Feykir


Feykir - 08.11.2007, Síða 8

Feykir - 08.11.2007, Síða 8
8 Feykir 42/2007 Jónína Friðriksdóttir garðyrkjubóndi á Laugarmýri á og rekur Garöyrkjustöðina að Laugarmýri. Stöðin hefur veriö starfrækt frá árinu 1947 en hana stofnaði Friðrik Ingólfsson, garðyrkjufræöingur og faöir Jónínu. Fyrirtæki vikunnar - Garóyrkjustöðin á Laugarmýri Ræktar sitt lítið af hverju Alls eru 7 gróðurhús á Laugarmýri og í þeim ræktar Jónína margar tegundir. Sjáif segir Jónína að ekki sé hægt aö tala um sérhæfingu í þessari grein heldur stjórni markaðurinn framboði stöðvarinnar hverju sinni. -Ég hef reynt að vera með sitt lítið af hverju og nógu lítið ntagn í hverri tegund til þess að þetta gangi. Það getur stundum verið flókið að stúdera allar þessar tegundir og hugsa um þær svo þær dafni sem best. En hugsunin er alltaf sú að rækta þær ekki í það miklu magni að ég þurfi að flytja vöruna langan leið á markað. Heldur framleiði ég meira fyrir heimamarkað og þessar nágrannabyggðir, segir Jónína. Sjálf vinnur Jónína í gróðrarstöðinni en seinni part vetrar og á vorin tekur hún húsmæður í sveitinni í vinnu. -Það verður svo mikið um að vera þegar ég þarf að koma sumarblómunum til og selja þau síðan að þær hafa verið mér innan handar konurnar hérna í kring aðallega þó Björk í Laugardal, að ógleymdri fjölskyldunni. Fyrir utan sumarblóm og þessi fjölæru er Jónína með tré og runna auk þess sem hún ræktar stofublóm og afskorna Kalla. En Kallar voru notaðir í brúðarvönd Díönu prinsessu á sínum tíma. Viðskiptavinir Jónínu eru síðan blómabúðirnar á svæðinu auk þess sem alltaf er eitthvað um að fólk komi beint til hennar að versla. En hefur Jónína þá beint því að fólki að hringja á undan sér til þess að það fari nú örugglega ekki fyluferð í sveitina. Þá gerir hún einnig tilboð í ræktun sumarblóma fyrir sveitarfélög. Hveitigras er spennandi nýjung Eins helsta nýjungin hjá Jónínu, þessa dagana, er svokallað hveitigras sem er ræktað í bökkum sem innihalda vikuskammt af grasinu. Grasið er síðan pressað og drukkið í skotum eða blandað saman við drykki sem fæðubótaefni. Ræktun þessi er þó enn á tilraunastigi og er Jónína að láta rannsaka fyrir sig hvort unnt verði að pressa grösin og frysta og koma þeim þannig í sölu til neytenda. Eins og staðan er í dag er hægt að kaupa hjá Jónínu þar til gerðar pressur til þess að pressa grasið og síðan kaupir fólk áskrift af bökkunum hjá henni. Hveitigrasið er notað sem fæðubótaefni og þykir ríkt af vítamínum. -Það er talað um að inntaka á grasinu auki blóðflæði og því sé það mjög gott fyrir þá sem þjást af gigt og jafnvel við krabbameini. Bragðið er bara svona ekta grasbragð og því hafa margir brugðið á það ráð að blanda þessu út í einhverja drykki. Jónína segir að það sé ekkert mál að pressa safann en engu að síður sé það draumurinn að hægt verið að þróa aðferð til þess að selja grasið pressað og í neytendaumbúðum. í kynningarefni ífá Lamb- haga segir orðrétt - Nýkreistur hveitigmssafinn er það hollasta sem maður ncerir kroppinn d. Sífelltfleiri fá sér skot af þessutn dökkgræna safa á hverjum degi. Safmn er pressaður úr lífrcent ræktuðu hveitigrasi og bragðast eins og nýslegið gras. Hveitigras safinn er mjög orkugefandi og inniheldur meðal annars mikið magn blaðgrænu sem talin er geta aukið árangur í ræktinni. Auk þess hefur hún bakteríueyðandi virkni. Er blóðhreinsandi og býr fyrir trilljón öðrum heilsubætandi áhrifum. Áhugasamir geta farið í Þreksport og smakkað grasið en Jónína hefur að undan förnu kynnt grasið góða þar. Föndrað með Herdísi:: Námskeið í Gimb Gomlum handbrögðum haldið víð Undanfarið hefur Kompan boðið upp á námskeið í gimbi. Gimb er gömul aóferð og líkist einna helst hekli. Notuð er heklunál við að gimba og er hægt að gimba nokkrar mismunandi tegund- ir og aðferðir. Á námskeiðinu hjá Herdísi var kennt að gimba barnateppi, sjöl og trefla. Kennari á námskeiðinu var Friðfinna Lilja Símonardóttir, frá Barði í Fljótum. Gimbið lærði Lilja af vinkonu sinni en gimb er gömul aðferð sem ekki hefúr að það vitað er verið kennd hér á landi frá þvi um ntiðja síðustu öld. Hefúr aðferðin þó ekki glatast heldur gengið kvenna á milli. Mikill áhugi var á námskeiðinu og sóttu 13 konur fyrra námskeiðið og sökum þess hversu vel það var sótt verður annað námskeið haldið 20. og 27. nóvember. Nóg að gera allt árið En er eitthvað að gera svona yfir háveturinn? -Já, já það þarf auðvitað að sinna því sem er í húsunum og síðan er ég að rækta Hýasintur sem ég verð með í sölu núna fýrir jólin. Bæði inni á Krók, á Blönduósi og líka á Egilsstöðum. Einnig verður hægt að kaupa þær hérna hjá mér, svarar Jónína og er greinilega hissa á þessari spurningu um dauðann tíma. Svo þú ert bara bjartsýn á framhaldið? -Já, ég er það svo langt sem maður þorir að hugsa til framtíðar því auðvitað get ég svissast úr vinnu hvenær sem er. Ég er hins vegar ekki tilbúin að hætta og fýrst ég sturtaði mér út í þetta hveitigras verkefni verð ég að vonast til þess að það gangi. Er arftaki í sjónmáli? -Það væri þá kannski helst tengdasonurinn, ég veit það ekki. Þau eru alla vega komin hingað til að vera. Hins vegar toga hestarnir meira í þau en blómin. í það minnsta enn sem komið er, segir Jónína og hlær. Þeir sem vilja hafa samband við Jónínu geta hringt í síma: 898-8039

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.