Feykir - 15.11.2006, Qupperneq 7
42/2006 Feykir 7
Rabb-a-babb
Árgangur: 1963.
Fjölskylduhagir: Kvæntur, fimm börn,
hundurog hamstur.
Starf/nám: Kennari/Rafvirkjun, myndlist
og kennslufræði.
Bifreið: Hiundai Starex (ég held að þetta
sé skrifað svonaf).
Hestöfl: Vel á annað hundraðið???
Hvað er í deiglunni: Miðvikudaginn 15.
nóvember frumsýnir Nemendafélag FNV
leikritið Draumalönd sem ég skrifaði og
er í minni leikstjórn. Einnig bjuggum við
Gugga til einn afaðalleikurunum í sýning-
unni.
Hvernig hefurðu það?
Svona líka frábært!
Hvernig nemandi varstu?
Prúður, vel greiddur og girtur. Góður
vinur Sighvats.
Hvað er eftirminnilegast frá fermingar-
deginum?
Hvaðég var lítill og englarnir hvitir.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir
stór?
Fyrst Indíáni svo loftfimleikamaður. Þetta
sameinast þegar ég er að háfa lunda i
Drangey.
Hvað hræðistu mest?
Frumsýningardaga.
Hver var fyrsta platan sem þú keyptir
(eða besta)?
Pink Floyd The Wall sem Diddi bróðir
gafméríjólagjöfá ofanverðri tuttugustu
öldinni.
Hvaða lag ertu líklegastur til að syngja
í Kareúkí?
On the road again (Billy Idol útgáfuna).
Hverju missirðu helst ekki afí sjónvarp-
inu (fyrir utan fréttir)?
Little Britain, en ég missi samt oftast af
þessum frábæru grínþáttum.
Besta bíómyndin?
Delikatessen, já eða KúrekarNorðursins
þarsem Eiki Hilmis, Margeir, Gunnarlngi
og Gubbi fóru á kostum og Bimbó barði
niður Ijós á sviðinu á Skagaströnd og
Hallbjörn reif og teipaði buxurnarsínar.
Bruce Willis eða George Clooney/Ang-
elina Jolie eða Gwyneth Paltrow?
George Clooney út af fjölhæfni og An-
gelina Jolie með sínar ómótstæðilegu
botoxvarir.
Hvað fer helst í innkaupakörfuna sem
ekki erskrifað á tossamiðann?
Hráskinka og paramesan og svo súkku-
laðikex handa Guggul
Hvað er í morgunmatinn ?
Lýsi, spirulina og B12 skolað niður með
undanrennu.
Uppáhalds málsháttur?
Sjaldan fellur eplið langt frá eplatrénu.
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar
mest til þín?
Viggó Viðutan og kötturinn hans.
Hvert er snilldarverkið þitt í eldhús-
inu?
Gæsabringur með sætum lauk og eðal-
eplasalati (3x7 mín. aðferðin sem ég
lærði i rúgbrauðsgerðinni).
Hver er uppáhalds bókin þín?
Skræpótti fuglinn e. Jerzy Kosinski.
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og
réðir hvert hún færi, þá færirðu...
...Kína, aðalmálið er að komast í toll-
inn þegar maður kemur heim.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari
þínu?
Get illa sagt NEI, það kemur oftast út
eins og nee eða bara njá!
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari
annarra?
Fýla (fólk í fýlu sem getur ekki einusinni
sagt góðan daginn). Og svo fólk sem
þolir ekki lækjarnið!
Enski boltinn - hvaða lið og afhverju?
MANCHESTER UNITED. Bestir, best-
ir, lang, lang, BESTIR! Reyndar er
ástæðan sú að mamma keypti íþróttaföt
á mig og Didda bróðiu minn þegar við
vorum litlir. Ég fékk Man. Utd. Og hann
Liverpool. Svo slógumst við!
Hvaða íþróttamanni / dómara hefurðu
mestar mætur á?
Ég hafði miklar mætur á Páli Axel þan-
gað til hann sagði mági mínum honum
Jóni Þór að halda kjafti eftir að Jón
bað hann kurteislega að hætt að röfla.
Þannig að ég verð að segja að ég hafi
mestar mætur á „Ijóskunni" Kára Mar.
Heim í Búðardal eða Disko Friskó?
Heim i Búðardal eins og Geiri tekur
það.
Hver var mikilvægasta persóna 20. ald-
arinnar að þínu mati?
Marcel Duchamp með pissuskálina
sina.
Efþú ættir að dvelja aleinn á eyðieyju,
hvaða þrjá hluti tækirðu með þér?
Gítar, hníf og stóra pípuhreinsara. Það
er ótrúlegt hvað er hægt að búa til úr
pípuhreinsurum ef maður hefur nóg af
þeim.
Hvað er best í heimi?
Fyrir utan frumsýningardaga þá er það;
allirsem eru og koma, á Suðurgötu 10.
íþróttafréttir
lceland Express-deildin :: Tindastóll - Grindavík 82-101
Páll Axel sá um Stólana
Tindastóll fékk lið
Grindavíkur í heimsókn
í Síkið síðastliðið
sunnudagskvöld í
sjöundu umferð lceland
Express-deildarinnar í
körfuknattleik.
