimnesskógum lið
Fólk úr umhverfishópi Landsvirkjunar sem vinnur undir kjörorðinu “Margar hendur
vinna létt verk", f.v. HjaltiAxel Yngvason, Dagbjört Vestmann Birgisdóttir, Sigurður
Gústafsson og Steinn Kárason framkvæmdastjóri Brimnesskóga.
Hópur ungs fólks úr Umhverfishópi Landsvirkjunar
vann nýlega að endurheimt hinna fornu Brimnes-
skóga í Skagafirði þegar gróðursettar voru á fimmta
þúsund birkiplöntur og á annað hundrað
gulvíðiplöntur.
Steinn Kárason fram-
kvæmdastjóri Brimnesskóga
ffæddi hópinn í upphafi verks
um forsögu og hugmynda-
fræðina að endurheimt Brim-
nesskóga, en til verkefnisins er
eingöngu notað náttúrulegt
skagfirskt birki, reynir og
gulvíðir, sem upprunnið er í
Hrolleifsdal og Austurdal í
Skagafirði. Gróðursetningin
tók um 130 klukkustundir og
hafði hópurinn aðsetur í
Grunnskólanum á Hólurn í
Hjaltadal meðan á verkinu
stóð.
í Landnámabók Ara fróða
er sagt frá Brimnesskógum í
Skagafirði, sem voru svo
gróskumiklir að hryssan Fluga
týndist í skóginum. Nú er þar
skógvana land, einungis móar
og melar.
Markmiðið er að endur-
heimta þessa fornfrægu skóga á
sjálfbæran og vísindalegan hátt,
og er tilgangurinn m.a. að
renna styrkari stoðurn undir
vistvæna- og menningartengda
ferðaþjónustu, efla atvinnu á
svæðinu sem og vísindalegt
skólastarf og vistvæna skóg-
rækt.
Þetta er annað árið sem
skagfirskar trjáplöntur eru
gróðursettar til að endurheimta
hina fornu Brimnesskóga, en
síðastliðið haust unnu um 150
grunnskólabörn frá Sólgörð-
um, Hofsósi, Hólum og
Sauðárkróki ásamt sjálfboða-
liðum að gróðursetningu.
Nú eru liðin ellefu ár síðan
Steinn Kárason tók greinar af
birki í Hrolleifsdal til ágræðslu
og fræræktar. Vonir standa til
að fyrsta fræuppskera af kyn-
bótabirki fáist í Gróðrar-
stöðinni Mörk í Reykjavík með
haustinu. Starfsemi félagsins
byggir á frjálsum fjárfram-
lögum, en meðal styrktaraðila
eru Yrkju-sjóður Vigdísar
Finnbogadóttur, KB - banki og
Landbúnaðarráðuneytið.
Stjórn félagsins skipa auk
framkvæmdastjóra, Vilhjálmur
Egilsson, Jón Ásbergsson og
Sölvi Sveinsson.
1 J
tÁþ,
KF*
Sviðsstjóra í Skagafirði gerður nettur grikkur
Álver í Ráðhúsinu?
Á meðan Áskell Heiðar
Ásgeirsson sviðsstjóri
markaðs- og þróun-
arsviðs Sveitarfélags-
ins Skagafjarðar var í
sumarfríi var skrifað
undir rannsóknarsamn-
ing við Alcoa og Iðnaðar-
ráðuneytið.
Það sem kom kappanum
kannski meira á óvart þegar
hann kom úr fríinu var að
búið var að breyta skrifstof-
unni hans í Ráðhúsinu í álver
- eða þannig!
Einhverjir óprúttnir ná-
ungar höfðu klætt hvern ein-
asta hlut á skrifstofunni inn í
álpappír; meira að segja flagg-
ið á borðinu, viftuna og tölvu-
skjáinn.
Þegar Feykir hafði veður af
þessu og kíkti í heimsókn var
búið að afldæða skrifstofú-
stólinn og töhoiskjáinn - enda
mynd af sigurreifúm Liver-
púddlum á desktoppnum.
Ekki tók Heiðar þessu
þó illa og ekki var kölluð til
óeirðalögregla. Sökudólgarn-
ir kíktu í heimsókn með svip
hinna ekki svo saklausu á
andlitinu og spurðu hvað væri
í gangi og voru þeir umsvif-
alaust leiddir í gildrur hins
reynda embættismanns.
Lögreglan_________________
„Átakið að skila árangri"
Björn Mikaelsson,
yfirlögregluþjónn á
Sauðárkróki, segir
hraðakstursátak vera að
skila sér.
Menn þar á bæ hafa verið að
stöðva og sekta að jafnaði vel á
annan tug bílstjóra á hverjum
degi frá því að umferðarátakið
sem Feykir greindi frá í síðasta
tölublaði hófst, en mestur fór
fjöldinn í tæplega 30 manns
á einum degi. Er þar mest
megnist um að ræða hraðak-
stur, þó engan ofsaakstur, en
einnig er nokkuð um að ljós-
abúnaði bíla sé ábótavant, að
skráning kerra og aftanívagna
sé ekki lögum samkvæmt og
einhverjir hafa ekki verið að
nota bílbelti. Það er því nok-
kuð ljóst að átakið er að skila
árangri og vonandi að hann
standi til frambúðar.
Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglunni á Blönduósi
gekk umferðin um Húna-
vatnssýslurnar nánast áfalla-
laust fyrir sig um helgina og
höguðu sér flestir hverjir vel í
umferðinni.
Þó er alltaf misjafn sauður
í mörgu fé og var einn öku-
maður stöðvaður í Hrútafirð-
inum á mánudaginn sl. á 145
km hraða á klst.
Veðrið_________________
Hlýnar
Veðrið hefur ekki verið
nema sæmilegt í upp-
hafi vikunnar og spáð er
norðanátt og þokulofti
við ströndina í dag.
Síðan á þetta eitthvað að lagast
um leið og snýst til sunnan-
áttar og þá hlýnar en re>mdar
gætu fylgt einhverjar skúrir.
® 455 5300
Spara&u reglulega með KB sparifé
Œ
KB BANKI
-krafturtil þínl
Skagafjarðarveitur
Hitaveitulagning á
undan áætlun
í samtali Feykis við Pál
Pálsson, veitustjóra hjá
Skagafjarðaveitum, kom
fram að vinna við lagn-
ingu hitaveitu í Akra-
hreppi er nú í fullum
gangi og er verkið
nokkuð á undan áætlun.
Verið er að vinna ffá
dælustöð við Syðri-Grund í
báðar áttir á kaflanum frá
Dalsánni að Flugumýri,
545 4100
www.bustadur.is
1
BUSTÁÖUR
jafnframt því sem vinna er
hafm við borholu 13 í
Varmahlíð sem á að sjá
Akurhreppingum fyrir heitu
vatni.
Ætlunin er að ljúka meira
en helmingi verksins á þessu
ári en verklok eru áætluð í
september 2006.
RAFVERKTAKAR
- sérverslun
með raftæki
^ rafsjá hf
SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI SÍMI453 5481