Feykir - 18.12.2008, Side 2
2 Feykir 48/2008
Leiðari
Skrýtinjól
Jólin okkar hjóna verða skrýtin þetta árið. Börnin okkar
verða hjá hinumforeldrunum og við hjónin verðum ein
í kotinu. Ég verð aðjáta að framan af jólaundirbúningi
olli þetta mér miklum hugarangri og jólagleðin vékfyrir
jólablús. Jólin erujú hátið barnanna. Ekki það að þetta
eru ekkiJyrstujólin sem við höldum án barnanna heldur
þau þriðju og við höfum komið okkur upp ágætis hefðum
til þess að takast á við þetta. Jólagjafir barnanna bíða
heima undir trénu og fram á gamlárskvöld en þá tökum
við upp gjafir,JÖrum á brennu og fógnum nýju ári.
Börnin eru alsæl tvennjól og ég er að læra að lifa með
þessu.
Ég er líka meðvituð um að þessi jólablús minn er svolítið
til skammarþví ég hefsvo margt til að gleðjast yfir.
Þessijólin er stærsta gjöfin að vera með vinnu, eiga
heimili í sig og á. Börnin mín eru heilbrigð og hraust
og svo á líka við um mína nánustu. Með það erum við
lánsöm.
Ég hlakka til að skreppa norður yfir heiðar, kikja heim
í Ongulsstaðýfara síðan á Akureyri hitta Jjölskylduna
og smakka kökurnar hennar mömmu, öllu heldur detta
ofan í suma baukana, kíkja í bæinn, sýna mig og sjá
aðra og halda síðan heim íjólakyrrðina.
Ég hlakka til aðfá börnin mín heim milli hátíða, sitja
með þeim og spila, kúldrast í náttfötunum, borða konfekt
og lesajólabækurnar.
Ég hlakka til aðfinna ilminn afjólahangiketinu, hlusta á
jólakveðjurnar og hafa íþetta eina skipti á ári tíma til að
strauja rúmfötin.
Ég hlakka til aðfá mér kaffibolla og söru og finna þessa
einstöku kyrrð semfylgirjólunum.
Ég hlakka til að meðtaka boðskapjólanna og njóta. Ég
hlakka til að taka mér tveggja vikna frí, hlaða batteríin
og mæta endurnærð til vinnu á nýju ári. Ég hlakka til
ársins 2009 og er sannfærð um að það veitir okkur birtu
ogyl.
Ég vona aðþú lesandi góður hlakkir líka tiljólanna.
Við Palliþökkum ykkur lesendum Feykis samfylgdina
á árinu sem er að líða um leið og við óskum ykkur
gleðilegrajóla.
Guðný Jóhannesdóttir
ritstjóri Feykis
Oháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudogum
Feykir
Útgefandi:
Nýprent ehf.
Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis:
Box 4, 550 Sauðárkrókur
Blaðstjórn:
Árni Gunnarsson,
Áskell Heiðar Ásgeirsson,
Herdís Sæmundardóttir,
Ólafur Sigmarsson
og Páll Dagbjartsson.
Ritstjóri & ábyrgðarmaður
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is © 455 7176
Blaðamenn:
Páll Friðriksson
palli@nyprent.is © 8619842
Lausapenni:
Örn Þórarinsson.
Prófarkalestur:
KarlJónsson
Forsíðumynd:
Óli Arnar Brynjarsson
Askriftarverð:
275 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
325krónurmeð vsk.
Áskrift og dreifing
Nýprent ehf.
Sími 455 7171
Umbrot og prentun:
Nýprent ehf.
Samgönguráðuneytið
Skagastrond og Skaga-
fjörður fá framlag
Samgönguráöherra hefur
ákveðið skiptingu 250
milljóna króna framlags úr
ríkissjóði til sveitarfélaga
vegna t'mabundins sam-
dráttar í aflamarki þorsks á
árinu. Er framlaginu ætlað
að koma til móts við
tekjumissi sveitarfélaga þar
sem samdráttur verður í
atvinnu.
Tvö sveitarfélög á Norður-
landi vestra fá úthlutað að
þessu sinni en það eru
Skagaströnd sem fær
10.754.656 og Skagafjörður
sem fær 4.231.041.
Úthlutunin nú byggist á
sambærilegum forsendum og
árið 2007 sem er áhrif
ákvörðunar um aflaniður-
skurð á einstök sveitarfélög þar
sem aflamark er skráð. Þó er
að þessu sinni miðað við
minnkun aflamarks eins og
það var í hverju sveitarfélagi
um sig þann 1. september
2007, en ekki meðaltal
úthlutaðs aflamarks nokkur
fiskveiðiár þar á undan eins og
gert var fyrir ári. Ráðuneytið
telur að með því sé betur mætt
áhrifum af niðurskurði í
aflamarki þorsks í hverju
sveitarfélagi þar sem skoðuð er
staða aflamarks við upphaf
þess tíma er niðurskurðurinn
tók gildi. Alls er 200 milljónum
króna varið til þessa þáttar.
