Feykir - 15.03.2007, Síða 4
4 Feykir 11/2007
Unnið við brú á Gönguskarðsá
Ársfundur Landbúnaðarháskóia íslands
Búið að steypa báða
brúarstólpana
Myndin er tekin 19. febrúar sl. er nyrðri brúarstöpullinn á
Gönguskarósá var steyptur. Horft er í norðaustur. Málmey,
Þórðarhöfði og austurfjöllin í bakgrunni.
Brúarfræmkvæmdir við Gönguskarðsárós. Mynd: hing
Syðri brúarstöpullinn var
svo steyptur þriðjudaginn 6.
mars í norðan íræsings veðri,
2-4 gráðu hita og ekki félegt til
nryndatöku þann daginn.
Brúarstöplarnir eru nriklir
að umfangi og standa hátt. Það
verður mikið verk að slá upp
undir brúargólfið og einhver
ósköp af stáli fara í verkið.
Brúarsmíðin ætti nú að
ganga vel með vorið á næsta
leiti. Jafndægur í næstu viku og
sólargangurinn ört hækkandi.
Hörður Ingimarsson
Húnaþing vestra______________________________
Færa á mörk þéttbýlis
Sveitastjórn Húnaþings vestra hefur samþykkt að auglý-
sa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Húnaþings vestra
2002 - 2014.
Auglýstereftirbreytingum tillögu að deiliskipulagi fyrir
sem snúa að því að færa mörk útivistarsvæðið i Kirkju-
þéttbýlis við Hvammstanga hvammi dags. 01.03.2007.
til austurs til samræmis við
Húnvetnskir hestamenn
Stórsýning á laugardag
Árleg Stórsýning húnvetn-
skra hestamanna verður
haldin í Reiðhöllinni
Arnargerði klukkan átta nk.
laugardagskvöld.
Á sýningunni verða sýnd
kynbótahross og gæðingar
úr héraði auk þess sem góðir
gestir koma í heimsókn.
Meðal atriða verða “Rauðu
dívurnar” úr Húnaþingi
Vestra, ræktunarbússýning
Reynis Aðalsteinssonar og
fjölskyldu og atriði í þeirra
umsjá. Þá verða sýnd nokkur
afkvæmi Gusts ífá Hóli. Börn
og unglingar verða með
atriði, en öflugt unglingastarf
er hjá hestamönnum bæði á
Blönduósi og á Hvammstanga.
Landbúnaður mikilvæg atvinnugrein
Ársfundur Lbhí verður
haldinn í íþróttashúsi
Varmahlíðarskóla næst
komandi föstudag og verður
hann opinn almenningi frá
klukkan 14:10 þann dag.
-Við ákváðum þegar við
fórum af stað með þennan skóla
að vera með ársfund á hverju ári
og vera með hann úti á landi.
Fara og hitta það fólk sem við
erum að vinna fýrir. Við vorum
á Selfossi í fyrra og ræddum
þá meðal annars skipulagsmál
í dreifbýli. í ár ákváðum við
síðan að koma í Skagafjörð.
Þar er landbúnaður mikilvæg
atvinnugrein og margir af okkar
viðskiptavinum sem þar búa.
Á fúndinum ætlum við að
ræða kornrækt og hrossarækt
sem eru stekar greinar í
Skagafirði. Við erum að vinna að
kynbótum í korni fyrir bændur
og síðan skrifuðum við nýlega
undir samning við Hólaskóla
um samstarfvið kennslu í fýrstu
háskólagráðu í hestafræðum.
Verður sá samningur kynntur á
ársfúndinum. Síðanbaralangaði
okkur að koma i Skagafjörð
og það var ekkert flóknara en
það, segir Ágúst Sigurðsson
rektor við Landbúnaðarháskóla
íslands.
Herdís A. Sæmundardóttir skrifar
Traust atvinnulíf er
undirstaða velferðar
Við íslendingar höfum
horft upp á gríðarlegar
samfélagslegar
breytingar á
undanförnum árum.
Efnahagsumhverfið
allt hefur gjörbreyst
og atvinnulífinu og
fjármálastofnunum hefur
verið skapað umhverfi
sambærilegt við það sem
gerist í öðrum löndum hins
vestræna heims sem við
erum hluti af og berum
okkur saman við.
í þessu umhverfi eru falin
mikil tækifæri fyrir íslensk
fyrirtæki í útrásarhug og þessi
umbreyting hefur vissulega
skilað íslensku þjóðinni
miklum tekjurn. Ríkissjóður
íslands stendur afar vel og
er nánast skuldlaus. Hvar
sem mælistikan er sett
niður í samfélaginu er
ísland framarlega í flokki í
alþjóðlegum samanburði.
