Feykir - 21.06.2007, Blaðsíða 2
2 Feyklr 24/2007
Löggufréttir frá Blönduósi
Hraðakstur og árás
á lögreglumann
Erilsamt var hja logreglunni a Blonduosi um helgina. Mjog
mikil umferö var í gegnum bæinn og margir teknir fyrir of
hraðan akstur, sá sem hraðastur fór var á 154 km/klst.
Tvö umferðaróhöpp voru á
sunnudag. Annað þeirra var
aftaná akstur, þar senr þrír bílar
komu við sögu og einn bíllinn
eyðilagðist. Til allrar lukku
meiddist enginn í þessum
óhöppum.
Það senr stendur einna helst
upp úr eftir helgina er að
lögreglumaður varð fyrir árás.
Maður var sóttur á Skagaströnd
eftir að hafa verið til vandræða
og keyra átti honum til síns
heirna á Blönduósi. Á leiðinni
trylltist ntaðurinn og réðst á
lögreglumann, senr slapp þó
ómeiddur frá atvikinu. Maður-
inn gistir nú fangageymslur
rneðan að rannsókn á málinu
stendur yfir.
Sumarhátíðin Bjartar nætur
Fjöruhlaðborð
í Vatnsnesi
Um Jónsmessuna hefur á annan áratug verið haldin vegleg
sumarhátíð í Hamarsbúð á Vatnsnesi. Að þessu sinni verður
umrædd hátíð haldin laugardaginn 23. júní og hefst kl.
19:00.
Sýningin hefúr verið haldin
viðÞetta er orðinn árviss
viðburður þar sem húsfreyjurnar
á Vatnsnesi framreiða margs-
konar sælkerarétti sem sumir
hverjir eru afar fáséðir á borðum
landsnranna. Mikið er lagt upp
úr að matföngin á hlaðborðinu
séu allt í senn: Fjölbreytt, sérstök
og í fyrsta gæðaflokki svo flestir
geti fLmdið eitthvað við sitt hæfi í
mat og drykk. Fjöruhlaðborðið
er löngu landsþekkt og sækja
gestir þangað um langan veg til
að njóta þeirrar sérstöðu sem
þarna er í boði.
Áhugasömum skal bent á að
matseðillinn er birtur á www.
northwest.is
Fastur liður í sumarhátíðinni
eru tvær áhugaverðar göngu-
ferðir sem famar eru þennan
sarna dag og endar göngufólk
ferðimar \rið fjöruhlaðborðið.
Önnur er frá Þorgrímsstöðunr,
ffarn Miðtungu niður með
Hlíðarfjalli að Hamarsbúð. Af
Vatnsnesfjalli er mjög víðsýnt í
góðu skyggni. Gönguleiðin er
krefjandi. Brottför verður kl.
12:00 á hádegi ffá Þorgríms-
stöðurn. Upplýsingar geflir Þóra
Kristín í sínra 451 2668.
Hin gönguleiðin er ströndin
ffá Stöpurn að Hamarsbúð. Um
7 krn löng leið sem flestir geta
gengið. Gott útsýni til Stranda-
fjalla. Brottför kl. 16:00 ffá
Stöpum. Upplýsingar gefúr
Jónína í síma 846 7636.
Leiðari
Flutningabílstjórar og
mótorhjólaökumenn eru bestafólk
Þaðfer örlítið í taugamar á mér hinn einhæfi
málflutningur kollega minna á þá leið að vandi
þjóðvegarins sé öðrufi'emur tveimur tegundum ökumanna
að kenna. Sjálf er ég mikið úti á þjóðvegum landsins og
verð að segja að ég hefekkert út á þessar stéttir ökumanna
að setja. Það erflutningabílstjóra og mótorhjólaökumenn.
Það var ekkiflutningabíll og það var ekki mótorhjól sem
tókfram úr sjúkrabíl meðforgangsljósin á á 130 km hraða
um liðna helgi.
Það var ökumaðurfólksbíls sem var tekin undir áhrifum
fikniefna um helgina.
Það var ökumaður á fólksbíl sem lá svo mikið á að hann
fórfram úr á blindhæðþegar ég var á ferðinni á dögunum.
Staðreyndin er sú að það er ekki hægt að velja úr tvoflokka
ökumenn og staðhæfa aðþeir séu óalandi og óferjandi á
vegum úti. Flest hjól og stór ökutæki sem ég á samskipti
við úti á vegutn eru tilfyrirmyndar. Síðan eru það svörtu
sauðirnir setn skemmafyrir hinuin. Þeir eru á öllutn
tegundum ökutækja og úr öllum stigum þjóðfélagsins.
Ung kona á jjölskyldubíl var tekin fyrir ofsaakstur um
helgina en hún var á 132 km hraða. Þetta þætti ekkifrétt
og sést ekki. Hins vegar er ég alveg vissutn að þetta Itefur
gerst oftar en einu sinni.
