Feykir - 23.11.2005, Blaðsíða 5
44/2005 Feykir 5
Opinn umræðufundur
um áfengismál
Axel Kárason skrifar
í gegnum tíðina hafa
áfengi og áfengismál verið
mikið á milli tannanna á
fólki og sitt sýnist
hverjum.
Frá því að áfengisbanninu
var aflétt fyrir rúmum 80 árum
hafa orðið fáar róttækar
breytingar á áfengislöggjöfinni,
hið opinbera sér að mestu um
sölu áfengis fyrir utan
veitingamenn sem rnega selja
áfengi að uppfylltum ströngum
skilyrðum. Síðustu árin hefur
umræða um færa áfengissölu í
verslanir verið rnjög áberandi,
og t.d. má benda á að í haust var
á Alþingi lagt ffam þverpólitískt
ífumvarp til laga um breytingar
á sölu áfengis.
I ljósi þess höfum við í Fél-
agi ungra framsóknarmanna í
Skagafirði ákveðið að efita til
opins umræðufundar um
áfengismál á Kafifi Krók
fimmtudagskvöldið 24. nóvem-
ber kl 20:30. Þar ætlum við að
velta fyrir okkur fjórurn spurn-
ingum sem hljóma svona:
• Á að lœkka
úfengiskaupaaldnr niður í 18
ár?
• Á áfengi að vera leyft í
almennum
smásöluverslunum?
• Á að leyfa auglýsingar á
áfengi?
' Á að leyfa heimabrugg?
Til að leiða umræðuna höfurn
við stefnt saman þremur
mönnum sem allir hafa
ákveðnar skoðanir á þessum
efnum, og höfðum við það að
leiðarljósi í forvalinu að fá menn
með misjafnar skoðanir og að
þeir ættu að geta haldið uppi
fjörugri umræðu.
Ber þar fyrstan að nefha Egill
Arnar Sigurþórsson varafor-
mann SUF og háskólanema
sem er fjörugur ungur maður
sem liggur sjaldan á skoðunum
sínum. Einar Kristján Jónsson
fyrrverandi formaður SUF
hefur verið virkur í ungmenna-
félagshreyfingunni í gegnurn
tíðina og má ætla að hann láti
nú ekki valta yfir sig svo glatt.
Og síðast en ekki síst Jón
Einarsson lögfræðing og
stjórnarmann í Félagi ungra
framsóknarmanna Skagafirði,
en hann er þekktur fyrir allt
annað en að fara filjóðlega með
skoðanir sínar og hafa greina-
skrif hans á netinu oft vakið
verðskuldaða athygli.
Að lokum vil ég hvetja alla til
að mæta á Kaffi Krók kl. 20:30 á
fimmtudagskvöld og taka þátt í
fjörugum umræðum unt mál
sem varðar okkur öll.
Virðingarfyllst.
Axel Kárason,
formaður FUF í Skagafirði.
Þessar stúlkur héldu tombólu tll styrtkar Rauða krosslnum en þær eru frá vinstrí; Inga
Margrét Jónsdóttir, Unnur Ársælsdóttir, Vigdis Sveinsdóttir, Hafey Viktoría Hallgríms-
dóttir, Sandra Sif Eiðsdóttir og Guðný Sif Gunnarsdóttir. Á myndina vantar þær Krístinu
Andreu Pálsdóttur og Önnu Lilju.
Tombólur til styrktar RKÍ
Mikilvæg framlög í
þágu bágstaddra
Karl I.úðvíksson formaður
Skagafjarðardeildar RKI segir
stjórn félagsins ntjög ánægða
með framtak tombólukrakk-
anna sem „...sé mikilvægt
framlag í þágu bágstaddra og
þeirra sem minnst mega sín
og bindum [við] miklar von-
ir við áframhaldandi þátt-
töku og sjálfboðastörf í þágu
mannúðar og vonumst að
sjálfsögðu eftir að RKÍ eigi
eftir að njóta starfskrafta
þeirra í framtíðinni.”
Þá héldu þær Ása Svanhitdur Ægisdóttir og Hafey Viktoría Hallgrímsdóttir tombólu til
skyrktar Rauða krossinum ásamt þeim Rakel Svölu Gisladóttur og isabellu Guðmunds-
dóttur sem ekki eru á myndinni.
SAMVINNUBOKIN og KS-B0KIN
Tveir góðir kostir
til aoávaxta
spariféð þitt
KS-bókin er með 3,7% vexti,
bnndin í 3 ár og verðtryggð
Samvinnubókin er með lausri bindingu,
nafnvextir 8.5%, ársávöxtun 8.68%
Hafið þið séð betri vexti?
Innlánsdeild KS
HEILBRIGÐISSTOFNUNIN SAUÐÁRKRÓKI AUGLÝSIR
Lausar stöður
70 - 80% starf í eldhúsi
frá og með 1. desember 2005 eða eftir nánara samkomulagi.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Stefánsdóttir matráðsmaður í síma 455 4015.
Umsóknarfrestur er t.o.m 26. nóvember 2005
60% starf á þjónustudeild
deild VI. (2 stöður) strax og frá og með 1. janúar 2006
Allar nánari upplýsingar veitir Anna Gísladóttir ræstingastjóri í síma 455 4038.
Umsóknarfrestur er t.o.m 28. nóvember 2005.
Laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og Starfsgreinasambands Islands.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist til
Herdísar Klausen hjúkrunarforstjóra. Öllum umsóknum verður svarað.
Reyklaus vinnustaður
Heilbrigðisstofnunin
Sauðárkróki