Feykir - 15.03.2007, Side 15
n/2007 Feykir 15
Krístrún Ragnarsdóttir og Snorri Styrkársson
í eldhúsinu við Skagfirðingabraut
Einfaldur en áhrifa-
ríkur kjúklingur
Hjónin Snorri Styrkársson og Kristrún Ragnarsdóttir urðu
við áskorun nágranna sinna þeirra Guðna og Kristbjargar
og leggja fram uppskriftir vikunnar. Aðalréttinn fengu þau
fyrst í New York og eftir mikla yfirlegu náðu þau að útbúa
sína eigin útgáfu af réttinum. Þau Snorri og Kristrún skora
á vini sína og nágranna með meiru, þau Jónu Hjaltadóttur
og Arnar Halldórsson.
Snorri og Kristrún i eldhúsinu.
Aðalréttur
Pabba kjúklingur
1 kjiíklingur fyrir 4 að
hámarki
Salt
Pipar
150 ml Hunts Barbecue
Orginal sósa
150 ml Stek & grillolja orginal
frá Caj P.
Þetta er afskaplega einfaldur
réttur en áhrifaríkur. Hann
er tilkominn sem eftirlíking
af kjúklingarétti sem ég
fékk á óþekktum grillstað á
Manhattan fyrir áratug eða
rúmlega það og slefaði yfir
í bókstaflegri merkingu í
margar vikur á eftir í hvert
sinn er mér varð hugsað til
Nýju Jórvíkur. Eftir mikla
tilraunamennsku tókst okkur
hjónunum að ná þessu bragði
sem síðan hefúr reynst nánast
eini kjúklingarétturinn
sem þýðir að bjóða á okkar
heimili.
Olíunni er blandað saman
í skál/bolla. Kjúklingurinn
er hlutaður til helminga og
settur í eldfast mót, saltaður
og pipraður báðum megin
og síðan er hann smurður
með olíunni/sósunni, fýrst
að innanverðu en síðan að
utanverðu. Skiptir verulegu
máli að spara ekki olíuna/
sósuna á kjúklinginn. Einnig
má blanda örlitlu af vatni í
eldfastamótiðáeftir. Þaðsem
gerir þennan rétt enn betri, er
að hafa kjúklinginn vel upp
þýddan og ekki síður að gera
hann kláran strax að morgni.
Einnig er sveigjanleiki í
eldamennskunni að steikja
kjúklinginn fyrst með
innrihlutann upp snúa
honum siðan við eftir ca 30
mín steikingu og smyrja hann
þá með sósunni/olíunni að
utanverðu og steikja þannig
það sem eftir er.
Kjúklinginn þarf að steikja
í um 1 og hálfa klukkustund
í ofni við 180-200 C hita.
Mikilvægt er að ná soði með
sósunni/olíunni úr mótinu
sem sósu á hrísgrjónin.
Meðlæti er hrísgrjón,
soðið af kjúklingnum og
bananasalat.
Salat
Bananasalatið er einfalt; með
ísberg, púrrulauk, papriku,
tómat og síðan 1-2 bönunum.
Allt skorið í hæfilega bita og
blandað saman í skál.
Eftirréttur
Vanilluís með
hnetusúkkulaðisósu
ogþeyttum rjóma
Vanilluís.
100 gr Sirius suðusúkkulaði
1 -2 dl mjólk
2 kúfaðar matskeiðar af Peter
Pan Crunschy hnetusmjöri
Þeyttur rjómi
Sósan er gerð með því að
hita við vægan hita í potti,
súkkulaðið, mjólkina og
hnetusmjörið, má ekki sjóða,
þarf að hræra stöðugt í. Borið
fram með þeyttum rjóma.
Algjör kaloríubomba enda
bragðgóður eftirréttur.
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON )
Vísnaþáttur 448
Heilir og sælir lesendur góðir.
það er einn af þessum tr\'ggu vinum
þessa þátta, Einar Sigtryggsson á
Sauðárkróki sem leggur til fyrstu
vísurnar að þessu sinni.
Frambjóðendur fara á kreik
fylki sitt að kattna.
