Feykir - 23.11.2005, Síða 1
Anna P. Þórðardúttir, formaður Sjálfsbjargar iSkagafirði kom á bókasafnið i Safnahúsinu á Sauðárkróki siðastliðinn fimmtudag. "Ég hef
oft horft löngunaraugum upp alla þessa stiga", sagði Anna sem vildi með þessari heimsókn vekja athygli á að aðgengi fyrir fatlaða er
ekkert upp á aðra hæð hússins, sem þó á að hýsa bókasafn allra Skagfirðinga. Mynd: ÓAB
Tillögur varðandi Byggðastofnun fyrir mánaðarmót
Áhersla á að dracja
ekki úr starfsemi
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra segist leggja ríka áherslu
á að erfiðleikar Byggðastofnunnar dragi ekki úr
umsvifum hennar. Gert er ráð fyrir að starfshópur um
framtíð stofnunarinnar skilar af sér fyrir mánaðarmót.
Til grundvallar starfi
hópsins var lögð franr skýrsla
ráðgjafarfyrirtækis um Byggða-
stofnun. Þar er gerð ítarleg
grein fyrir stöðu og vanda
Byggðastofnunar sem er m.a.
sagður sá að stofnunin sé ekki
það forystuafl í málaflokknum
sem ætíamætti, að fjárhagsstaða
hennar sé mjög erfið og að ekki
verði séð að fjármögnunar-
starfsemin geti orðið
fjárhagslega sjálfbær.
„Ég á von á að starfshópur-
inn skili niðurstöðu í þessum
mánuði og í kjölfarið verður
litið til þess hvaða aðgerða er
hægt að grípa til svo styrkja
megi starfsemi stofnunarinnar
og sjá til þess að hún uppfylli
lögbundið hlutverk sitt,” segir
Valgerður Sverrisdóttir, ráð-
herra.
„Ég hef lagt á það ríka
áherslu að starfsemin verði efld
þannig að hún geti betur rækt
hlut\'erk sitt í breyttu umhverfi.
Jafnframt hef ég lagt höfuð-
áherslu á það að stöðugildum
Byggðastofnunar verði ekki
fækkað. Ekki verður hins vegar
horft ffam hjá því að umhverfi
ákveðinna þátta eins og
lánastarfseminnar hefur breyst
á síðustu árum Við þessu þarf
að bregðast og móta nýja stefnu
ogáherslur.”
Varmahlíð______________
Ný hótel-
styra
Svanhildur Pálsdóttir,
Stóru Ökrum í Blöndu-
hlíð, hefur verið ráðin
sem hótelstjóri Sels-
hótels í Varmahlíð.
Markmiðið er að byggja upp
öfluga heilsársstarfssemi á
hótelinu sem er í eigu Ingva
Kristjánssonará Skútustöðum
í Mývatnssveit.
Sameinað sveitarfélag í Austur Húnavatnssýslu
Kosið milli þriggja
nafna og 2 lista
Þann 10. næsta
mánaðar verður kosið
til sveitarstjórnar í
sameinuðu sveitarfélagi
fjögurra hreppa í
Austur Húnavatnssýslu.
Jafnframt verður kosið
um nafn á sveitarfélaginu
en val er um nöfnin
Húnavallabyggð,
Húnavallahreppur og
Húnavatnshreppur.
Hið nýja sveitarfélag
verður tif við sameiningu
Bólstaðarhlíðarhrepps,
Svínavatnshrepps, Torfalækj-
arhrepps og Sveinsstaða-
hrepps. Umboð nýrrar
sveitarstjórnar er stutt því kjósa
verður aftur við reglulegar
sveitarstjórnarkosningar í vor.
Tveir listar verða boðnir
fram. A-listi en þar eru efstu
menn: Björn Magnússon,
Hólabaki, Jóhanna
Pálmadóttir, Akri, Tryggvi
Jónsson, Ártúnum, Jón
Gíslason, Stóra Búrfelli og
Guðrún Guðmundsdóttir,
Guðlaugsstöðum.
Á B-lista eru efst: Ólöf
Birna Björnsdóttir, Hæli,
Birgir Ingþórsson, Uppsölum,
Brynjólfur Friðriksson,
Brandsstöðum, Birgitta Hall-
dórsdóttir,SyðriLöngumýriog
Gunnþóra H. Önundardóttir.
Hvammstangi____________
Saumastofan hættir
Alvarleg staða blasir
við saumastofunni
á Hvammstanga, en
starfsmönnum hennar,
sem eru fimm talsins,
hefur verið sagt upp.
Freyjuprjón sem er í eigu
Byko rekur bæði saumastofu
og prjónastofu á Hvamm-
stanga. Prjónastofan verður
rekin áfram en þar starfa
sex manns. Saumastofan
hefur framleitt föt til útflut-
nings og meðal annars vegna
óhagstæðrar gengisþróunar
er ekki lengur grundvöllur
fyrir rekstrinum. Þegar mest
var störfuðu um 25 nianns
hjá forvera Freyjuprjóns á
Hvammstanga, Isprjón.
Sjávarútvegsráðherra fagnar tímamótum___
Einar Kr. fimmtugur
Föstudaginn 2. desember fagnar Einar Kristinn Guð-
finnsson, sjávarútvegsráðherra, fimmtíu ára afmæli
sínu í félagsheimilin í Bolungarvík.
Að sögn Einars verður opið Að lokinni afmælisdagskrá
hús ffá Jd: 20:00 um lcvöldið verður slegið upp dansleik
og fagnar hann að sjá sem með vestfirskxi sveifu.
flesta vini, frændur og félaga.
Almenn raftækjaþjónusta
- frysti og kæliþjónusta
- bíla- og skiparafmagn
- véla- og verkfæraþjónusta
—CTeMgill ehj3—
Bílaviðgerðir
hjólbarðaviðgerðir
réttingar og sprautun
J!EI
bílaverkstæði
Aðalgötu 24 550 Sauðárkrókur Sími 453 5519 Fax 453 6019
Sæmundargötu lb 550 Sauðárkrókur Sími 453 5141