Feykir - 23.11.2005, Síða 7
44/2005 Feykir 7
Guðmundur Valtýsson skrifar_
Vísnaþáttur 418
Heilir og sælir lesendur góðir.
Smá brengl er í lokavísu síðasta
þáttar. Var hún eftir hinn snjalla
Jón Rafnsson og tel ég rétt að birta
hana aftur í heild sinni.
Löngum vetrar veðra klið
vannst mér betur kanna,
en að geta umborið
augnahretin manna.
Talsvert líf er í pólitík um þes-
sar mundir og eru yfirstandandi
prófkjör þar talsverðir áhrifaval-
dar. Fyrir nokkrum árum skem-
mti Eyjólfur Valgeirsson frá Kros-
snesi í Strandasýslu sér við að
yrkja nokkus konar palladóma
um þá stjórnmálaflokka sem þá
voru starfandi hér á landi. Vinstri
grænir fá fyrsta skeytið.
Ekki finnst mér vistarvænir
Vinstri grœnir
þeirþenja kjaft ogþykjast kænir
en þrályndi þá skyni rænir.
Skalla-Grímur skeytum beittum
skýtur tíðum
ódeigur í orrahríðum
úlfsinsfeldi klæddur víðum.
Ögmundur þótt geifli grön
oggapi mikið
fer hann oftastyfir strikið
á hann brátt mun falla rykið.
Kolbrún tíðum leikrœnt lætur
Ijós sitt skína
hlýturekki hylli mína
hennargengi brátt mun dvína.
Frjálslyndi flokkurinn fær þessa
skilgreiningu.
Sjónhverfingar sýnist mér
að Sverrir bralli
enginn treystir öldnum kalli
er áður ríkti á hefðarstalli.
Áforna vini ekki eys
hann orðum blíðum
skeitum beittum skýtur tíðum
skeleggur í orrahríðum.
Frjálshyggju þótt boðskap boði
og burt með kvóta
enga mun hann utnbun hljóta
engitin fallin goð vill blóta.
Þótt að Addi Gaui
honum gengi veiti
ætla ég það engu breyti
orðakyngi títtþó beiti.
Þegar kemur að Samfylkingu ákv-
eður skáldið að notast við annan
bragarhátt.
Samfylkitig er súr í skapi
sýnt er að húnfylgi tapi
þóttað Össur gleiður gapi
gini opnu - stoðar ei.
og Jóhatina er orðin öldruð tney.
Kratar fegri fífil sáu
fallnir eru úr sæti háu
þeirrafornu kappar knáu
er kynntu undirfrelsistrú.
Undir torfu grænni geymdir nú.
íþeirra fylking þó máfinna
þegna er góðum málum sinna
fyrsta má þarfrœga kyntia
Frímanns-Möggu vænsta skittn.
Ett Ágúist tíðum ergir huga mittn.
Nokkuð ljóst er að næsta hugsun
hjá Eyjólfi beinist að Framsóknar-
flokknum.
Framsóknar er komið kvöld
kvíðitm hefur tekið völd
senn tnutt hún sín syndagjöld
sattngjörn á sig taka,
efhún málum ekki snýr til baka.
Þegar trú á þjóðarsál
þrýtur, vandast hetmar tttál,
sjái hútt bara aðeins ál
og erlent fjártnagttsgengi
mutt hútt eflaust ekki tóra lettgi.
Dórifyrrum dugði vel
drenglyndur ttteð harða skel,
en nú er eins og erlentþel
eitrað hafi sitmið.
hantt erorðitttt ilh haldinn skinttið.
íþessunt flokki fimna má
fólk settt helst vill anttað sjá
en auðkýfinga öflittflá
og aðrar leiðir kanna.
Vaxa mœtti vegurþeirra mattna.
Fara þá glöggir lesendur að átta
sig á því að ekki er eftir nema einn
af þeim stjórnmálaflokkkum sem
gera sig gildandi.