Stólarnir gerðu þrjár fyrstu
körfurnar í leiknum og þar
var að verki Zekovic sein
átti ágætan leik í sókninni.
Páll Axel henti fljótlega
niður fyrsta þristinum af sjö
sent hann setti niður í tíu
tilraunum þetta kvöldið og
liðin skiptust á um að hafa
forvstu í fyrsta leikhluta.
Staðan 20-22.
Grindvíkingar voru
sterkari í öðrum leikhluta.
Tindastólsmönnum gekk
illa að ráða við Steve Thomas
undir körfunni og þegar
flautað var til hálfleiks var
munurinn 10 stig, 37-47.
Tindastólsmenn spiluðu
betur í þriðja leikhluta en það
var eins og það vantaði ein-
hverja stemningu í liðið og
vörnin small ekki sarnan fyrir
vikið. Það munar sannarlega
um Helga Rafn Viggósson
þegar bíta þarf á jaxlinn!
Staðan 62-74 að loknum
þriðja leikhluta.
Grindvíkingar náðu fljótlega
16 stiga forystu í fjórða
leikhluta og allt útlit fyrir
öruggan sigur gestanna. En
Lamar Karim og félagar voru
ekki tilbúnir að gefast upp
og á tveimur mínútum var
munurinnkominnniðurísex
stig og allt virtist mögulegt.
Friðrik Ragnarsson þjálfari
Grindvíkinga tók leikhlé og
eftir það gerðu gestirnir út um
leikinn með góðum körfúm
og sterkri vöm. Síðustu tvær
mínúturnar fengu yngri
leikmenn liðanna að spreyta
sig. Lokatölur 82-101.
ísak átti góðan leik og var
bestur í liði Tindastóls; gerði
13 stig, átti 11 stoðsendingar
og stal 6 boltum.
Stig Tindastóls: Karim 25,
Zekovic 20, Svavar 14, ísak 13,
Gulli 5 og Bjarni 5.
Skallagrímur- Tindastóll 93-86
Skallamir sterkir
Lið Skallagríms og
Tindastóls áttust við í
Borgarnesi síðastliðið
miðvikudagskvöld og
endaði ágætur leikur
liðanna með sigri
heimamanna 93-86.
Leikurinn var lengstum
jafn og spennandi þó svo
að Skallagrímur hafi haft
frumkvæðið. Stólarnir
komust yíirí fjórða leikhluta
en gerðu sig í framhaldinu
seka um varnarmistök og
því fór sem fór. Lamar
Karim átti góðan leik fyrir
Stólana.
Stig Tindastóls: Karim 28,
Zekovic 16, Svavar 14, Steve
14,lsak9, Gulli3og Bjarni2.
Hestamennska
Þórarinn valinn
W
Iþróttaknapi ársins
Á Uppskeruhátíð hestamanna sem haldin var um helgina
á Broadway í Reykjavík var Þórarinn Eymundsson valinn
íþróttaknapi ársins.
Steingrímur Sigurðsson \-ar valinn Knapi ársins 2006.
Á myndinni má sjá verðlaunahafana en Þórarinn er
annar frá vinstri.
Þjálfaramál Tindastóls
Róbert
með
Stólana
Tindastóll hefur ráðið
Róbert Jóhann Haraldsson
sem þjálfara meistaraflokks
karla í knattspyrnu og
hefur verið gerður við hann
tveggja ára samningur.
Róbert hefúr undanfarin
tvö tímabil þjálfað og leikið
með liði Hvatar á Blönduósi
og meðal annars skorað
24 ntörk í 25 leikjum með
Hvöt. Róbert hefur einnig
leikið með liðum KS og HK.
Kappinn er 37 ára gamall
og því á besta aldri.
smáauglýsingar Sendið smáauglýsingar til frírrarbirtingar á feykir@krokur.is
Opel Astra '95
Einn til sölu er í beinu
engin viðgerð bráð
Eðalvagn með allt á hreinu
útlitpinu snjáð.
Næsta skoðun í des. 2007.
Upplýsingar isíma 8981752.
Hjónarúm til sölu
Tilsölu nýlegthjónarúm.
Á sama stað tilsölu skrifborð.
Upplýsingari síma:
453 5785/897 6085
Varahlutir til sölu
Erað rífa Toyota Corolla Touring
91-2. Upplísima: 453 5135
Rafmagns
hitakútur óskast
Úska eftirgóðum rafmagns
neysluvatnshitara.
Simi 692 4040
Til sölu.
Nelgd jeppadekk á 6 gata felgum.
Stærð 285/75/16
uppl í s: 8916234
Óskast
Geymsluhúsnæði óskast
undir einn bili vetur.
Upplís: 895 6411
Félagsvist
Spilakvöld i Ljósheimum
sunnudaginn 19. nóv. kl. 21.
Verðlaun og kaffiveitingar
Verið velkomin
Félagsheimilið Ljósheimar
Til sölu
Ameriskt hjónarúm 153x203 að
stærð. Teppi, pífulak+ púðaver
fylgja. Verð kr: 50.000. Einnig á
sama stað til sölu skrifborð og
2ja eininga hillusamstæða. Fæst
fyrirlitið. Upplisima:8481724.