Feykir - 15.11.2006, Síða 1
LandRoverar, Lödur og Rússajeppar sem lokið hafa hlutverki sinu isveitinni, biða þess að verða pressaðir igáma og fluttir til
Hafnarfjarðar. Mynd:ÁG
Stefnirí metframleiðslu hjá Steinull hf.
Vinna á vöktum
allan sólarhringinn
í að framleiðslan verði yfir
10.000 tonn. Framleiðslugeta
Steinullarverksmiðjunnar var
í upphafi áætluð 6.600 tonn
en hefur verið aukin jafnt
og þétt með endurbótum á
framleiðsluferlinu.
Að sögn Einars Einars-
sonar, framkvæmdastjóra
Steinullar hf., eru aukavaktir
um helgar á árinu að nálgast
100. V öktum hefur verið bætt
við til að anna eftirspurn en
aukin sala starfar fyrst og
fremst af fjölgun nýbyggin-
ga. Um 40 manns starfa hjá
verksmiðjunni og eru 5-6 að
lágmarki á hverri vakt.
Mikið annríki er hjá Steinullarverksmiðjuni á Sauðárkróki
og er unnið allan sólarhringinn á vöktum í verksmiðjunni
frá sunnudagskvöldi til föstudagskvölds. Met framleiðsla
verður hjá Steinull á þessu ári.
Framleiðslumet hefur voru framleidd 8.500 tonn af
reyndar verið slegið á hver- steinull árið 2004, 9.300 tonn
ju ári undanfarin ár. Þannig í fyrra og á þessu ári stefnir
Blönduós og Skagaströnd_
Bátur skemmdist
Trébátur skemmdist í
höfninni á Skagaströnd í
óveðrinu sem gekk yfir á
mánudag.
Að sögn lögreglu fuku
þakpötur og lausir munir á
Blönduósi og klæðing losnaði á
húsi á Skagaströnd. Skemmdir
voru engu að síður óverulegar
þrátt fyrir mikla veðurhæð.
Hreinsunarátaki í Svf. Skagafirði að Ijúka_
Keyrðu 600 tonnum af
brotajámi úr sveitinni
Þessa dagana er að Ijúka
brotajárnshreinsunarátaki í
sveitum í Sveitarfélaginu
Skagafirði. Safnast hafa
tæplega 600 tonn af
brotajárni frá 135 bæjum.
Hreinsunarátakið, sem erað
frumkvæði Búnaðarsambands
Skagfii'ðinga, Leiðbeiningamið-
stöðvarinnar og Sveitarfélagsins
Skagafjarðar, er styTkt af
Bændasamtökum Islands.
Söfinm bortajárns hóíst í júh' í
sumar og nú þegar henni er að
ljúka hefúr um 130 bílhlössum
af brotajárni verið ekið ffá
135 sveitabæjum í Skagafirði.
Brotajárninu er komið fjTÍr á
söfhunarsvæði á Sauðárkróki
en cndurvinnslufyrirtækið
Fura í Hafitarfirði sækir það
þangað sveitarfélaginu að
kostnaðarlausu.
ÓK-Gámaþjónusta á
Sauðárkróki hefúr annast
söfnunina og að sögn
Ómars Kjartanssonar, fram-
kvæmdastjóra, hefúr hún
gengið nokkuð vel en magnið
er þó mun meira en reiknað
hafði verið með. Ganga þarf
ffá brotajárninu í 40 feta gáma
fyrir Furu og hafa þegar verið
send unt 190 tonn suður.
Skagafjarðarhraðlestin
Áforma stofnun
frumkvöðlasjóðs
Skagafjarðarhraðlestin,
samtök sem stofnuð voru til
eflingar atvinnulífs í
Skagafirði, áforma stofnun
sjóðs til að styðja við bakið á
frumkvöðlum í atvinnusköp-
un í héraðinu. Leitað verður
til einstaklinga, fjármála-
stofnana og fyrirtækja til að
fjármagna sjóðinn.
Stjóm Skagafjarðarhrað-
lestarinnar áformar að halda
sérstakan fund um málið í
hádeginu, þriðjudaginn næst-
komandi, þar sem sjóðurinn
verður stofnaður með form-
legum hætti.
Ekki er ætlunin að sjóðurinn
taki beinan þátt í fjárfestingum
heidur styrki útlagðan kostnað
vegna undirbúnings nýrra
verkefira í atvinnulífinu. Nánar
verður greint ffá málinu á
fúndinum.
Almenn raftækjaþjónusta
- tölvu- og rafeindaþjónusta
- frysti- og kæliþjónusta
- bíla- og skiparafmagn
- véla- og verkfæraþjónusta
—ICTenfltff eh\
Aðalgötu 24 550 Sauðárkrókur Sími 453 5519 Fax 453 6019
Bílaviðgerðir
hjólbarðaviðgerðir
réttingar og sprautun
ÆÞ
bílaverkstæði
Sæmundargötu lb 550 Sauðárkrókur Sími 453 5141