Ihaldið alltafflýtur
í ólgusjó stjórntnálanna
sérstökum lögmálum lýtur
lífsmáti foringjanna.
Um eigin glöp öðrum kettna
öflugum stoðutn renna
undir auðhringafattsittn
æstan stíga þeir dansinn.
Frjálshyggju fári haldnir
forkólfar ærið baldnir
að sægreifunt hygla og hlúa
á heilagan Mammon trúa.
Að öldruðunt illa búa
til öryrkja spjótum snúa
þeirra góðvinavæðing
virðist líkfornum sttæðing.
Davíð þar ríkjuttt ræður
rissugur - tunguskœður
drottnar með harðri hettdi
hýðir með orðsins vendi.
Á eftir þessari skýrslugerð lætur
höfundur fylgja tvær vísur sem
verða þá þær síðustu í þættinum
að þessu sinni.
Alþýðan auðnu rúitt
þótt illa í stakk sért búitt
vakttaðu af værum dvala
verkitt skalt láta tala.
Auðvaldsins oki hrintu
eldafrelsitts kyttntu
erlettdri áþján hafni
íslensk þjóðtnentting daftti.
Verið þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi.
S: 452-7154.
íþróttafréttír
Breiaablik - Tindastóll 73 - 88
Góð ferð
Karlalið Tindastóls lék
við Breiðblik í Kópavog-
inum sl. sunnudag í 1.
deildinni í körfuknattleik.
Stólarnir skiluðu ágætum
fimmtán stiga sigri í hús
en lokatölur urðu 73-88.
Það var aðeins í 1.
leikhiuta sem Blikarnir
héldu í við Stólana.
Heimamenn voru yfir 20-19
í hlutanum. Þá var eins og
lok hefði verið sett á körfu
gestanna og hvorki gekk né
rak hjá Blikum að setja
boltann ofan í. Stólarnir
gerðu 12 stig í röð og breyttu
stöðunni úr 20-19 í 20-31.
Sá munur hélt til hálfleiks og
Stólanna
staðan þá, 37-48, gestunum í
vil.
f seinni hálfleik bættu
Stólarnir enn í og unnu
sannfærandi sigur að lokum
eins og fyrr segir.
Lið Tindastóls, Þórs frá
Þorlákshöfn og Vals eru nú
efst og jöfn í deildinni með
10 stig, hafa öll spilað sex
leiki, sigrað fimm og tapað
einurn.
Strákarnir mæta einmitt
Valsmönnum hér heima
næstkomandi sunnudag og
mikilvægt að ná sigri í
leiknum ætli menn sér upp í
Úrvalsdeildina.
Molar________________
Gott færi í
Stólnum
Gott færi er í Tindastól
núna og er það kjörið færi
fyrir landsliðið sem stend-
ur í æfingum upp í fjallinu
í dag og næstu daga.
Þau eru ánægð með brek-
kuna og aðstæður sem boðið
er upp á í Stólnum.
Ef farið er inn á ski.is þá sten-
dur þar að halda eigi FÍS-mót
annað hvort í Hlíðarfjalli eða
Tindastól.
Bikarkeppni KKÍ
Lið Tindastóls í körfúnni
dróst á móti liði Sindra í 32
liða úrslitum Bikarkeppni
KKÍ og Lýsingar. Sindri fékk
heimaleikinn.
Uppskeruhátíð Frjálsíþróttadeildar Tindastóls
Gísli heiðraður
Fyrir nokkru var sagt
frá því í Feyki í umfjöll-
un um uppskeruhátíð
FrjálsíþróttadeildarTinda-
stóls að Gísli Sigurðsson
verður aðalþjálfari deild-
arinnar í öllum aldursflok-
kum.
Honum til aðstoðar verð-
ur valinkunnur hópur; Logi
Vígþórsson, Sunna Atla-
dóttir, Vala Kristjánsdótt-
ir, Þórunn Eyjólfsdóttir,
Þorgerður Björnsdóttir ofl.
Þar mun einnig bregða fyrir
gömlum íþróttakempum.