Það að missa einhvern sér nákomin úr bílslysi er hræðileg
lífsreynsla og hana hefég reynt oftar en ég kæri tnig um að
ræða hér. Ábyrgðin er okkar allra og okkur ber öllum að
sýna tillitsemi og varkárni á vegum úti.
Hættum að fordæma aksturslag annarra og lítum öll sem
eitt í eigitt barm. Katmski erþað allt sem þarf.
Keyrum varlega í sumar og komum heil heim.
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
sími 8982597
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Feykir
Útgefandi:
Nýprent ehf.
Borgarflöt 1 Sauöérkróki
Póstfang Feykis:
Box 4, 550 Sauðérkrókur
Bladstjorn:
Árni Gunnarsson,
Áskell HeiðarÁsgeirsson,
Herdís Sæmundardóttir,
Ólafur Sigmarsson og
Páll Dagbjartsson.
Ritstjóri &
ábyrgðarmaður:
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
Simi 455 7176
Blaðamenn:
ÓliArnar Brynjarsson
oli@nyprent.is,
Örn Þórarinsson,
Ragnhildur Friðríksdóttir.
Prófarkalestur:
KarlJónsson
Askriftarverð:
275 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
325 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing
Nýprent ehf.
Sími 455 7171
Umbrot og prentun:
Nýprent ehf.
Lúpínan er falleg en stundum er bara fullmikið afþvi góða.
Stemma á stigu við útbreiðslu lúpínu
Lúpínan að verða
til vandræða
íbúar Sauðárkróks, eins og íbúar annarra sveitarfélaga á
landinu, hafa í gegnum árin getað fylgst vel með útbreiðslu
lúpínu innan bæjarmarka sinna.
Idaghefurþekjalúpínunnar
stóraukist og er hún búin að
leggja stór svæði undir sig og er
farin að sækja í garða bæjarbúa
og skógrækt þá sem hefúr verið
ráðist í á þessu svæði.
Þann 21. júní næstkomandi
ætlarSveitafélagiðSkagafjörður
og Náttúrustofa Norðurlands
Vestra að reyna að freista þess
að hefta útbreiðslu lúpínunnar
ofan við bæinn. Aðstoð vantar
frá bæjarbúum við að dreifa
áburði á plönturnar til að gera
jarðveginn næringarríkari svo
lúpínan festi síður rætur þar.
Áburðurinn verður staðsettur
ofan við Vatnshús, við Háuhlíð
til móts við Vatnshúsið og ofan
við Hótel Áningu. Hafist
verður handa um kl 20:00.
Mannabreytingar í nefndum
Blönduósingar fá
nýtt fólk í brúnna
A fundi bæjarstjórnar Blönduósbæjar þann 12. júní sl. urði
nokkrar breytingar á skipan aðalmanna í nefndum bæjarins.
Skipt var um formann í skipulags-, byggingar- og veitunefnd.
Þar hætti Þorgils Magnússon,
formaður nefndarinnar og
Þórður Pálsson tekur við hans
sæti. I fræðslunefnd hættir
Helga Kristín Gestsdóttir,
formaður nefndarinnar, og
Zophonías Ari Lárusson tekur
við hennar sæti. í æskulýðs- og
tómstundarnefnd er líka ein
breyting þar sem Þorgils
Magnússon hættir og Þórhallur
Barðason tekur við hans sæti.
Menning
Birkir Rafn
gefurút
sóióplötu
Skagstrendingurinn Birkir
Rafn Gíslason gaf á
dögunum út sólóplötuna
Single Drop. Plata þessi
hefur verið i vinnslu síðasta
eina og hálfa árið og tónlist
hennar er tilraunakennt
popp-rokk.
Ýmsir tónlistarmenn spila og
s)Tigja með Birki á plötunni,
m.a. bræðurnir Ragnar Zolberg
og Egill Örn Rafirssynir úr
hljómsveitinni Sign og Ásta
Sveinsdóttir sem til dæmis
sungið hefur nreð Gus Gus.
Útgáfutónleikar plötunnar
voru fimmtudaginn 14. júní í
Tjarnabíói í Reykjavík. Tónleik-
arnir voru vel sóttir og ekki var
annað að sjá en að áheyrendum
líkaði vel. Platan er væntanleg í
verslanir á næstu dögum.
Blönduós
Gamli skóli
safnar munum
Þann 8. febrúar varð “Gamli
skóli” á Blönduósi 60 ára
gamall. Af því tilefni verður
opið hús í skólanum á
Húnavöku 13. - 15. júlí
næst komandi.
Þá mun fólki gefast kostur á að
skoða skólann og riíja upp
garnlar minningar.
Hugmyndin er að hafa til
skoðunar gamlar myndir,
myndaalbúm, bækur, húsgögn
og eitthvað sem minnir á sögu
skólans. í tilkynningu ffá
skólanum óska stjórnendur
skólans eftir gömlum munum
úr fórum fyrrverandi nemenda.