Þá er sú breyting gerð nú,
að sérstakt tillit er tekið til
breytinga sem átt hafa sér stað
í lönduðum afla milli
fiskveiðiáranna 2006-2007 og
2007-2008. Alls er 50
milljónum króna varið til
þessa þáttar, en framlaginu er
ætlað að mæta minnkandi
umsvifum í starfsemi hafna
vegna ákvörðunar um niður-
skurð í aflamarki þorsks.
Við úthlutunina var tekið
mið af því, að vægi
ofangreindra þátta er misjafnt
í atvinnustarfsemi einstakra
sveitarfélaga. Ennfremur var
ákveðið að hámarksúthlutun
til einstakra sveitarfélaga yrði
35 milljónir króna. Markmið
úthlutunarinnar er að framlag
renni til þeirra sveitarfélaga
sem verða fyrir umtalsverðum
áhrifum vegna hins tíma-
bundna samdráttar í þorsk-
afla.
Vaxtasamningur
úthlutar 20.400.000
Fimmtudaginn 4. desember sl. fundaði stjórn
Vaxtarsamnings Norðurlands vestra öðru sinni um
úthlutanir, byggðar á umsóknum sem bárust í nóvember.
Alls bárust 27 umsóknir, um tæpar 62 milljónir króna.
Norðurland vestra
Stjórnin ákvað að úthluta
samtals kr. 20.400.000, og
skiptist sú upphæð í kr.
15.000.000 í peningum og
andvirði kr. 5.400.000 í
sérfræðiaðstoð sem bakhjarlar
VNV leggja fram Hér á eftir
fylgir örstutt yfirlit um
verkefnin, sem styrkt voru að
þessu sinni:
Þessir fengu styrk:
Byggðasafnið í Glaumbæ kr.
1.000.000. Félag ferðaþjón-
ustunnar í Skagafirði, styrk að
upphæð kr. 1.500.000, auk
fyrirheits um sérfræðiaðstoð
að andvirði allt að kr. 500.000.
Handverkshús á Blönduósi
sérfræðiaðstoð að andvirði allt
að kr. 500.000. Kjötafurðastöð
Kaupfélags Skagfirðinga og
MATÍS kr. 2.000.000. til
rannsókna og vöruþróunar.
Hveravellir kr. 1.500.000 í
peningum, og sérfræðiaðstoð
fyrir allt að kr. 1.000.000.
Hýruspor kr. 2.000.000, auk
allt að kr. 1.000.000 á formi
sérfræðiaðstoðar. Fyrirtækin
H-59 og MarinAgra hljóta
styrk að upphæð kr.
2.500.000 til frekari þróunar
og áætlanagerðar. Markaðs-
skrifstofa ferðamála á Norð-
urlandi vinnur að kynning-
armyndbandi (DVD) um
Norðurland allt. VNV
leggur verkefninu til kr.
500.000. Laxasetur á
Blönduósi kr. 500.000 í
peningum og kr. 400.000 á
formi sérfræðiaðstoðar.
Möguleikartilkræklingaeldis
í Húnaflóa kr. 1.000.000 til
að afla nauðsynlegra gagna
til þess að leggja mat á hvort
kræklingarækt getur verið
fysilegur kostur til atvinnu-
uppbyggingar við Húnaflóa.
Til viðbótar getur komið
sérfræðiaðstoð frá bak-
hjörlum VNV, að andvirði
allt að kr. 1.500.000. Wild
North kr. 2.500.000 í
peningum, auk sérfræði-
aðstoðar allt að andvirði kr.
500.000.
Vestur-Húnavatnssýsla
Tveir smiðir byggja
tjaldstæðishús
Húnaþing vestra hefur tekið
tilboði Tveggja smiða ehf.
um byggingu þjónustuhúss í
Kirkjuhvammi, tjaldstæðinu
á Hvammstanga.
Tilboð Tveggja Smiða ehf.
hljóðaði upp á 8.500.000 en
einnig barst tilboð frá Reynd
að smíða ehf, en það hljóðaði
uppá 11.989.000.
Áður hafði sveitarstjóri gert
tilboð í þjónustuhús á
tjaldstæðinu sem var í eigu
Bland í poka ehf, en því tilboði
var hafnað og Bland í poka
hyggst flytja húsið af lóðinni.
Þá var sveitarstjóra falið að
auglýsa eftir aðila til þess að
taka að sér rekstur tjald-
stæðisins.
Vilja merkingu
gamalla húsa og
eyðijarða
Hreinn Halldórsson og
Guðrún Jóhannsdóttir hafa
sent Byggðarráði Húnaþings
vestra erindi þar sem þau
skora á sveitarstjórn að beita
sér fyrir merkingu eldri húsa í
sveitarfélaginu auk þess sem
þau vilja sjá merkingar á
eyðijarðir.
Erindinu var vísað til
umsagnar í Skipulags- og
umhverfisráði.