Feykir - 12.07.2007, Qupperneq 2
2 Feykir 26/2007
Andlát
Látinn er Óskar S.
Óskarsson, slökkviliðs-
stjóri hjá Slökkviliöí
Skagafjarðar. Óskar var
fæddur í Keflavík þann
30. maí 1961.
Óskar útskrifaðist sem
húsasmiður árið 1991 en árið
1995 hlaut hann löggildingu
sem slökkviliðsmaður, eftir
að hafa lokið fjölda námskeiða
í slökkviliðsfræðum.
Hann hóf störf sem
slökkviliðsmaður árið 1986
hjá slökkviliði Keflavíkur-
flugvallar. Það var síðan í
febrúar árið 1993 að hann
fluttist til Sauðárkróks og réði
sig þá sem slökkviliðsstjóra.
Óskar varð bráðkvaddur
þann 3. júlí sl. Hann lætur
eftir sig eiginkonu og tvær
uppkomnar dætur. Einnig átti
hann foreldra og tvo bræður á
lífi.
Útför Óskars verður gerð
frá Sauðárkrókskirkju laugar-
daginn 14. júlí klukkan 14:00.
Leiðari
/ minningu manns
Fyrir mánuði siðan sat ég á kaffistofu slökkviliðs Skaga-
Jjarðar og spjallaði við slökkviliðsstjórann. Umræðuefni
okkar var lífið og tilveran og hversu stutt bilið milli lífs
og dauða er. Hann ræddi um aðkomu sína að slysum og
erfiðleikum og hvaða leiðir slökkviliðsmenn nota tilþess
að vinna á þeim erfiðleikum sem þeir mæta í starfi sínu.
Eg ræddi um mína hlið afþessum málum í gegnum tíðina,
það er hið vandasama verk að skrifa um ótímabær andlát,
hafa samband við aðstandendur og gera fréttina þannig úr
garði að hún sýndi hinum látna virðingu og tilfinningum
þeirra sem eftir lifa tillitsemi. Ekki grunaði mig að næsta
fréttþessa eðlis sem ég þyrfti að skrifa yrði um andlát
Oskars Óskarssonar, slökkviliðsstjóra, hins lífsglaða og
lífsreynda viðmælanda míns þennan dag.
Við ræddum hvernig samstarf okkar gæti orðið og hvað
við gætum gert tilþess að skrifa og jjalla um mál svo þau
hefðuforvarnagildi.
Við ræddum um hugsanir semfara í gegnum huga
sjúkraflutiúngamannsins er hann hraðar sér á slysstað í
fullkominni óvissu um hvað eða hver bíði hans þar.
Við ræddum um hversu mikið álagfylgdi starfinu og hvað
það með tímanum tæki mikinn toll, sér í lagi efekki væri
unnið rétt úr hlutum.
Við ræddum um mikilvægiþess að lifa í núinu og þakka
fyrir það sem við eigum og höfum.
Við ræddum líka svolítið um tóma vitleysu og hlógum
mikið.
Blessuð sé minning Óskars Óskarssonar, slökkviliðsstjóra.
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
sími 8982597
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alitaf á miðvikudögum
Feykjr
Utijcfíwdi:
Nýprent ehf.
Borgarflöt 1 Sauóárkróki
Póstfang Feykis:
Box 4,550 Sauðárkrókur
Blaðstjórn:
Árni Gunnarsson,
Áskell Heiöar Ásgeirsson,
Herdis Sæmundardóttir,
Ólafur Sigmarsson og
Páll Dagbjartsson.
RitstjóriS
ábyrgðarmaður:
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
Simi 455 7176
Blaðamcnn:
Óli Arnar Brynjarsson
oli@nyprent.is,
Örn Þórarinsson,
Bagnhildur Friðriksdóttir.
Prófarkalestur:
Karl Jónsson
Askriftarverð:
275 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
325 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing
Nýprentehf.
Simi 455 7171
Umbrot og prentun:
Nýprent ehf.
Köttur fór í 30 daga veiðitúr
Brandur um borð
í Málmey
Skipverjum um bord i Malmey brugðu heldur í brún
þegar þeir ætluðu að byrja á veiðum í 30 daga túr
sínum. Þegar kasta átti trollinu heyrðist skerandi öskur
framan úr grandarspilrýminu og kom þá í Ijós að
grabrondottur kottur hafði
Óhætt er að segja að kisi
hafi verið heppinn að sleppa
úr þessari lífsraun, en hann
kont sér vel fyrir í
veiðarfærunum, hélt þar til
allan túrinn og lifði þessa 30
daga af.
Honum var loks sleppt
ið inm i trollinu.
þegar í land var komið og
virtist vera frelsinu feginn.
