Feykir - 15.03.2007, Page 5
n/2007 Feykir 5
íþróttafréttir
Fjölnir- Tindastóll 94-87
Tap gegn Fjölni
Tindastoll lek siðasta leik sinn i korfunm þetta timabilið i
gærkvöldi og mættu liði Fjölnis í Reykjavík. Fjölnir þurfti
nauðsynlega að sigra leikinn
deild.
Fjölnismenn fóru betur af
stað í leiknum en Tindastóls-
menn náðu yfirhöndinni og
leiddu eftir fyrsta leikhluta, 24-
27. Nemenja Sovic fór mikinn
í liði Fjölnis og hélt þeim inni
í leiknum, gerði 22 stig í fyrri
hálfleik. Fjölnismenn klóruðu
til að halda sæti sínu í efstu
eitt stig af Stólunum í öðrum
leikhluta og staðan 42-44 fyrir
Tindastól í hálfleik.
Leikmenn Fjölnis komu
ákveðnir til leiks í þriðja
leikhluta og hreinlega gerðu
út uni leikinn, gerðu 29 stig á
meðan Stólarnir gerðu aðeins
13 og því 14 stiga rnunur á
liðunum eftir leikhlutann.
Leikmenn Tindastóls spýttu
aðeins í lófana í fjórða leikhluta
en það dugði skammt og
Fjölnismenn fögnuðu sigri 94-
87 og sæti í efstu deild.
Tindastóll hafnaði því í
níunda sæti í Iceland Express-
deildinni í veturenliðinu varfjTÍr
mót spáð ellefta sæti og þar með
falli. Það er þvi ekki svo vitlaust
að óska Tindastólsmönnum til
hamingju með árangurinn.
Stig Tindastóls: Svabbi 17,
Zeko 15, Gulli 15, Karim 15, ísak
11, Helgi Rafn 10 og Jujcic 4.
HEILBRIGÐISSTOFNUNIN SAUÐÁRKRÓKI AUGLÝSIR
Gamlar myndir/munir úr sögu sjúkrahúss
í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá því að Sjúkrahús Skagfirðinga hóf starfsemi sína
er fyrirhugað að setja upp sýningu í Safnaðarheimilinu (gamia sjúkrahúsinu) í maí.
Ef þú þú lesandi góður átt gamlar myndir/ muni sem tengjast starfseminni á einn eða
annan hátt, þætti okkur vænt um að þú hefðir samband við Herdísi Klausen
hjúkrunarforstjóra í síma 455 4011.
Framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki
Heilbrigðisstofnunin
'rjffí^* Sauðárkróki
(-------------------------------------------------------------------\
VEGAGERÐIN SAUÐÁRKRÓKI :: ÁRANGURS- OG EFTIRLITSDEILD
Við leitum að sumarstarfsmanni með stúdentspróf, eða sambærilegt,
þarf að vera með góða raungreina- og tölvukunnóttu og bílpróf.
Starfið er fólgið í eftirliti- og skróningu vegbúnaðar og þjónustuþátta
um allt land, ásamt sléttleikamælingu vega.
Nánari upplýsingar í síma 522 1713 (Valgeir) og 522 1740 (Einar).
Umsóknir berist fyrir 1. apríl n.k.:
Arangurs- og eftirlitsdeild Vg, Borgarsíðu 8,550 Sauðárkrókur
eða á netfang vk@vegagerdin.is/eg@vegagerdin.is.
VEGAGERÐIN
Árangurs- og
eftirlitsdeild
SAMVINNUBÓKIN og KS-BÓKIN Tveirgóðir kos tir
tií að ávcocta spariféð sitt
KS-bókin er með 5% vexti,
bundin f 3 ár og verðtryggð
Samvinnubókin er með lausri bindingu,
12,75% vextir
Hafið þið séð betri vexti?
( TIPPLEIKUR FEYKIS )
Magnús Helgason mætir Árna Stefánssyni
Maggi v Árni Stef
Ráðhússtipparamir Halldór og Heiðar hafa alveg lippast niður í tippinu þegar
þeir hafa lent í klónum á Magga Helga; fyrst féll dómarinn 6-3 og nú Heiðar
með sömu markatölu sem þýðir að hann fékk 10 færri rétta en hann hafði
sjálfur gert ráð fyrir. Maggi spyr hvort Dóri hafi nokkuð hjálpað Heiðari?!
Varamaður Heiðars er enginn annar en garpurinn Árni Stefánsson sem segir
það heiður að taka þátt í leiknum og reiknar fastlega með að fá 13 rétta.
Landsliðsmarkvörðurinn fyrrverandi, yfirskokkari Skagfirðinga og fþróttakennari
við FNV heldur með Birmingham City í enska og hefur valið Mastersmanninn og
Svíþjóðarfarann Jakob Frímann Þorsteinsson sem sinn varamann!
LEIKVIKA 9
1. Tottenham - Watford
2. Blackburn - West Ham
3. Chelsea - Sheff Utd
4. Middlesbro - Man City
5. Reading - Portsmouth
6. Wigan - Fulham
7. Derby - Cardiff
8. Luton - Ipswich
9. Norwich - Stoke
10. Plymouth - Crystal Palace
11. Sheff Wed - Wolves
12. Southend - Leeds
13. Sunderland - Hull
Leó Örn heldur
með "stóra lióinu
í Liverpool
//
Leó Örn Þorleifsson var eitt
sinn sprækur á línunni hjá KA.
Nú er hann forstöðumaður
Fæðingarorlofssjóðs á
Hvammstanga. Og hvaða lið
ætli það sá sem á hug hans
allan í enska boltanum?
„Everton er mitt lið. Það var
nú þannig þegar ég var yngri
að ég hélt með West Ham og
bróðir minn með Man Utd. Ég
er afskaplega tapsár maður að
eðlisfari og þegar West Ham
tapaði 6 - 0 fyrir Man Utd gat
ég ekki hugsað mér að halda
áfram með því liði enda var
þetta þvílík hneisa og óbærileg
stríðni sem ég fékk frá bróður
mínum."
Hefur þú einhvern tímann
lent f deilum vegna áhuga
þíns á Everton?
„Þegar maður heldur með
Everton (sem er stóra liðið í
Bítlaborginni) er nú ekki annað
hægt heldur en að lenda í smá
deilum við aðila sem halda
með litla liðinu í borginni. Það
hefur þó allt verið á góðum
nótum."
Hefur þú farið á leik með
Everton?
„Nei ég hef ekki enn farið á leik
með þeim en á örugglega eftir
að skella mér á Goodison Park
við tækifæri."
Ef þú átt börn, hvernig hefur
gengið að ala þau upp í
trúnni á liðið?
„Ég er nú ekki að blanda
krökkunum inn í þetta þau
verða sjálf að fá að velja sitt lið
íboltanum.