Að sama skapi hefur
atvinnuleysi verið útrýmt og
þjóðin þarf rneira að segja að
flytja inn vinnuafl í stórum stíl
til að vinna þau verkefni sem
verið er að fást við víða um
land. Sem betur fer er víða
mikill kraftur í atvinnulífinu
þótt tækifærin í þeim efnurn
sé misskipt. Þannig staðfestir
nýskýrsla sem Byggðastofnun
vann í samvinnu við
Hagfræðistofnun Háskóla
íslands að hagvöxtur hefur alls
staðar verið jákvæður nenia á
Vestfjörðum og Norðurlandi
vestra, en á þessum tveimur
svæðum var hann neikvæður.
Þetta rímar í sjálfu sér alveg
við það sem ég hef séð gerast
á þeim umliðnu árum sem ég
hef gegnt formennsku í stjórn
Byggðastofnunar.
Það sem fyrst og fremst
einkennir breytingar undan-
genginna ára í byggðamálum
er mikill uppgangur á
nokkrum stöðum á landinu,
ekki síst á Mið-Austurlandi
vegna virkjunarvið Kárahnjúka
og uppbyggingar álvers í
Reyðarfirði. Því miður hefur
neikvæð umræða og afstaða
til virkjunar og uppbyggingar
stóriðju skyggt allt of ntikið á
þá jákvæðu þróun sem orðið
hefur á þessu svæði í kjölfar
þessara rniklu franikvæmda.
Fréttir um fjölgun hvers kyns
fyrirtækja í verslun og þjónustu
eða möguleika sveitarfélaga
til að byggja þjónustu og
afþreyingu fjTÍr sína íbúa á
þessum svæðum hafa verið af
skornum skammti ogþað hefur
lítið farið fyrir áhuga á að skoða
þær jákvæðu hliðarverkanir
sem framkvæmdirnar hafa haft
fyrir fólk og fjTÍrtæki. Áhrifin
eru hvergi nærri komin fram
en augljóst að Mið-Austurland
mun njóta áhrifanna í mestum
mæli þegar til lengdar lætur en
áhrifanna mun einnig gæta í
öllu samfélaginu.
Þá vil ég einnig nefna
að áhrifa vaxtar á höfuð-
borgarsvæðinu gætir á æ
stærra svæði umhverfis það.
Þannig má halda fram að
jaðrar þess nái nú upp fyrir
Borgarnes og austur á Selfoss
og jafnvel lengra. Það skal
heldur ekki dregið úr þeim
gríðarlegu og jákvæðu áhrifum
sem uppbygging háskólanna
í kjördæminu hefur á
samfélagið umhverfis þá. Ég
tel reyndar að uppbygging
og efling menntakerfisins á
öllum skólastigum sé einna
mikilvægust fyrir þróun
einstakra byggða til framtíðar.
En þrátt fyrir að margt afar
jákvætt hafi átt sér stað í þróun
byggðanna á undanförnum
árum eru líka dökkar hliðar
á búsetuþróuninni og þróun
í atvinnuháttum sem verður
að bregðast við. Það er mín
skoðun að það þurfi nú
vel skilgreint átak af hálfú
stjórnvalda, einkafyrirtækja
og stofnana til að styrkja stöðu
einstakra svæða og koma
hreinlega í veg fyrir hrun í
atvinnumálum og búsetu,
ekki síst á Norðurlandi
vestra og á Vestfjörðum.
Vaxtarsamningar sem víða
hafa verið gerðir eru spor í
þá átt, hugmyndafræði þeirra
byggir einmitt á samvinnu
margra aðila. Gallinn er bara
sá að enn eru allt of litlir
peningar í þeim samningum
og þeir þurfa jafnffamt að
vera mun víðtækari og ná til
mun fleiri aðila víðast hvar.
Byggðaáætlun fjTÍr árin
2006-2009 sem samþykkt
var á Alþingi í vor er leið,
gerir í raun ráð fyrir slíku
átaki. Byggðaáætlunin er það
tæki sem við sem störfúm í
stjórnmálum eigum að nota
í baráttunni fyrir traustari
búsetu- og atvinnugrunni
landsbyggðarinnar.
Það verður ekki ítrekað
nóg að traust atvinnulíf er
forsenda allrar velferðar og
velsældar fólks. Við sem búum
á landsbyggðinni þurfum
stöðugt að vera í leit að nýjum
atvinnutækifærum og megum
ekki láta úrtölur, svartsjnii og
öfgar trufla okkur í þeirri leit.
Áföll þau sem Vestfirðingar
nú upplifa í atvinnumálum
er gleggsta dæmið um hve
mikilvægt það er að skoða
með opnum hug öll þau
tækifæri sem við höfum til að
byggja upp traust og stöðugt
atvinnulíf.
Herdís Sœmundardóttir
Skipar 2. sœti á lista
Framsóknarflokksins í
Norðvesturkjördœmi.