Brandi, eins og hann var
nefndur, var gefinn
lúxusmatur á hverjum degi,
svo það er aldrei að vita nema
að hann taki sig til og skelli sér
í annan túr á næstunni.
Ljóð að hætti
Smára á Lóni
Smári
Skapalón
Föstudaginn 29. júní var
fyrsti Ijóðalestur Kjötkróks
haldinn. Lesin voru þijú
úrvalsljóð úr væntanlegri
Ijóðabók Smára Haralds-
sonar, Bónda á Lóni.
Af þvi tilefni tilkynnti hann
nýtt skáldanafn sitt og kallar sig
nú Smára Skapalón.
Frekari upplýsingar veitir
Srnári í síma 844-7285. Ekki
verða fleiri ljóðalestrar í
Kjötkrók að sinni.
Frá undirritun sáttmálans, frá vinstri: Agnar Gunnarsson, Akrahreppi, Guðmundur
Guðlaugsson, Sveitarfélaginu Skagafirði, Hjalti Pálsson, ritstjóri, Stefán Guðmundsson
frá KS og Árni Gunnarsson frá Leiðbeiningarmiðstöðinni
Byggðasaga Skagafjarða
Fjármögnun tiyggð
Fuiltrúar Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Sögufélags
Skagfirðinga, Leiðbeiningarmiðstöðvarinnar, Kaupfélags
Skagfirðinga og Akrahrepps undirrituðu á dögunum
samkomulag um fjármögnun á ritun Byggðasögu
Skagafjarðar næstu fjögur árin.
Sveitarfélagið Skagafjörður Hjalta Pálsson, en aðrir
mun leggja til laun og annan styrktaraðilar leggja til framlög
kostnað við ritstjóra verksins, í annan kostnað. Ráðinn hefur
verið aðstoðarmaður, Kári
Gunnarsson sem mun vinna
með ritstjóra að ritun
Byggðasögunnar.
Nú eru komin út 3 bindi af
ritverkinu. Fjalla þau um jarðir
í Skagafirði vestanverðum. Á
haustdögum 2007 mun 4.
bindi koma út, þar sem fjallað
verður um Akrahrepp.
1 5. bindi verður sagt frá
jörðum í Viðvíkur-Hóla- og
Rípurhreppum, 6. bindi verður
um Hofshrepp, það 7. um Fljót
og 8. og síðasta bindið um
Fellshrepp auk nafiraskrár og
leiðréttinga.
Núverandi stjórn Byggða-
sögunnartóktilstarfaþann 10.
ágúst 2006. Hana skipa Ásdís
Sigurjónsdóttir, tilnefnd af
Sveitarfélaginu Skagafirði,
Gunnar Rögnvaldsson, til-
nefiidur af Sögufélagi Skag-
firðinga og Bjarni Maronsson
formaður, tilnefndur af Kaup-
félagi Skagfirðinga.
Vel heppnaður kynningarfundur Gagnaveitunnar SSNV
60 manns mættu
Gagnaveita Skagafjarðar helt a þriðjudagskvoldið
kynningarfund með íbúum Túnahverfis en það hverfi verður
fyrsta verksvæðið sem Gagnaveitan ræðst í framkvæmdir í,
við lagningu Ijósleiðara inn á heimili á Sauðárkróki.
Um 60 manns komu á
fundinn og hlýddu á kynningar
um framkvæmdirnar. Á
fúndinum kom fram skýr vilji
Gagnaveitunnar að eiga gott
samstarf við íbúa og velja
endanlegar lagnaleiðir og
ffágang lóða í fullu samráði við
þá. Helstu spurningar íbúa voru
í tengslum við lagnaleiðir og
ffágang, kostnað þeirra við að
taka ljósleiðarann inn og hvað
þessar tengingar hafi umffam
algengar tengingar í dag. Margir
skiluðu inn yfirlýsingum á
fundinum þar sem þeir gefa
Gagnaveitunni leyfi til að fara í
gegn um lóðir þeirra og leggja
Ijósleiðarann inn fýrir vegg.
Meira um fúndinn á heimasíðu
Gagnaveitunnar. www.skv.is/
gagnaveita
Göngur á
dagatal
Á Heimsmeistaramóti
íslenska hestsins sem fram
fér í Hollandi 6. - 12. ágúst
n.k. mun verða dreift
sérstöku kynningarefni um
göngur og réttir og aðra
ferðaþjónustu á Norðurlandi.
Það er SSNV-Atvinnuþróun
sem stendur fyrir gerð og
dreifingu kynningarefnisins í
samstarfi við Útflutningsráð,
sveitarfélög og hagsmuna-
samtök ferðaþjónustunnar.