Feykir


Feykir - 18.12.2008, Blaðsíða 4

Feykir - 18.12.2008, Blaðsíða 4
4 Feykir 48/2008 Skagafjörður Þrettándagleði Heimismenn æfa. Mynd: HA Karlakórinn Heimir æfir nú baki brotnu fyrir þrettánda- skemmtun sína laugardaginn 3. janúar. Erfitt er að sjá fyrir hver verdur hápunktur kvöldsins. Sérstakur gestasöngvari á tónleikunum verður Helga Rós Indriðadóttir. Ræðumaður kvöldsins er tengdasonur Sauðárkróks. Jón Björnsson frá Húnsstöð- Ungur málaði hann hús Skag- um í Torfalækjarhreppi og firðinga undir Sigurði frá Stóru-Gröf, nam sálfræði og heimspeki og gaf út ferðabækur,- en hann hefur skotist á reiðhjóli yfir Evrópu þvera og endilanga. Nú síðast hefur hann vakið athygli fyrir útvarpspistla um furður hversdagslegra fyrirbæra. Ekki er að efa að Jón mun grafa upp einhverjar furður sem gleðja áheyrendur. Síðast en ekld síst verður fluttur söng- og gleðileikurinn „RÚSSALÁN - rauðstakkar í Rússlandsferð“ eftir Gunnar Rögnvaldsson og Stefán R. Gíslason, þar sem Rússlandsferð Heimis verður gerð upp, ekkert dregið undan og allir dregnir til ábyrgðar. Tónlistin er þrungin gerskri lífsnautn sem hæfir efninu. Annálaðir sviðsþjófar koma fram með kórnum, m.a. Guðbrandur Guðbrandsson, Ingimar á Flugumýri og rússneskur stepputenór ásamt flokki dansmeyja. Skagstrendingar takast á við ótíðina Gleðibanki á Skagaströnd Skagstrendingar stofnuðu Gleðibanka á miðvikudagskvöldið að viðstöddum fjölda manns. Allir sem einn staðgreiddu þeir fyrir hlut sinn og gekk afgreiðslan afar fljótt fyrir sig enda var enginn hörgull á greiðslu. Fyrsta verk Gleðibankans var svo að gefa út svokallað Gleðikort. Fyrir það fæst veglegur afsláttur í helstu verslunum, veitingahúsum, söluskálum og bensínstöðvum á Skagaströnd, en það eru Kántrýbær, Sölu- skálinn og matvöruverslunin Samkaup Úrval. í fundargerð fundarins segir m.a. -Gleðibankinn er vettvangur til að láta sér líða vel, enda heimsendir ekki í nánd eftir því sem best er vitað. Hlutabréfin eru stæling á því sem við getum átt í veraldlegum eignum, því sem ryðgar bara og fúnar - það er ekkert grín ... Hins vegar er ekkert eins og gleðin sem á sína bestu birtingarmynd í einlægu brosi. Þessu öllu til staðfestingar þá rituðu stofnendur Gleði- bankans þau orð sem þeim finnst vera mest íþyngjandi á litla miða. Þetta voru m.a. orð eins og kreppa, þunglyndi, bankar, skuldir, milljarðar, gjaldþrot, spilling, atvinnu- leysi, útrás og verðbólga. Miðunum var síðan troðið í fallbyssu Skagstrendinga og í lok fundarinn var skotið úr henni. Brunnu þar upp miðarnir og þar með voru vandamálin fyrir bí - þeim var beinlínis skotið út í veður og hvassan vind. Fundu Skagstrendingar allir sem einn að þeim var mikið létt eftir þennan gjörning og snéru léttir í lund heim á leið. Hrútakostur í Skagafirði Með því besta Nú liggja fyrir niðurstöður úr lambaskoðun haustsins í Skagafirði. Samkvæmt þeim virðist hrútakostur í héraðinu með þvf besta sem verið hefúr, yfir 50 lambhrútar mældust með 85 stig eða meira. Eins og undanfarin ár vom hrútar frá Syðra- Skörðugili f efstu sætunum. Sá sem hæst dæmdist var með 87.5 stig og var undan Kropp frá Hagalandi í Þistilfirði. Sá í öðru sæti var frá sama bæ heimaalinn með 87 stig. Sá þriðji í röðinni var með sama stigafjölda einnig undan Hvelli. Þess má geta að níu hrútar fengu 86.5 stig eða meira og voru átta þeirra frá Syðra-Skörðugili en Keldu- dalsbúið átti þann sem var fjórði í röðinni. Af veturgömlum stóð effur Stormur fá Syðra-Skörðugili sem er undan Hvelli frá Borgarfelli. Stormur var með 87 stig og reyndist hafa einn þykkasta bakvöðva sem mælst hefur í héraðinu eða 40 millimetra. Næstur í röð varð Bylur frá Hóli í Sæmundarhlíð sem er einnig Hvellssonur. Bylur var með 87 stig. Þriðji með 86.5 stig var svo Róni frá Syðra-Skörðugili, sem er undan hinum eftirsótta kynbótagrip Rafti frá Hest. Þess má geta þegar stig eru jöfn ráða stig fyrir bak, malir og læri ásamt bakvöðvaþykkt röðun í sæti. Þess má að lokum geta að um 4000 gimbrar voru skoðaðar í héraðinu í haust. Meðalþungi þeirra var 41 kíló og bakvöðvaþykkt að jafnaði 26.6 mm. Þetta er hvortveggja það mesta sem mælst hefur til þessa, en vænleiki i haust var reyndar með því besta sem verið hefur til þessa. ÖÞ Steinunn Anna Halldórsdóttir ráðunautur skoOar hér niðurstöðumar á ómsjánni, með henni er Fljótabændumir Viðar á Hraunum og Egill á Minni-Reykjum. Mynd Öþ: Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki Góð gjöf frá Lions Fré afhendingunni. Lionsklubbur Sauðarkroks færði á dogunum Heilbrigðis- stofnuninni að gjöf 20 tommu sjónvörp inn á allar stofur á sjúkradeild auk þess sem þeir gáfu 38 tommu sjónvarp í setustofnu sjúkradeildarinnar Það var Magnús Svavarsson sem færði sjúkrahúsinu gjöfina fyrir hönd klúbbsins en með honum var fjöldi meðlima sem voru á leið á jólahlaðborð. Herdís Klausen, hjúkr- unarforstjóri, tók á móti gjöf- inni fyrir hönd heilbrigðis- stofnunninnar og kunni hún Lionsmönnum bestu þakkir fyrir góða gjöf. Lionsmenn söfnuðu fyrir sjónvarpstækjunum með bíla- stæðamálun, ljósaperusölu og fleiru.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.