Feykir - 15.11.2006, Qupperneq 4
4 Feykir 42/2006
Undir Borginni:: Rúnar Kristjánsson skrifar
Hugleiðingar
um hús og fólk
Við manneskjurnar höfum ekki langa viðdvöl í veröldinni.
Það má eiginlega undra sig á því basli sem margir leggja á
sig hér í heimi, miðað við hvað viðverutíminn er í raun og
veru stuttur. Það ert.d. eins og sumir menn séu að búa um
sig til eilífðar, þegar þeir byggja nú til dags. Allt skal vera
sem rammbyggilegast og byggingarefni eru í flottasta fari.
Þegar búið er að steypa upp járnbenta stríðsveggi verðandi
aðseturs, láta menn jafnvel klæða þá að utan með stein-
klæðningu sem gefin er upp að dugi til fimm hundruð ára !
Og svo er byggt og fegrað, Laufás og síðan kom þar
skreytt og skrúðmálað, hús
gerð að höllum, allt með
ærnum tilkostnaði, já, eins og
fólk sé að útbúa sér verustað til
eilífðar.
En svo er þó ekki, því enn
finnast dæmin um að menn
deyji frá hálfbyggðum húsum
eins og Tómas orðaði það,
verði að hverfa úr þessum
heimi, mitt í óþrjótandi önn
uppbyggingar og framtíðar-
áætlana. En hversvegna byggja
fjölmargir svona stórt og
hversvegna hafa þarfirnar í
þeim efnum margfaldast á
tiltölulega stuttum tíma, í landi
þar sem afar og ömmur margra
núlifandi landsmanna bjuggu í
torfkofum, við þröngar að-
stæður miðað við þau viðhorf
sem nú gilda ?
Það má velta því máli fyrir
sér á marga vegu, en óvíst er að
hamingju fólks og sálarheill sé
beturborgið í höllum nútímans
en torfhúsum gamla tímans.
Fólkið í stórhýsunum unir
víst ekki glaðara við sitt en
fólkið í torfkofunum gerði í
gamla daga. Nægjusemi liðna
tímans hefur trúlega verið
hollara undirfóður anda og
sálar, en kröfuharka nútímans.
En þó við byggjum mikið og
viljum hafa hátt til lofts og vítt
til veggja, húsin rammgerð sem
loftvarnarbyrgi, þá leitar eitt-
hvað í sál og huga aftur í
tímann, til gömlu sveitabæ-
janna, til frægra bæjarnafna í
þjóðarsögunni, til lítilla húsa í
litlum þorpum, þar sem stór-
fjölskyldur þess tíma bjuggu og
hin unga kynslóð óx úr grasi.
Á höfuðborgarsvæðinu bregð-
ur fyrir þessari þrá í þeim
nöfnum sem götum og húsum
hafa verið gefin. Við finnum
þarbæjarnöfnaflandsbyggðinni
í tugatali. Þar var reistur nýr
Laufásvegur. Þar er Ármúli,
Ásgarður, Bakkasel, Bólstaðar-
hlíð, Dragháls, Dunhagi,
Einarsnes, Engimýri, Fellsmúli,
Fornhagi, Grýtubakki, Græna-
tunga, Háagerði og Helluland,
Kelduland og Kjalarland,
Lambhagi og Löngumýri,
Mávahlíð og Miklaholt, Nes-
hagi og Prestbakki, Sólheimar
og Staðarbakki, Síðumúli og
Svalbarð, Tjaldanes og Tungu-
bakki, Vaðlasel og Vogatunga,
Þingás og Þönglabakki, Þykkvi-
bær og Ægisíða ; öll tala þessi
nöfn skýru máli um þá þrá sem
býr í brjóstum manna eftir
tengslum við uppruna sinn,
upprunann úr sveitum lands-
ins. Telja mætti hér að sjálf-
sögðu fjölda nafna til viðbótar,
en þetta ætti fullkomlega að
nægja til að sýna óyggjandi
fram á hin sterku og órjúfandi
tengsl sálar og sögu í lífi
landans. í þeim efnum skiptir
ekki svo miklu þótt allar ytri
aðstæður hafi breyst, með
gjörbyltingu á lífsháttum og
híbýlagerð þjóðarinnar á síð-
ustu áratugum. Enn gildir hið
fornkveðna, að:
„Römm er sú taug
sem rekka dregr
föðurtúna til.“
í þorpum landsbyggðarinnar,
sem flest standa á gömlum
merg, er að finna mörg lítil
hús, timburhús og steinhús,
flest með bröttum þökum, en
sum með skúrþaki. Þessi hús
láta kannski ekki mikið yfir sér.
