Feykir - 12.07.2007, Page 10
10 Feykir 26/2007
Fjöldi gesta sótti hátíðina heim.
Jónsmessuhátíð á Hofsósi
Dansaðí
dögginni
Hin árlega Jónsmessuhátíd var haldin á Hofsósi helgina
22. - 24. júní. Þetta var í fímmta skipti í röð sem hátíðin
var haldin og fer gestum hennar fjölgandi ár hvert, enda
frábær fjölskylduskemmtun þarna á ferðinni.
Hofsósingar eyða ekki
Jónsmessuhelginni í að velta
sér upp úr dögginni og hlusta
á kýrnar röfla. heir nota
tækifærið og halda veglega
hátíð heimafyrir, þar sem brott
fluttir heimamenn og aðrir
nærsveitungar koma saman
og skemmta sér í fjölbreyttum
dagskrárliðum. Árið í ár var
engin undantekning. Þessa
helgi margfaldaðist íbúafjöldi
Hofsóss og aðsóknin var meiri
en síðustu ár, en heildarfjöldi
gesta nálgaðist þúsund manns.
Mörg bekkjarmót voru í
bænum auk minniháttar
ættarmóta. Það voru þó ekki
allir gestirnir sem settust að
á Hofsósi alla helgina, heldur
Auglýsing um skipulag
Tillaga að breytingu að
Aðalskipulagi Blönduóss 1993-2013
r
Ibúöarsvæöi við Mýrarbraut
Bæjarstjórn Blönduósbæjar auglýsir hér meö tillögu aö breytingu
á Aöalskipulagi Blönduóss 1993-2013, samkvæmt 2. mgr. 21. gr.
skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skipulagssvæðið er á mótum Mýrarbrautar og Þverbrautar á
Blönduósi. Breytingin felst í nýrri skilgreiningu á landnotkun
svæöisinssem tekur til tveggja lóða, Mýrarbrautar 15-17, og
leiksvæðis viö þá lóð. Lagt er til aö svæöið veröi skilgreint sem
Íbúðar5væði.
Breytingartillagan veröur til sýnis á bæjarskrifstofu Blönduós-
bæjaraö Hnjúkabyggð 33 frá og með mánudeginum
9. júlí til mánudagsins 30. júli 2007.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna aö gæta er gefinn kostur
á aö gera athugasemdir viö breytingartillöguna,
eigi síöar en 30. júlí 2007.
Skila skal skriflegum athugasemdum til skipulags-, byggingar- og veitunefndar á
bæjarskrifstofur Blönduósbæjar. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir viö tillöguna
innan tilskilins frests telst samþykkur henni.
Jóna Fanney Friöriksdóttir bæjarstjóri
BLONDUOSBÆR
Hnjúkabyggö 33 540 Blönduós Sími 455 4700
www.blonduos.is
voru margir sem kíktu í bæinn
á einstaka viðburði.
Hátíðarhöldin fóru mjög
vel fram þrátt fyrir fjölda
gesta og þótt ótrúlegt megi
virðast, þurfti lögreglan að
hafa lítil sem engin afskipti af
gestum hátíðarinnar. Kyrrlátt
var á fjölmennu tjaldsvæðinu
í bænum, enda mikið um
fjölskyldufólk.
ÁHofsósivarýmislegtíboði.
Gönguferðir, fótboltamót,
óvissuferð fyrir börnin, reiðtúr,
kvöldvaka og fleira sem allt var
vel sótt. Fjölmennast var þó
laugardagskvöldið, þar sem um
700-800 manns voru saman
komin á kvöldvöku og dansleik.
Á kvöldvökunni komu fram
góðkunnir félagar, þeir Örn
Árnason, Óskar Pétursson og
Jónas Þórir og slógu þeir í gegni
með gamanmálum sínum og
söng. Ekki var dansleikurinn
í Höfðaborg síðri, en það var
hljómsveit Geirmundar sem
lék undir dansi fyrir troðfúllu
húsi. Einnig er rík ástæða til að
greina frá fótboltamótinu sem
fór fram á Hofsóssvelli. Þar
voru það gamlir Neistamenn
með þá Baltasar Kormák
og Friðrik Þór Friðriksson
innanborðs sem báru sigur úr
bítum í spennandi viðureign.
Solla stirða og Halla hrekkjusvin heilsuðu upp á börnin.