Feykir - 23.11.2005, Blaðsíða 6
6 Feykir 44/2005
versnar.” Annað hafðist ekki
af honum við þær aðstæður
og hélt áfram með sínar
hjólbörur eða sleða.
Líklega hefur þessi sérviska
orðið til þess að óvandaðir
menn lugu upp á hann sögu af
því að hann lagði sig um
miðjan daginn í divaninn í
eldhúsinu sem var á móti
dagatalinu á norðurveggnum
og þá dreymdi kall að utan
um einn daginn var rauður
hringur og réði hann strax á
þá leið að þann dag mundi
heldur en ekki skipta til hins
verra með tíðarfar.
Ekki sá hann töluna á
dagatalinu og fór á sörnu leið
næsta dag en þá sagðist hann
vera búinn að setja undir þann
leka og efþessi draumur kærni
til sín í þriðja skipti gæti hann
fullráðið hvenær ótíðin kæmi
á fyrir alvöru. „Ég nefnilega
legg mig með gleraugun á
Hilmir Jóhannesson skrifar nefmu. ”
Draumar
í sófanum dreymdi mig
um daginn að ég væri
staddur á sveitarstjórn-
arfundi. Þið skulið ekki
misskilja mig, þetta var
ekki martröð, þvert á
móti, Ijúfur draumur í
fallegu umhverfi með
fallegri tónlist, allt í
eðlilegum litum og
steríó.
Þarna kom hver mann-
vitsbrekkan af annari og talaði
af fúllu viti og yfirvegun og
fóru jafnvel með vísur og
spakmæli sem féllu fagurlega
að umræðuefninu og upplýstu
málin og brutu viðfangsefnin
fullkomlega til mergjar. Það
var ánægjuleg samkoma.
Nú má enginn misskilja
þetta og halda að ég sé að
sproksetja sveitarstjórnina,
það er fjarri lagi. Satt að segja
hef ég ekki í mörg ár setið eða
hlíýt á fund í þeirri nefnd og
hálf skammast mín fyrir
vikið.
Víst er mögulegt að
raunveruleikinn sé alveg jafn
fallegur og ánægjulegur eins
og sófadraumurinn var. Hitt
þótti mér sorglegast að þegar
ég vaknaði sat ekkert fast í
hausnum á mér af þeirri speki
sem svefnfarirnar voru upp-
fullar af, sama hvað ég grufl-
aði. Kom mér þá í hug mesti
veðurspámaður Húsvíkinga,
Helgi í Skógargerði, sem var
bóndi í þvi sveitarfélagi þó
hann væri bæði smár og
grannur, álíka og fjórtán ára
piltur.
Helgi bjó með nokkrar kýr
snertuspöl ofan við bæinn og
gjörnýtti svo sín föng að hann
seldi alla mjólkina við húsdyr
nágrannanna og fengu færri
en vildu, því þetta var
kostamjólk. Óspillt af
meðhöndlun ogbakteríudrápi
enda vísast laus við slík
aðskotadýr. Mjólkina flutti
hann á sjálfum sér, hafði
hjólbörur á sumrin en sleða á
vetrum og menn mátu sannað
að það hafi verið smæsta
hestafl sem notað var til
flutninga á tuttugustu öld-
inni.
Ekki ætlaði ég að ræða um
búháttusnilli Helga eða
velheppnaðan lífsmáta þeirrar
fjölskyldu heldur hversu
merkilegur veðurspámaður
hann var.
Aldrei var hann dapur þó
ótíð væri, sem vissulega
bitnaði þó illa á mjólkur-
póstinum, alltaf hress og til í
spjall við þá sem hann taldi
þess verða og gat þá rætt af
djúpri alvöru um ástandið og
var aldrei neinn bilbug á
honum að sjá. Aftur á móti
var hann dapur þegar tíðin var
góð og svaraði gjarnan ef
menn töluðu um blíðuna: „Já,
það er vísast rétt - en hann
verður vondur þegar hann
Þetta ráð Helga í Skógargerði
vil ég nota mér þegar
sveitarstjórnarfundur verður
næst haldinn í sófanum
mínum því ég er ábyrgur
borgari og vil gjarnan nema
þá speki sem þar er uppi höfð
og þó sérstaklega vísurnar og
mundi ef til vill segja frá því í
Feyki ef heppnin er með.
Gæti þetta, ef vel tekst til,
orðið jafnvel til hjálpar okkar
sveitarstjórn sem vissulega
stríðir í ströngu eins og
stundum áður.