1 kringum þau hafa ef til vill
sprottið upp stórhýsi seinni
tímans og þessi litlu hús hverfa
í skuggann fýrir þeim, þó þau
búi yfir mikilli sögu genginna
kynslóða. Og þau hafa öll sín
sérnöfn, þar er ekki óper-
sónulegt götunúmerið eitt til
staðar. Og nöfnin sem fólkið
hefur gefið þessum litlu húsum,
eru til marks um þær vonir og
drauma sem það ól með sér
gagnvart því skjóli sem það
hafði náð að koma sér upp. Og
hvaðan eru nöfnin ættuð, flest
úr veröld fyrstu lífsins kynna.
Á Skagaströnd var þannig
hægt að ganga ffá Jórvík að
Ægisíðu. Og alls staðar á
leiðinni, hvert sem gengið var,
birtust huganum ótal nöfn,
flest hlýleg og björt, en sum
harðari og hvassari í bragði:
Akur, Akurgerði, Asparlundur,
Goðhóll, Baldursheimur,
Reykholt, Röðulfell, Vina-
minni, Brautarholt, Bergstaðir,
Sunnuhlíð, Sæborg, Dagsbrún,
Ólafsvellir, Iðavellir, Berg,
Brekka, Holt, Ásgarður,
Herðubreið, Skjaldbreið, Blá-
land, Hólanes, Árnes, Brimnes,
Straumnes, Bjarmanes, Sól-
lundur, Ásberg, Breiðablik,
Bjarg, Sævarland, Sæból, Vík
og Viðvík, o.fl. o.fl.
Allt segir þetta sína sögu og
talar til okkar - að minnsta
kosti þeirra okkar sem enn geta
lagt eyra að slætti foldarhjartans
og heyrt fleira en tímans þunga
nið í núinu. Og við getum
mörg hver velt upp ýmsum
spursmálum á hugans hljóða
sviði.
ímyndum okkur t.d. lítinn,
vinalegan torfbæ þar sem afi
og amma áttu heima, þar sem
börnin þeirra ólust upp, þar
sem hundarnir Snati og Kátur
voru, kisan hún Doppa, kýrnar
Branda og Bauga og öll hin
dýrin. Og ímyndum okkur svo
risastóran steinsteypukassa
sem einhver afkomandi gömlu
hjónanna hefur kannski byggt
sér í seinni tíð fyrir kvótagull,
kassa sem gæti nánast hýst
gamla torfbæinn þeirra í heilu
lagi í stofunni einni, - og
nafnið á þessum tröllakassa er
það sama og var á garnla
bænum.
Og við getum spurt okkur
sjálf þeirrar spurningar í
hjartans einlægni, hvor bærinn
skyldi nú hafa manneskjulegra
aðdráttarafl ?
Rúnar Kristjánsson
HEILBRIGÐISSTOFNUNIN SAUÐÁRKRÓKI AUGLÝSIR
Lýtalæknir
Guðmundur Már Stefánsson, týtalæknir
verður með móttöku fimmtudaginn 23. nóvember n.k.
Tímapantanir í síma 455 4022.
Heilbrigðisstofnunin
Sauðárkróki
íbúðir
til sölu
Eignasjóður Skagafjarðar auglýsir til sölu;
4ra herbergja íbúð að Laugatúni 9, neðri hæó, 104.7 m2 og
3ja herbergja íbúö í raðhúsi aðjöklatúni 4, 90,4 m2
Tilboó óskast í eignirnar og skulu þau berast á skrifstofu eignasjóðs í
Ráðhúsinu á Sauðárkróki fyrir kl. 16.oo þann 24. nóvember n.k.
Eignasjóöur Skagafjaróar áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum.
Nánari upplýsingar veitir sviósstjóri eignasjóðs í síma 455 6000.
Eignasjóður Skagafjarðar
www.skagafjordur.is
Skagafjörður