Það eru allir velkomnir á
æfingar hjá deildinni.
Gísli þjálfari var
heiðraður sérstaklega á
uppskeruhátíðinni fýrir
einstaka tryggð við félagið
og gott starf en hann er nú
að hefja sitt 20 starfsár sem
þjálfari hjá Tindastól. Það
er ekki síst fyrir hans góða
starf sem félagið hefur náð
svo frábærum árangri á un-
danförnum árum. Margs-
konar verðlaun voru veitt á
samkomunni.
Linda Björk Valbjörns-
dóttir fékk verðlaun fyrir
besta ástundun en auk henn-
ar fengu 20 aðrir krakkar
viðurkenningu fyrir góða
æfingasókn. Félagsandi
skiptir miklu fyrir árangur
hópsins og fékk Inga María
Baldursdóttir nafnbótina
besti félaginn fyrir þann
“smitandi kraft og jákvæð-
ni” eins og einhver komst
að orði, sem fylgir henni á
æfingum og keppni. Árni
Rúnar Hrólfsson hlaut
viðurkenningu fyrir mestu
framfarirnar og Sigþór Ós-
karsson fyrir fórnfúst starf
fyrir deildina.
Að lokum fékk Vil-
borg Jóhannsdóttir þraut-
seigjuverðlaun en hún er
öðrum sem eru að byrja
ferilinn góð fyrirmynd.
Vilborg hefur ekki dregið af
sér við æfingar árum saman
og á nú þegar glæstan
feril. Kompan hannaði
og gaf öll verðlaun sem
veitt voru en KPMG og
Ólafshús gáfu veitingar.
Það mun svo koma í ljós
síðar hver hlýtur nafnbót-
ina frjálsíþróttamaður
Skagafjarðar 2005.
Fimm Skagfirsk ung-
menni í úrvalshópi
unglinga hjá FRÍ
Unglingalandsliðsþjálfari
Frjálsíþróttasambands
Islands, Fríða Rún
Þórðardóttir hefur valið
fimm Skagfirðinga sem
fæddir eru á árunum
1983-1991 í úrvalshóp FRI
fyrir árið 2006. Þau eru
Elva Friðjónsdóttir, Gauti
Ásbjörnsson, Sunna Björk
Atladóttir, Kári Steinn
Karlsson og Oddný Ragna
Pálmadóttir.
Mynd: VG
smáauglýsingar Sendið smáauglýsingar til frírrar birtingar á feykir@krokur.is
Galloper til sölu
Til sölu Galloper disel, bein-
skiptur árgerð 2000. ekinn 101.
þús km. Gott eintak, vel við
haldið og einn eigandi (kona)
Upplýsingar í síma 8676072/
4535084 eftir kl. 16.00
Til sölu
Til sölu er tvíbreiður svefnsófi
með rúmfataskúffu. Bókaskápur
og hvitar álhyllur í geymslur.
Upplýsingari Hásæti 5A á
Sauðárkróki.
Kápa tekin í
misgrípum!
Hefur einhver tekið svarta kápu
í misgripum? Er með svarta
Androse kápu nr. 18. Upplýsingar
i síma 455 5560/gsm 660 5560
Hvellur
Árshátið Hvells verðurhaldin í
Árgarðilaugardaginn26. nóvem-
ber2005. Hefstmeð borðhaldi
stundvíslega kl. 21. Húsið opnað
kl. 20.30. Skemmtikraftar úr
Húnavatns- og Skagafjarðar-
sýslum skemmta. Félagar úr
félagi harmonikkuunnenda í
Skagafirði leika fyrir dansi.
Miðapantanir fyrir mánudag-
skvöldið 21. nóv í síma:
453 7107 Sólveig eða Kolbeinn
4538177 Guðrún eða Sigfús
453 5995 Birna eða Sólberg
Fjölmennið og takið með ykkur
gesti - Greiðslukort ekki tekin.
Góða skemmtun. Nefndin