Feykir - 12.07.2007, Side 8
c
8 Feykir 26/2007
Hjalti Pálsson hélt veglega afmælisveislu
S$xtugsafmæli
í Argarði
Fjölskyldan tilbúin i veisluna. Guðrún Rafnsdóttir, Maria Hjaltadóttir, Ómar Rafn Halldórsson og Hjalti Pálsson afmælisbarn.
Hinn kunni Skagfirðingur, Hjalti Pálsson, ritstjóri Byggðasögunnar, hélt upp á sextugs-
afmæli sitt með pompi og prakt, föstudaginn 29. júní sl. Stórveislan var haldin í Árgarði,
fram í gamla Lýtingsstaðahreppi, þar sem hátt í 200 manns samglöddust þessum mæta
manni í glæsilegu veðri.
Sneisafull dagskráin hófst
rétt rúmlega níu með nokkrum
orðum írá afmælisbaminu, þar
sem hann meðal annars bauð
gesti sína velkomna. Að því loknu
ailicnti hann veislustjómina
til Hilmis Jóhannessonar sem
stjómaði veislunni af stakri
snilli.
Vegna mikillar veðurblíðu
þurfti að ffesta myndasýningu
um sögu Hjalta, því sóiin
skein svo mjög inn um þunn
gluggatjöldin að lítið sást á tjaldið
sem myndunum var varpað
á. Ekki kom það þó að sök og
byrjað var á lestri úr líréfi til
Haraldar Bessasonar, en þar var
veislustjórinn á ferðinni sem las
með tilþrifum minningar Hjalta
ffá ýtumannsárum sínum. I
miðjum lestri var gert stutt stopp
þar sem Stefán Gíslason spilaði
á píanó, en síðan var lestrinum
lokið. Næstir á sviðið stigu
þeir Jón Hallur Ingólfsson og
Gunnar Rögnvaldsson og sungu
þeir félagar tvö lög við frábæra
texta Hilmis Jóhannessonar
sem fjölluðu um affnælisbamið
á skemmtilegan hátt. Stefán
Gíslason spilaði undir og sló
þetta atriði í gegn, enda er Hilmir
þekktur fýrir allt annað en
leiðinlega texta. Loks vom það
þeir Sigfús og Pétur Péturssynir
sem sungu tvö lög áður en gert
var veitingahlé.
Eftir að gestir höfðu horðað
nægju sína fengu einar 70 myndir
úr lífí Hjalta litla að rúlla, og á
meðan sátu þeir Hilmir og Pétur
Péturs á spjallinu um myndimar
og komu með athugasemdir
sem kölluðu ffam ófá brosin á
mannskapnum. Að því loknu
var kontið að aðalræðumanni
kvöldsins, Pálnta Rögnvaldssyni.
Hann hélt tölu um affnælisbarnið
og fór vandlega ofan í sögu Hjalta
á skemmtilegan hátt.
Veislugestir skemmtu sér konunglega yfir skemmtiatriðum kvöldsins.
Hilmir Jóhannesson veislustjóri.
Tvö söngatriði, annað
í höndum Jóns Halls og
Gunnars og hitt í höndum
Sigfúsar og Péturs mörkuðu
lok skipulagðrar dagskrár.
Bræðurnir tóku tvö lög og var
annað þeirra, í Glerhallarvík,
eftir Hjalta Pálsson sjálfan og
texti eftir Sigurð Sigurðsson ffá
Vigur, og var það mál ntanna
hér væri fanta flott lag á ferð og
fékk það góðar undirtektir gesta.
Að skipulagðri dagskrá
lokinni var orðið gefið laust og
nýttu menn sér það uns komið
var að dansleik um miðnættísbil.
Ballinu lauk svo urn hálftvö
og síðustu gestimir fóru að
tínast heim á leið í yndislegri
veðurblíðu sumamæturinnar
eftir skemmtilega kvöldstund.
Auglýsing um skipulag
Tillaga að breytingu að
Aðalskipulagi Blönduóss 1993-2013
Miösvæöi við Hnjúkabyggð
Bæjarstjórn Blönduósbæjar auglýsir hér meö tillögu aö breytingu
á Aöalskipulagi Blönduóss 1993-2013, samkvæmt 2. mgr. 21.gr.
skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skipulagssvæðið tekur til lóöa Hnjúkabyggöar 29-31 og er
staðsett á Blöndubakkanum sunnan megin ár. Breytingin felst
í nýrri skilgreiningu á landnotkunarflokki þessara lóöa, veröi
Miösvæöi í staö Núverandi og fyrirhugaöra svæöa fyrir stofnanir/
verslun/léttan iðnaö.
Breytingartillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofu
Blönduósbæjar aö Hnjúkabyggö 33 frá og meö mánudeginum 9.
júlí til mánudagsins 30. júlí 2007.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna aö gæta er gefinn kostur
á aö gera athugasemdir við breytingartillöguna,
eigi síöaren 30. júli 2007.
Skila skal skriflegum athugasemdum til skipulags- byggingar- og veitunefndar á
bæjarskrifstofur Blönduósbæjar. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir viö tillöguna
innan tilskilins frests telst samþykkur henni.
Jóna Fanney Friöriksdóttir bæjarstjóri
BLONDUOSBÆR
Hnjúkabyggö 33 540 Blönduós Simi 455 4700
www.blonduos.is