Þetta segi ég því sjaldan
hefur mér fundist eins gaman
að hlusta á pólitíkusa þvarga
um dægurmálin og þótti mér
rnikil breyting orðin á. Satt
best að segja er þessi hópur nú
ekki alskemmtilegur. í fram-
haldi af þessurn spaklegu
hugleiðingum tók ég þá
ákvörðun að leggja mig alltaf
með blað og blýant við
hendina.
Auðvitað getur farið
þannig, eins og stundum áður
í rnínu lífi, að fallegasti
draumurinn verði argasta
martröð, en það er náttúrulega
annar handleggur.
Að vonarströnd
mig tekur tímans straumur,
tálvonirnar aldrei
geta ræst.
Stundum verður
dýrðlegasti draumur
djöfuls martröð, þegar hann
kemur nœst.
Hilmir Jóhannesson
gómsætt j gott
hjá/Jóní/VGM/ ^
Nú er aðventan á næsta leiti
með stressi og önnum ásamt
jólahlaðborðum veitinga-
staðanna. Af því tilefhi gef ég
tvær uppskriftir af
ljúffengum forréttum úr
sjávarfangi sem mun skreyta
jólahlaðborð Kaffi Króks. Sá
fyrri er ljúffeng síld í
appelsínusósu.
Appelsínusíld
200 g kryddsíld í bitum
1 stk raudlaukur í sneiöum
Sósa:
1 stk appelstína skorin í bita
1 stk laukurskorinn i bita
2 stk lárviðarlauf
I bolli olívuolía
I bolli hvítvínsedik
I bolli tómatpuré
1 bolli púðursykur
6-8 stk svört piparkorn
Allt sem fer í sósuna er sett í
matvinnsluvél og maukað
saman. Smakkað tii með salti
og pipar. Þá er laukurinn og
síldin hrærð út í sósuna og látið
standa í kæli í að minnsta kosti
12 klukkustundir. Borið ffam
með rúgbrauði og smjöri.
Skelfisk- og
rjómaostterreine (kœfa)
200 g rækjur
200 g hörpuskel (soðin)
200 g humar (soðin)
1/2 græn paprika (söxuð)
1/2 rauð paprika (söxuð)
2 stk sitrónur (safi + börkur afannari)
I tsk sítrónupipat
100 ml hvítvín
200 g rjómaostur
6 blöð matarlím (hvert blað 2 g)
salt og pipar
Matarlímsblöðin lögð í bleyti í
kalt vatn. Síðan tökum við
hvítvín, sítrónusafa, rjómaost
og hitum við vægan hita í potti.
Hrært stöðugt í. Þegar ost-
blandan er orðin mjúk og
þunn þá er matarlímið tekið
úr vatninu og brætt saman við
ostblönduna. Smakkað til með
salti og pipar, fiskmetið og
grænmetið sett út í og allt
saman fært upp í skál eða fat
sem ætlað er að bera fram í.
Berist ffam með ristuðu brauði
og fersku salati.
Jólaglögg
1 bolli sykur
2 stk kanilstangir
5 stk negulnaglar
100 g rúsínur
1/2 sítróna
I stk appelsina
50 g möndluflögur
1 líter vatn
Sykur, kanill, negull, rúsínur
og vatn sett í pott og soðið í 10
- 15 mínútur. Þá er safa og
röspuðum berki af appelsínu
og sítrónu bætt útí ásamt
möndlum. Látið sjóða þar til
vökvinn hefur gufað upp um
helming. Þá er bætt út í einni
flösku af rauðvíni ásamt líkjör
eða vodka eftir smekk. Borið
ffarn með piparkökum!
Kveðja, Jón Daníel
EFeykir hefur fengið
Krók til að sjá um
matarhorn í Feyki
og er upplagt að
áskrifendur setji
upp kokkhúfuna og
reyni sig við uppskriftir Jóns. Hrá-
efnið sem Jón Dan notar er hægt að
nálgast í Skagfirðingabúð.
t
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, bróðir og mágur
Stefán Árnason
ffá Sauðárkróki
lést á Landsspítalanum 20. nóvember.
Útförin fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 28. nóvember kl. 13.00
Ingibjörg Stefánsdóttir, Viktor Elvar Viktorsson,
Brynhildur Stefánsdóttir,
Haukur Stefánsson,
Helga Árnadóttir Helgi Baldursson,
Páll Sigurðsson Sigríður Ólafsdóttir,
Guðjón H. Árnason Ingibjörg Ottósdóttir,
og barnabarn