Staða þeirra virðist veik
á velli stjórnmálanna.
Allir vilja inn á þing
okkar þjóð til baga.
Eltir margann íslendittg
erfið raunasaga.
Pólitík ergrimm oggrá
gamlir og ungir takast á,
aukabitling allir þrá
enga miskunn sína má.
Frjálshyggjatt erfarsœl ettn
finnst þó mörgum skrítið.
Milli flokkafara mentt
fyrirhafnarlítið.
Sókttardjarfa Margrét mín
í tnörgu ertufáum lík.
Eflaust verða örlög þín
áfratn bundin pólitík.
Frjálslyndir konurnar kúga
á karlrembu hugsjónir trúa.
Sumir svíkja og Ijúga
í sjálfskaparvíti búa.
Hressum okkur með því að rifja næst
upp þessa ágætu vísu Stephans G.
Hlœjum þrótt í líf og Ijóð
lúa þótt vér höfum.
Kemur nóttin ttœðisgóð
ttógu fljótt í gröfum.
Fræg var hér á árum áður þessi kunna
vísa Óla í Dal.
Ég heffundi átt í dag
með ýta kittdum,
alsjáandi á eigitt hag
attnars blindum.
Þar sem veðurstofan boðar milt veður
alla þá viku sem þessi þáttur kernur til
með að vera í smíðum, er gaman að
rifja næst upp aðra fallega vísu eftir Ólaf
í Forsæludal.
Þrautaleiðir þokastfjœr
þíða ergreið t spori.
Myndi seiða svona blœr
sál til heiða á vori.
I framhaldi af þessu er garnan að rifja
næst upp þessa faliegu vísu Höskuldar
frá Vatnshorni.
Snjóitttt þíðirgóa góð
gefast blíðir dagar.
Móintt skrýðir geisla glóð
glansa vtðir hagar.
Þættinum hefur borist vísa sem nokkuð
ljóst er að muni vera sléttubönd. Höf-
undur Ásbjörn Jónsson, Borgarnesi.
Bœtir Ijóðitt aldrei á
illan gróður sálin.
Kœtir hróður sjaldatt sá
svíkurgóðu tnálin.
Limra mundi næsta vers heita, veit ekki
hver orti svo.
Ég er ástfanginn uppfyrir haus
líð ei öðruttt neitt kjaftæði og raus,
ég er kraminn og kvalinn
og kanttski alveggalinn
en kvensemin takmarkalaus.
Ragnar Á. Magnússon kenndur við
Ketu á Skaga mun hafa ort þessa ágætu
vísu er hann sá ungan mann láta vel að
kærustu sinni.
Ellitt gráa, blökk á brá
bannarþrá til kventta.
Hart er þá að horfa á
hinafá að renna.
Eftir mikla drykkjunótt mun Ragnar
hafa ort þessa.
Tœntdum skáluttt skríð égfrá
skötnmin fyllir sinni.
Hátimbraður, heilsan bág
hotflð þrek og minni.
Er Ragnar hugsar til liðinna ára verður
þessi til.
Þegar hretin hrannast á
hugarlendur tnanna.
Þá er gott að gattga hjá
garði minninganna.
Að lokum þessi eftir Ragnar.
Þótt barist Sé um vit og völd
vœnkast lítt mittn hagur.
Drottinn nú er komið kvöld
hvað varð afþér dagur.
Sá ágæti hagyrðingur Bjarni frá Gröf
í Víðidal mun hafa horft til baka á
lífsleiðinni og ort svo.
Lít ég stór í lífið skörð
lengist milli vina.
Grœnittgjarnir grafa íjörð
gömlu kyttslóðina.
Ef ég man rétt mun Bjarni hafa ort
næstu vísu er hann var staddur erlendis
og sent á póstkorti til vinar síns á
Akureyri, Rósbergs G. Snædal.
Gleðinnar éggettg um dyr
Guð veit hvar ég lendi.
Ég hef orðið fullur fyrr
ogfarist það vel tir hendi.
Verið þar með
sœl að sintii.
Guðtnundur
Valtýsson
Einksstöðum
541 Blönduósi
Sími 452 7154